Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Ofeldi er málefni alls samfélagsins
Setníngarræða Sigurbjörns Sveinssonar formanns á aðalfundi Læknafélags íslands í Nesi við
Seltjörn 1. október síðastliðinn
Ráðherra, landlæknir, aðrir virðulegir gestir og góð-
ir félagar. Verið öll hjartanlega velkomin til setningar
þessa aðalfundar Læknafélags íslands. Það er vel við
hæfi að læknafélagið haldi aðalfund sinn á þessum
stað, þar sem fyrsta íslenska embættislækninum var
sköpuð aðstaða til að rækja embætti sitt árið 1763. I
fyrra vorum við á Hólum þar sem hann bjó sig undir
háskólanám í Kaupmannahöfn og nú erum við á þeim
stað þar sem hann stundaði lækningar sínar, rak lyfja-
búð samkvæmt konungsbréfi, tók til sín sjúklinga um
lengri eða skemmri tíma ef svo bar undir og kenndi
læknisefnum. Hér var því Landspítali - háskólasjúkr-
ahús þeirra tíma enda var Bjarni Pálsson kjarkmikill
læknir sem bryddaði upp á nýmælum við lækningar.
Voru sumar aðferðir hans ekki á færi annarra lækna
hér um langan aldur. Allar götur síðan hafa íslenskir
læknar reynt að halda á loft merki hans með lækning-
um eftir kunnáttu sinni og fræðslu almenningi til
handa um góða heilbrigðishætti.
Með þessum þræði er eðlilegt að víkja að þeirri
viðleitni lækna að rækta heilbrigði þjóðarinnar með
þekkingu á hollum lífsháttum og einföldustu grund-
vallaratriðum um skynsamlega heilsurækt. Vilmund-
ur landlæknir sagði að þessi barátta væri engan veg-
inn eins óbrotin í eðli og einföld í framkvæmd og hún
virtist í fljótu bragði. Lægi það fremur í eðli okkar
allra en fyrir skilningsskort og tómlæti heilbrigðisyfir-
valda, fjárveitingavaldsins og lækna, að heilsuvernd-
arstarfsemin væri víðast hvar hornreka rúmfrekra
lækninga. Pó hefur nokkuð áunnist og dæmi síðari
tíma sanna að heilsuræktarviðleitni lækna með þekk-
inguna að vopni miðar nokkuð á leið. Það eru nú rétt
20 ár síðan aðalfundur LI samþykkti á Isafirði 1984
að þaðan í frá myndi ekki vera reykt á fundum eða
öðrum samkomum félagsins. Þetta var tímamótasam-
þykkt á þeim tíma og þótti byltingarkennd og nokk-
uð langt gengið með henni af félagsins hálfu. Samt
sem áður liðu ekki mörg ár þar til fyrsta löggjöfin leit
dagsins ljós sem tók á reykingavörnum með alvarleg-
um takmörkunum á rétti fólks til að reykja hvar sem
það lysti. Með því hófst nútímaleg barátta fyrir reyk-
ingavörnum og er ekki séð fyrir enda hennar. Dregið
hefur úr reykingum ákveðinna þjóðfélagshópa, sumir
sjúkdómar sem reykingar eiga þátt í að þróa eru með
vissu á undanhaldi. Umburðarlyndi við opinberum
skorðum við reykingum fer vaxandi. Nú hefur heil-
brigðisráðherra boðað nýtt frumvarp um enn frekari
takmarkanir við reykingum á almannafæri og veit ég
að þorri læknastéttarinnar fagnar þessari viðleitni
ríkisstjórnarinnar og styður hana.
En það eru fleiri verkefnin í þessum víngarði. Við
setningu aðalfundar LÍ fyrir tveimur árum gerði ég
að umtalsefni mikilvægi þess að ofeldi þjóðarinn-
ar yrði gert að sérstöku viðfangsefni með samstilltu
átaki allra þeirra sem málið kynni að snerta og gætu
haft áhrif til umbóta. í framhaldi þess var tillaga um
fyrstu skref ásamt ítarlegum rökstuðningi lögð fyrir
heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis. Var þar í öllu
fylgt staðreyndum og grundvallarþekkingu um lýð-
heilsu, en ekki reynt að kveikja sérstakan áhuga á
tilteknum sjúkdómum. Var erindi læknafélagsins vel
tekið en umræðan greinilega ekki það þroskuð eða sá
áhugi fyrir hendi að nefndin sæi ástæðu til að taka það
upp á arma sína.
Það þýðir þó ekki að Læknafélag íslands hafi lagt
árar í bát. Verkefnið er brýnna en svo. Og ekki rek-
ið í þágu lækna heldur þjóðarinnar. Á dögunum kom
til mín ungur maður á fertugsaldri, maður í blóma
lífsins. Hann kom vegna brjóstþyngsla við áreynslu.
Hann hafði haft hækkaðan blóðþrýsting um árabil.
Hann reyndist hafa hækkaðan blóðsykur og alltof
mikið insúlín í blóði. Þetta kom heim og saman við
þyngdina, því hann reyndist vera 125 kg, en aðeins
rúmur meðalmaður að hæð. Öll vitum við hve bágar
horfur eru á því að þessi maður lifi við góða heilsu
fram á efri ár eins og alla unga menn dreymir um. Öll
vitum við líka að verulegar líkur eru á því að þetta
heilkenni hefði ekki komið fram ef hann hefði haldið
eðlilegum holdum frá táningsaldri. Öll vitum við að
enn hefði hann verulegt gagn af því að snúa við blað-
inu og fresta síðkomnum sjúkdómum eða koma með
öllu í veg fyrir þá án lyfjameðferðar. En best af öllu
hefði verið að þessi staða hefði aldrei komið upp. Ég
gæti nefnt mörg fleiri dæmi af þessu tagi úr mínum
praxís og við þekkjum þetta öll alltof vel.
Til umræðu er á þessum aðalfundi tillaga um að
þjóðin en ekki læknar taki að sér það verkefni að
snúa hér málum til betri vegar. Læknafélag íslands
telur að um verkefni sé að ræða sem er samfélags-
legt í eðli sínu, ekki málefni lækna, ekki málefni sjúk-
linga heldur málefni allra, málefni hinna heilbrigðu
fyrst og fremst til að auka við heilbrigði sína. Og til
þess að ná árangri þarf að útbreiða þekkingu. Ekki
með bægslagangi yfir hverja vaðleysu og aðrar tor-
færur, eins og Vilmundur landlæknir orðaði það svo
vel, heldur öruggri leiðsögn eftir fyrirfram könnuð-
778 Læknablaðið 2004/90