Læknablaðið - 15.03.2008, Page 79
A U
G L Ý S I N G
Heilbrigðisstofnun Blönduós
Framkvæmdastjóri lækninga
Starf framkvæmdastjóra lækninga við Heilbrigðisstofnunina Blönduósi er laust til umsóknar. Um fullt starf er að ræða, frá 1. apríl
2008 eða síðar eftir nánara samkomulagi. Leitað er eftir umsækjendum með reynslu af stjórnunarstörfum og sérfræðiviðurkenningu
í heimilislækningum eða annarri sérmenntun sem gagnast í starfi. Áhersla er lögð á hæfni í samskiptum, sveigjanleika, skipulögð
og sjálfstæð vinnubrögð. Laun eru skv. kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðherra.
Umsóknum, sem skila ber á þartilgerðum eyðublöðum, fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-,
vísinda- og stjórnunarstörfum. Umsóknargögnum ber að skila í síðasta lagi 14. mars 2008 til Valbjörns Steingrímssonar, forstjóra,
sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 455 4120 eða 892 1786 eða á valbjorn@hsb.is Jafnframt er bent á
heimasíðu stofnunarinnar www.hsb.is
Um mat á hæfi umsækjanda fer m.a. eftir lögum nr. 40, 27. mars 2007 gr. 35 um stöðunefnd sem byggir m.a. á innsendum
umsóknargögnum en einnig viðtölum við umsækjendur.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningar í störf. Umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi þjónar aðallega íbúum Austur-Húnavatnssýslu. Að jafnaði eru um 80 manns á launaskrá hverju sinni hjá
stofnuninni. Lögð er áhersla á uppbyggingu, skipulag og þróun til móts við nýja tíma. Starfsemin skiptist í almenna heilsugæslu með rekstri
heilsugæslustöðva á Blönduósi og á Skagaströnd, rekstri sjúkra- og hjúkrunarrýma samtals 36 rúm og 10 rýma dvalardeildar. Auk þess sinnir
stofnunin læknisþjónustu á dvalarheimilinu Sæborgu á Skagaströnd.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Flúðabakka 2, 540 Blönduós
Sími 455 4100 - Fax 455 4136
www.hsb.is
LÆKNAblaðið 2008/94 255