Læknablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 75
UMRÆÐUR O G FRÉTTI
LÆKNINGALEYF
Landlæknir gefur út lækningaleyfin
\
Hávar
Sigurjónsson
Til stendur að flytja meðhöndlun umsókna um
lækningaleyfi og útgáfu þeirra frá heilbrigðisráðu-
neytinu yfir til Landlæknisembættisins. Matthías
Halldórsson aðstoðarlandlæknir sagði í samtali
við Læknablaðið að þetta væri í samræmi við
aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um „Einfaldara
ísland" frá október 2006. Frumvarp þessa efnis
var lagt fram af heilbrigðisráðherra á Alþingi í lok
janúar.
„Eðlilegra þykir að hafa þessi mál hjá stofnun,
en ekki ráðuneyti. Sá háttur er hafður á hinum
Norðurlöndunum. Þetta þykir líka mikilvægt
vegna réttaröryggis. Hægt er að kæra niðurstöðu
landlæknis til ráðherra. Eftir þetta verða afrit
áminninga landlæknis ekki sendar til ráðherra,
eins og hingað til hefur tíðkast.
Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði að lögum
1. mars. Landlæknisembættið hefur auglýst eftir
lögfræðingi. Umsóknarfrestur rann út 11. febrúar
og barst nokkur fjöldi umsókna. Gert er ráð fyrir
að ráða í starfið á næstu vikum, en lögfræðing-
urinn mun einnig koma að kvörtunum og kærum
og öðrum verkefnum á lagasviði/' sagði Matthías
Halldórsson.
Fyrir um ári síðan fjallaði Læknablaðið um
útgáfu sérfræðileyfa og komu þar fram hvassar
athugasemdir úr röðum lækna um að herða beri
reglur um útgáfuna og setja skýrari kröfur. Nefnd
á vegum heilbrigðisráðuneytisins var skipuð á
sínum tíma en samkvæmt upplýsingum blaðsins
hefur nefndin ekki komið saman undanfarin miss-
eri og málið „lítið þokast" eins og einn viðmæl-
andi Læknablaðsins orðaði það.
Fréttatilkynning frá Hópi áhugafólks um bata frá átröskun
Átröskun sem fíkn
Dagana 7.-9. mars næstkomandi er von á kan-
adíska lækninum Joan M. Johnston til íslands.
Hún er heimilislæknir og hefur sérhæft sig í át-
röskunum. Hún hefur starfað sem læknir frá árinu
1975 en hefur auk þess persónulega reynslu af át-
röskun. Joan hefur gefið út bækur og fræðigreinar
um efnið og í bók sinni Feast of famine lýsir hún
því hvernig hún fékk bata frá átröskun með 12
spora kerfinu. Hún er talsmaður þess að þeir sem
þjáist af átröskun noti 12 spora prógrammið sam-
hliða heilbrigðisþjónustu.
Joan var einn af stofnendum samtakanna
SACRED (Society for Assisted Cooperative Re-
covery from Eating Disorders) sem stofnuð voru
1996 og reka meðferðarstofnun fyrir anorexíu-
og búlimíusjúklinga. Joan er heilbrigðisráðgjafi
SACRED og stýrir meðferðarprógrammi samtak-
anna, samhliða því að reka eigin læknastofu fyrir
sjúklinga með átröskun.
Frá 1992 hefur Joan haldið fyrirlestra um át-
röskun um allan heim. Þar byggir hún á hug-
myndum um átröskun sem fíkn og deilir með
áheyrendum bæði margra ára faglegri reynslu og
sinni eigin sögu. Hópur áhugafólks um bata frá át-
röskun stendur fyrir komu hennar til Islands. Hún
heldur fyrirlestur laugardaginn 8. mars fyrir alla
sem hafa áhuga á málefninu, þolendur, fjölskyldur
og vini, sem og alla fagaðila á þessu sviði.
LÆKNAblaðið 2008/94 251