Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 37
FRÆÐIGREINAR / KÖNNUN Á MATARÆÐI
Mat á gildi spurningalista Manneldisráðs
Islands til könnunar á mataræði fullorðinna
Inga Þórsdóttir'
Ingibjörg
Gunnarsdóttir'
Laufey
Steingrímsdóttir
SÉRFRÆÐINGAR í
NÆRINGARFRÆÐI
'Rannsóknarstofu í næringar-
fræði, Landspítala Hringbraut
og matvælafræðiskor raunvís-
indadeildar Háskóla íslands,
:Manneldisráði íslands.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Inga Pórsdóttir, Rannsóknar-
stofu í næringarfræði, Land-
spítala, Eiríksgötu 29,
101 Reykjavík. Sími: 543 8414,
543 8410, gsm: 824 5520,
bréfsími: 543 4824.
ingathor@landspitali. is
Lykilorð: nœringarfrœði,
aðferðafrœði, gildi.
Ágrip
Tilgangur: Að rannsaka gildi spurningalista um mat-
aræði fullorðinna einstaklinga.
Efniviður og aðferðir: Mtttakendur (n=84,36±6 ára)
fylltu út spurningalista Manneldisráðs íslands sem
ætlað er að kanna mataræði. Spurningalistinn var
skannaður og neysla næringarefna og fæðutegunda
reiknuð. C-vítamín- og beta-karótínstyrkur var mæld-
ur í blóði og magn natríums, kalíums og köfnunarefn-
is í sólarhringsþvagi. Fylgni milli niðurstaðna frá
spurningalista og mælinga á lífefnafræðilegum breyt-
um var könnuð. PABA (para-amino benzoic acid)
var notað til að meta hvort þvagsöfnun væri fullnægj-
andi.
Niðurstöður: Fylgni var milli C-vítamínstyrks í blóði
og C-vítamín inntöku (r=0,294, P=0,008). Einnig sást
fylgni milli C-vítamínstyrks í blóði við neyslu af tóm-
ötum, gúrkum, papriku og salati annars vegar (r=
0,231, P=0,039), og heildarneyslu af grænmeti hins
vegar (r=0,291, P=0,009). Ekki var fylgni milli beta-
karótíns í blóði og beta-karótíninntöku. Hins vegar
sást fylgni milli beta-karótíns í blóði og neyslu á lauk,
púrru og hvítlauk (r=0,240, P=0,032). Neysla græn-
metis og ávaxtaflokkanna var mjög sterkt tengd inn-
byrðis (P<0,001). Samband var milli kalíuminntöku
og útskilnaðar (r=0,452, P<0,001), en ekki milli natr-
íuminntöku og útskilnaðar. Ekki var marktækur mun-
ur á köfnunarefnisinntöku (mælikvarði á próteininn-
töku) og köfnunarefnis útskilnaði.
Alyktun: Spurningalisti Manneldisráðs íslands er
góður mælikvarði á C-vítamín og kalíuminntöku og
neyslu á grænmeti. Pað gefur einnig mynd af prótein-
inntöku, en ætti ekki að nota til að meta inntöku á
natríum (salti) í fæðu.
Inngangur
Mataræði er einn af þeim umhverfisþáttum sem hef-
ur mest að segja varðandi heilsufar og tíðni sjúk-
dóma. Faraldsfræðileg þekking á mataræði margra
þjóða samfara vitneskju um heilsufar eða tíðni ým-
issa sjúkdóma meðal sömu þjóða, hefur leitt til þess
að hægt hefur verið að tengja einstaka fæðuþætti eða
næringarefni við heilsufar.
Nokkrar aðferðir hafa verið notaðar til að kanna
mataræði einstaklinga og hópa og er það mismun-
andi eftir aðstæðum hvaða aðferð hentar hverju
sinni. Sú aðferð sem er talin nákvæmust felst í því að
allur matur og drykkur er vigtaður nákvæmlega í 3-7
daga (1, 2). Sú aðferð hefur þó marga galla, hún er
tímafrek og þar af leiðandi dýr, auk þess sem hún
EIULISH SUMMARY
Þórsdóttir I, Gunnarsdóttir I, Steingrímsdóttir L
Validity of a food frequency questionnaire
to assess dietary intake of adults
Læknablaðið 2004; 90: 37-41
Objective: The aim was to assess the validity of a food
frequency questionnaire (FFQ).
Material and methods: Participants (n=84, aged 36±6)
filled in a food frequency questionnaire, and the intake of
nutrients and food items was estimated. Vitamin-C and
beta-carotene blood concentration was measured as well
as sodium (Na), potassium (K) and nitrogen (N) excretion in
the urine. Correlation between results from the FFQ and
biological measurements was assessed. PABA test (para-
amino benzoic acid) was used to assess the completeness
of the urine collection.
Results: There was a correlation between plasma vitamin-
C concentration and vitamin-C intake (r=0.294, P=0.008).
A correlation was also seen between plasma vitamin-C
concentration and intake of tomatoes, cucumber, peppers
and green salat (r=0.231, P=0.039), as well as to the total
consumption of vegetables (r=0.291, P=0.009). There was
no correlation between beta-carotene concentration in the
blood and in the diet. Flowever, beta-carotene concentra-
tion in the blood correlated with intake of onion, leak, and
garlic (r=0.240, P=0.032). There was a strong correlation
between all the groups of fruits and vegetables (P<0.001).
Potassium intake correlated with potassium excretion
(r=0.452, P<0.001), but sodium intake was not associated
with sodium excretion. There was no statistical difference
between nitrogen intake and total nitrogen excretion in the
urine.
Conclusion: FFQ developed by the lcelandic Nutrition
Council is valid to assess intake of vitamin-C, potassium
as well as vegetables. It also gives estimates of protein
intake, but should not be used to assess sodium (salt)
intake.
Key words: nutrition, methodology, validity.
Correspondence: Inga Þórsdóttir, ingathor@landspitali.is
krefst mikils af þátttakendum. Spumingalista til könn-
unar á mataræði má nota til að meta hversu oft ein-
stakra fæðutegunda er neytt (3). Fer það eftir upp-
setningu hvers spurningalista fyrir sig hversu ná-
kvæmar upplýsingar um magn fæðutegunda og nær-
ingarefna fást. Notkun hans er auðveld, en bæði út-
fylling og úrvinnsla er tiltölulega fljótleg og aðferðin
því mun ódýrari en vigtun og skráning.
Mð er þó sama hvaða aðferð verður fyrir valinu,
það er nauðsynlegt að vita hvort það tæki sem við er-
Læknablaðið 2004/90 37