Læknablaðið - 15.04.2005, Side 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEIÐURSFÉLAGAR
Heiðursfélagar í Félagi
íslenskra lyflækna
Á síðasta ári voru útnefndir þrír heiðursfélagar
í Félagi íslenskra lyflækna, þeir Árni Kristinsson,
Páll Ásmundsson og Tryggvi Ásmundsson. Áður
höfðu aðeins tveir lyflæknar verið útnefndir heið-
ursfélagar í Félagi íslenskra lyflækna en þeir eru
Ólafur Sigurðsson, læknir á Akureyri sem nú er
látinn, og Sigurður P. Guðmundsson læknir.
Þann 25. febrúar sl. voru heiðursfélögunum
afhent heiðursskjöl. Ekki reyndist unnt að veita
þeim formlega staðfestingu fyrr þareð félagið
þurfti að skipta um lógó eða merki. Lyfjafyrirtækið
MSD fór fram á þetta þar sem forráðamönnum
fyrirtækisins þótti merki Félags íslenskra lyflækna
líkjast sínu. Stjórn Félags íslenskra lyflækna leitaði
til eins heiðursfélaganna, Páls Ásmundssonar, og
óskaði eftir að hann hannaði nýtt merki. Hann
brást skjótt við og hannaði merki sem stjórn félags-
ins hefur samþykkt og getur það að líta á heiðurs-
skjölunum sem afhent voru.
Félag íslenskra lyflækna telur mikilvægt að
gefa þeim læknum gaum sem sem hafa skarað
fram úr á starfsferlinum og lagt mikið af mörkum
til sérgreinar sinnar eða til félags- og trúnaðar-
starfa í tengslum við fag sitt. Þetta er ekki síst til
að vekja athygli annarra lækna á gildum sem við
teljum þýðingarmikil fyrir lækna og endurspegla
fagmennsku sem þeir eiga að hafa að leiðarljósi í
störfum sínum. Ekkert er mikilvægara fyrir lækn-
isefni og unga lækna sem eru að hefja sérfræðinám
og leggja grunn að starfsferli sínum en góðar fyrir-
myndir.
Allir hafa heiðursfélagarnir verið frumkvöðlar
í sérgreinum sínum hér á landi og einnig haldið
merki almennra lyflækninga á lofti. Þá hafa þeir
lagt ríkulega af mörkum til félagsstarfs innan
sérgreina sinna eða Landspítalans sem var megin-
starfsvettvangur þeirra allra. Þeir hafa verið ötulir
þátttakendur í starfi Félags íslenskra lyflækna á
liðnum árum. Þótt aðrir læknar hafi notið góðs
af verkum þessara ágætu manna eru það fyrst og
fremst sjúklingarnir og í raun íslenskt samfélag
sem mestan ávinning hafa haft af störfum þeirra.
Árni Kristinsson hefur verið frumkvöðull á
sviði hjartalækninga á Islandi undanfarna fjóra ár-
atugi. Störf hans hafa einkennst af fagmennsku og
má segja að hann hafi verið fyrirmynd lyflækna hér
hver sem sérgrein þeirra hefur verið.
Páll Ásmundsson byggði upp nýrnalækningar
og meðferð lokastigsnýrnabilunar á íslandi. Hann
var formaður Félags íslenskra lyflækna 1973-74 og
stóð að fyrsta vísindaþingi Félags íslenskra lyflækna
1973 í samvinnu við Sigurð Þ. Guðmundsson. Páll
hefur verið í fararbroddi í félagslífi lyflækna og
eins konar hirðskáld þeirra um árabil.
Tryggvi Ásmundsson hefur verið í fararbroddi
íslenskra lungnalækna allan sinn starfsferil og
öðrum læknum góð fyrirmynd. Hann hefur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir samtök lækna
og var ritari Félags íslenskra lyflækna 1974-76.
Heiðursfélagar Félags
íslenskra lyflœkna,
talið frá vinstri: Tryggvi
Ásmundsson, Páll
Ásmundsson og Árni
Kristjánsson.
Merki Félags íslenskra
lyflœkna sem Páll
Ásmtmdsson hannaði.
Runólfur Pálsson
Læknablaðið 2005/91 367