Læknablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 62
AUGLÝSINGAR
Aðalfundur
Félags áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar
verður haldinn
laugardaginn 15. mars 2008 kl. 11.00 í
Hringsal Barnaspítala Hringsins
Dagskrá
Hefðbundin aðalfundarstörf
gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins
formaður flytur skýrslu stjórnar
ákvörðun félagsgjalda
önnur mál
Stutt kynning
Teikningar Lækningaminjasafns íslands (arkitektar)
Fyrirlestur
Hildur Gestsdóttir, fornleifafræðingur
Heilsufarssaga Islendinga frá landnámi til 19. aldar
- fornleifaskoðun á mannabeinum
Hildur Gestsdóttir fornleifafræðingur hefur síðan árið 2003 unnið að því
að gera heildstæða meinafræðilega úttekt á íslenskunn mannabeinum
frá landnámsöld og til 18. aldar, með það fyrir augum að leggja grunn að
heilsufarssögu þjóðarinnar og frekari rannsóknum á því sviði. Alls hafa verið
rannsakaðar 344 beinagrindur, þar af 225 úr átta kirkjugörðum og 79 frá 40
mismunandi kumlastöðum. Við þessa rannsókn voru kyn, lífaldur og líkamshæð
greind, varðveisla beingrinda nákvæmlega skráð, hverri einustu meinafræðilegri
breytingu á beinunum lýst, og reynt að nýta þær upplýsingar til að greina
einstaka sjúkdóma. Ber þar helst að nefna hörgulsjúkdóma, gigtarsjúkdóma,
smitsjúkdóma, breytingar af völdum áverka og/eða álags og tannsjúkdóma,
en allt eru þetta sjúkdómar sem ekki veita einungis upplýsingar um heilsufar,
heldur einnig í lifnaðarhætti fólks til forna, mataræði, líkamlegt álag, skyldleika
og samgöngur. Einnig hafa fundist einstök tilfelli af sjúkdómum sem fá tilfelli
eru til í fornum beinum í heiminum, sem veita mikilvægar upplýsingar um þessa
sjúkdóma; má þar til dæmis nefna spastiska lömun af völdum heilablóðfalls,
mergæxli og brjóskkímfrumuæxli. Er þetta í fyrsta sinn á Islandi sem nútíma
beinafræðilegar rannsóknir eru nýttar til að rannsaka heildstætt sjúkdóma í
fornum beinum og hafa niðurstöður úr rannsókninni bætt svo um munar við
læknisfræðilega og fornleifafræðilega þekkingu okkar á íslendingum til forna.
Hildur Gestsdóttir fornleifafræðingur lauk BA prófi (Hons.) í fornleifafræði
frá Háskólanum í Nottingham 1994 og MS í beinafræði og fornmeinafræði
frá háskólanum í Bradford 1998. Hún stundar doktorsnám í fornleifafræði
við Háskóla íslands og nefnist rannsóknarverkefni hennar Gigt á íslandi,
fornleifafræðileg rannsókn. Hildur hefur starfað sem fornleifafræðingur frá árinu
1994, lengst af hjá Fornleifastofnun (slands, og hafa aðalrannsóknarverkefni
hennar snúið að fornleifauppgreftri á kirkjugörðum, fornmeinafræðilegum
rannsóknum á mannabeinum og samsætugreiningu úr tannglerungi til að
rannsaka fólksflutning.
Stjórnin
www. icemed. is/saga/
Auglýsing vegna sölu sumar-
bústaða í eigu Læknafélagsins
Ágætu félagsmenn.
Ákvörðun hefur verið tekin um að selja tvo heilsársbústaði í eigu
félagsins. Jafnframt hefur verið ákveðið að gefa félagsmönnum kost
á að bjóða í bústaðina áður en þeir verða settir í almenna sölu. Fáist
viðunandi verð fyrir bústaðina með þeim hætti verður hæstbjóðanda
úr röðum félagsmanna seldur viðkomandi bústaður. Þegar metið
verður hvert er hæsta boð verður litið til fjárhæðar tilboðs og skil-
mála að öðru leyti.
Þeir bústaðir sem um er að ræða eru annars vegar bústaður félags-
ins í Vaðnesi að Birkibraut 6. Verðmat fasteignasala á bústaðnum
er 20 milljónir, án innanstokksmuna. Hins vegar er um að ræða
bústaður félagsins Mörk í Reykjadal. Verðmat fasteignasala er 13
milljónir, án innanstokksmuna. Æskilegt er að tilboð miðist við að
innanstokksmunir verði keyptir með viðkomandi bústað þótt það
sé ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar um bústaðina er að finna á vefslóðunum:
Birkibraut 6: http://www.lis.is/Orlofsvefur/Bustadur.aspx?ID=4
Mörk: http://www.lis.is/Orlofsvefur/Bustadur.aspx?ID=17
Einnig eru starfsmenn félagsins reiðubúnir til að veita þær upplýs-
ingar sem unnt er.
Tilboðsfrestur er til og með miðvikudagsins 26. mars nk. Þeir sem
áhuga hafa á að skoða bústaðina hafi samband við skrifstofu félags-
ins þar að lútandi. Það athugist að bústaðirnir eru í útleigu um páska
þannig að ekki verður unnt að skoða þá á þeim tíma.
Tilboð sendist skrifstofu félagsins merkt: Orlofssjóður Læknafélags
íslands, tilboð, að Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi. Orlofsnefnd
mun yfirfara tilboðin og áskilur sér rétt til að hafna öllum og setja
bústaðina í almenna sölumeðferð ef viðunandi tilboð fæst ekki.
Tilboðsgjafar verða upplýstir um niðurstöðu orlofsnefndar innan viku
frá lokum tilboðsfrests.
Deildarlæknar í starfsnámi á geðsviði
- umsóknarfrestur til 3. apríl 2008
Lausar eru til umsóknar námsstöður deildarlækna á geðsviði frá
maí eða júní 2008 í 4-12 mánuði. Starfshlutfall 80-100%. Stöðurnar
geta einnig nýst sem hluti af sérnámi í öðrum sérgreinum en
geðlæknisfræði. Handleiðsla, fræðsla og vandamálamiðuð
hópvinna eru hluti af námi deildarlækna á geðsviði auk þess sem
þjálfun í hugrænni atferlismeðferð, reynsla af hópmeðferð og
þátttaka í rannsóknum stendur áhugasömum deildarlæknum til
boða. Stöðurnar geta einnig hentað heimilislæknum sem vilja auka
þekkingu sína á greiningu og meðferð geðsjúkdóma. Upplýsingar
um stöðurnar veita Páll Matthíasson geðlæknir sem hefur umsjón
með framhaldsmenntun unglækna á geðsviði pallmatt@landspitali.
is og Engilbert Sigurðsson yfirlæknir engilbs@landspitali.is
Umsóknargögn berist fyrir 3. apríl 2008 til Páls Matthíassonar,
geðlæknis deild 32A við Hringbraut, pallmatt@landspitali.is.
Hægt er aö nálgast umsókn um lækningaleyfi, sérfræöileyfi eða læknisstöðu, á
heimasíðu Landspítala, á heimasíðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og hjá
Landlæknisembættinu. öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
238 LÆKNAblaðiö 2007/93