Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 11
RITSTJÓRNARGREINAR
Læknablaðið nírætt
„Nei, - við skrifum á íslensku á þessu blaði,“ sagði
Örn Bjarnason ritstjóri Læknablaðsins við leiðarahöf-
und vordag nokkurn árið 1978. Spurningin snerist um
það, hvort ekki væri syndlaust að nota latneskar sjúk-
dómsgreiningar og líffræðileg kennileiti, þótt ensku-
slettur hefðu verið gerðar útlægar af síðum Lækna-
blaðsins. Mér varð þá ljós metnaður ritstjórans, sem
var ekkert smávaxnari en sá að skapa og endurnýja
íslenskt fagmál í læknisfræði.
Læknablaðið varð á næstu árum höfuðvettvangur
þessa metnaðarmáls, þótt stórsigrar ynnust einnig
annars staðar, og má vitna til Iðorðasafnsins.
Þótt ekki væri annars að minnast á 90 ára afmæli
Læknablaðsins, væri það allnokkuð að ylja sér við.
Þess sér nú víða merki, hversu mjög faglegt málfar ís-
lenskra lækna hefur breyst til batnaðar á undanförn-
um áratugum og er ekki saman að jafna. Að mínum
dómi á Læknablaðið hér langstærstan hlut.
En hamingja Læknablaðsins ríður ekki við þennan
einteyming. Frá upphafi hafa margir vöskustu læknar
Islands kappkostað að kynna athuganir sínar og rann-
sóknir fyrir stéttarbræðrum og öðru áhugafólki. Fyrst-
an ber frægan að telja Guðmund Hannesson og þarf
ekki kynningu, en í meðreiðarsveit fyrstu 15 árin má
greina Matthías Einarsson, Guðmund Thoroddsen,
Gunnlaug Claessen, Stefán Jónsson, Sæmund Bjarn-
héðinsson, Magnús Pétursson, Helga Tómasson,
Níels Dungal og Valtý Albertsson, sem allir áttu þátt í
ritstjórnarstörfum. Ekki má heldur gleyma hinu
makalausa frumkvæði Guðmundar Hannessonar að
handrita læknablað árin 1902-04, sem dreift var eink-
um um Norðurland og gefið var út í ljósriti 1966.
Um miðja 20. öld bera þungann af ritstjórnarverk-
efnum þeir Ólafur Geirsson, Ólafur Bjarnason, Ól-
afur Jensson, Páll Ásmundsson og Bjarni Þjóðleifs-
son. Ef hratt er farið yfir sögu, má á árunum 1970-
1980 greina þá breytingu, að hinn efnilegi skapningur
frumherjanna sé að byrja að fullorðnast og nýtur nú
við styrkrar forystu Arnar Bjarnasonar. Þá skapaðist
sú venja, að allar fræðilegar greinar skyldu lesnar af
gagnrýnendum og þeir rýnendur, sem ekki höfðu
hæfilegt bein í nefi, voru ekki beðnir aftur. Fyrstu p-
gildin munu hafa birst í blaðinu um 1970 og hlýtur að
teljast nokkurt framfaramerki, ef marka má þá miklu
trú, sem menn bera síðan til þessa annars hógláta bók-
stafs. Á þessum árum og alltaf síðan birtust oft á ári
greinar, sem hefðu sómt sér vel í frægari tímaritum og
víðlesnari. Samstarf við ritstjóra læknablaða ná-
grannalanda óx og kynni tókust, sem urðu blaðinu
mikilvæg. Á engan er hallað þótt nafn Povl Riis sé
nefnt til sögu öðrum fremur. Hann hefur fyrr og síðar
reynst íslenskum læknum ómetanlegur haukur í
horni, en einkum Læknablaðinu.
Enn er þó ónefnt það sem mestu varðar er hlut-
verk Læknablaðsins skal krufið, en það er annars veg-
ar skyldan að halda til haga stórmælum af vettvangi
ísienskra heilbrigðismála, en hins vegar uppeldishlut-
verkið. Stórmælin eru næg. íslenskir gagnagrunnar
gefa tilefni til alþjóðlegs samstarfs við hinar virtustu
stofnanir og eru kynntir til sögu í fremstu tímaritum.
íslenskir læknar eru í fremstu röð, hvað varðar birt-
ingu vísindagreina og tilvitnanir í þær. Unnið er frum-
kvöðulsstarf, meðal annars í erfðafræði, faraldsfræði
og heilbrigðistækni. Langmikilvægasti vaxtarbroddur
íslensks hátækniútflutnings er á sviðum læknisfræði,
lyfjafræði og líftækni. Stórfréttir eru birtar af þessum
vettvangi á síðum Læknablaðsins, en þeim þyrfti að
fjölga. Ekkert er við það að athuga þótt vísindagögn-
um, sem birst hafa erlendis, séu einnig gerð skil í
Læknablaðinu. Sjaldan er lesendahópurinn sá sami og
efnistökin geta verið önnur. Það er ekki veikleika-
merki að birta vísindagreinar í Læknablaðinu.
Þá er að nefna uppeldishlutverkið. - Á síðustu ára-
tugum hafa margir ungir læknar og læknanemar stigið
fyrstu sporin á vísindabrautinni með birtingu greinar í
Læknablaðinu. Margar þeirra standast strangar kröf-
ur nútímavísinda. Höfundar hafa hlotið góða leiðsögn
reyndari lækna, þeir hafa orðið að sæta sanngjarnri og
jákvæðri gagnrýni ritdómenda og notið þeirrar gleði
og uppörvunar að sjá uppskeru sína á prenti.
Hvað um framtíðina? Ekki er ástæða til að ætla
annað en Læknablaðið eflist af innlendri uppskeru
heilbrigðisvísinda næstu árin. En hærra mætti stefna.
Blaðið ætti að hafa þann metnað að laða að greinar
erlendra vísindamanna og verða marktækur aðili að
alþjóðlegum skoðanaskiptum í læknisfræði. Fyrsta
skilyrði þeirrar þróunar er að sjálfsögðu að greinar í
blaðinu séu skráðar í alþjóðlegum gagnasöfnum. Það
hefur verið reynt að minnsta kosti tvívegis án árang-
urs, en nú segir mér Vilhjálmur ritstjóri að öllum skil-
yrðum sé fullnægt fyrir slíkri skráningu. Þótt hætt sé
við að stefnumótun Arnar Bjarnasonar, sem lýst var í
upphafi, muni lenda í nokkrum andbyr á alþjóðlegu
bersvæði, er leiðin framundan björt og greið.
Þórður
Harðarson
Höfundur sat í ritstjórn
Læknablaðsins 1978-1991.
Hann er prófessor
í lyflæknisfræði
og yfirlæknir
á Lyflækningasviði I
á Landspítala.
Læknablaðið 2004/90 11