Læknablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 46
U M R Æ Ð U R
F í H 3 0 Á R A
O G
F R É T T I R
Vandað sérnám í heimilislækningum
Hávar Skipulagt sérnám í heimilislækningum hefur
Sigurjónsson verið í boði á íslandi frá árinu 1995. A hverjum
tíma hafa verið á þriðja tug lækna í sémáminu.
Alls hafa um 50 læknar útskrifast úr sémámi í
heimilislækningum hérlendis og vekur athygli
að skipting milli kynja er nánast hnífjöfn.
Á nýafstöðnum Læknadögum var haldin sér-
stök málstofa þar sem framhaldsnám í sérgreinum
sem er í boði hérlendis var kynnt sérstaklega.
Auk heimilislækninganna er boðið upp á sémám
í lyflækningum og geðlækningum. Árið 1991 var
stofnuð prófessorsstaða í heimilislækningum við
læknadeild HÍ og hefur Jóhann Ágúst Sigurðsson
gegnt henni frá upphafi.
Félag íslenskra heimilislækna er 30 ára á þessu
ári og eitt af þeim verkefnum sem félagið hefur
ráðist í af því tilefni er að gefa út öðm sinni
marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum en
fyrsta marklýsingin kom út 1995. Auk marklýsing-
arinnar, sem er veglegt rit upp á 140 blaðsíður, var
Alma Eir Svavarsdóttir sérfræðingur í heimilislækningum.
ráðist í gefa út tvö fylgirit, Staðal fyrir starfsemi og
starfsaðstöðu heimilislækna og Hugmyndafræði
heimilislækninga - Tilraun eftir Ólaf Mixa. Útgáfa
þessi er hin veglegasta og markar tímamót að
mörgu leyti.
Vinna við endurskoðun fyrri marklýsingar
hófst vorið 2004 og var Alma Eir Svavarsdóttir
fengin til að gegna formennsku ritnefndar heim-
ilislækna. í nefndinni sátu, auk Ölmu, Erla Gerður
Sveinsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Katrín
Fjeldsted, Ólafur Mixa, Ólafur Stefánsson og
Sigurður Halldórsson ásamt Hörpu Hauksdóttur
ritara. Margir fleiri lögðu hönd á plóginn og alls
lögðu 32 heimilislæknar til skrif í marklýsinguna
auk nefndarmanna.
Enn mikill skortur á heimilislæknum
Margar spurningar vakna þegar svo mikið er í
lagt til að halda úti sémámi í heilli grein lækn-
isfræðinnar hérlendis og Alma Eir sem gegnir
stöðu kennslustjóra í heimilislækningum við
Læknadeild HÍ varð fyrir svömm.
Hvers vegna þykir mikilvægt að nám í heimilislækn-
ingumfari fram á íslandi?
„Það er gífurlega mikilvægt af ýmsum ástæð-
um. í fyrsta lagi er nú þegar mikill skortur á heim-
ilislæknum og verra verður það á næstu ámm, en
þá munu stórir árgangar starfandi heimilislækna
fara á eftirlaun og þá verðum við að hafa mann-
skap til að taka við. Núverandi skortur stafar
meðal annars af því að um nokkurra ára skeið,
einkum fyrir árið 2000, fóru fáir í þessa sérgrein.
Það eru margar ástæður fyrir því að menn sóttu
ekki í heimilislækningar á sínum tíma, meðal
annars voru heimilislæknar ekki á sambærilegum
launum og aðrir sérfræðingar, einnig fóm kandí-
datar ekkert á heilsugæslustöðvar á kandídatsári
sínu og svo var ekki kominn formlegur strúktúr
á sérnámið hér heima. Þessar forsendur hafa allar
breyst. Nú erum við með sama samning og sjúkra-
húslæknar, kandídatar dvelja nú að lágmarki þrjá
mánuði á heilsugæslu á kandídatsári og fá þannig
að kynnast því margbreytta og metnaðarfulla
starfi sem þar fer fram.
í öðm lagi má nefna að sérnám hér á landi
verkar hvetjandi á kollegana sem fyrir em í starf-
inu, eykur starfsáhuga og vonandi starfsgleði allra
222 LÆKNAblaðið 2007/93