Læknablaðið - 15.12.2011, Page 4
12. tölublað 2011
LEIÐARAR
FRÆÐIGREINAR
671
Tómas Guðbjartsson
Læknablaðið í sókn -
nýjar leiðbeiningar til
höfunda fræðigreina
Læknablaðið er með elstu
vísindaritum á íslandi og fylgir
reglum alþjóðlegra læknatímarita
til að tryggja að allt efni fái faglega
umfjöllun sérfræðinga. Nýjar
leiðbeiningar um ritun fræðigreina
eiga að styrkja blaðið og verða
mönnum hvatning til að senda
slíkt efni til blaðsins.
673
Guðmundur Þorgeirsson
Meðal 300 bestu -
hlutur læknadeildar
Á 100 ára afmæli læknadeildar og
250 ára afmæli upphafs lækna-
kennslu á Islandi liggur fyrir að
deildin stenst alþjóðlegan sam-
anburð í kennslu og rannsóknum.
Nýlega barst sú frétt að Háskóli
íslands væri í hópi 300 bestu
háskóla í heiminum. Þetta var
óneitanlega glæsileg afmælisgjöf!
675
Árún K. Sigurðardóttir, Sólveig Ása Árnadóttir, Elín Díanna Gunnarsdóttir
Lyfjanotkun eldri íslendinga sem búa heima. Lýð-
grunduð rannsókn í dreifbýli og þéttbýli
Rannsóknin gefur mikilvægar upplýsingar um lyfjanotkun og hvernig fjöldi
lyfja, fjöllyfjanotkun og lyf úr mismunandi ATC-lyfjaflokkum tengjast búsetu.
Flókin tengsl eru milli lyfjanotkunar og áhrifaþátta sem varða aldur, kyn, um-
hverfi, færni og heilsu eldra fólks.
681
Sverrirl. Gunnarsson, Kristinn B. Jóhannsson, Marta Guðjónsdóttir, Steinn
Jónsson, Hans J. Beck, Björn Magnússon, Tómas Guðbjartsson
Árangur lungnasmækkunaraðgerða við langvinnri
lungnaþembu á íslandi
Merki um lungnateppu hafa mælst hjá 18% íslendinga sem komnir eru yfir
fertugt. Þegar sjúkdómurinn er kominn á alvarlegt stig getur þurft að beita
svokallaðri lungnasmækkunaraðgerð, einkum hjá þeim sem hafa ofþenslu
á lungum og sjúkdóm bundinn við efri blöð lungna.
687
Guðmundur Vignir Sigurðsson, Ásgeir Haraldsson, Jón R. Kristinsson
Úlfur, úlfur
Rauðir úlfar er sjaldgæfur sjúkdómur meðal barna. Greiningin er oft gerð um
12-14 ára aldur, stúlkur eru í 3-5 sinnum meiri áhættu. Fyrstu einkenni eru
oft ósértæk, svo sem þreyta, bein- og vöðvaverkir, kraftleysi og þyngdartap.
Húðútbrot, sérstaklega kinnbeinaútbrot (Malar rash) í andliti og liðverkir eru
helstu birtingarformin.
691
Júlíus Kristjánsson, Sigurður Guðmundsson
Vanræktir sjúkdómar þróunarlanda - yfirlit
Hér er lýst smitleiðum, faraldsfræði og áhrifum nokkurra vanræktra sjúk-
dóma þróunarlanda ásamt forvörnum og meðferð. Þeir sem smitast af þeim
búa við lakar þjóðfélagsaðstæður og fá sjaldan viðunandi heilbrigðisþjón-
ustu. Sjúkdómarnir eru algengir og í samanburði við HIV, malaríu og berkla
má kalla þá vanrækta þareð fjármagn til rannsókna er ekki í hlutfalli við
sjúkdómsbyrði. Lausnin felst í að bæta lífskjör og baráttu við sjúkdómana.
ísland hefur þar hlutverki að gegna.
699
Tómas Guðbjartsson, Anna Gunnarsdóttir, Engilbert Sigurðsson
Leiðbeiningar fyrir höfunda
fræðilegs efnis í Læknablaðinu
668 LÆKNAblaðið 2011/97