Læknablaðið - 15.12.2011, Page 30
Y F I R L I T
lifað í allt að 15 ár. Þær geta valdið krabbameini í lifur, görnum og
þvagblöðru, auk vitsmunaskerðingar. Algengi er að minnsta kosti
200 milljónir, um 120 milljónir einstaklinga eru með einkenni og
20 milljónir alvarlega veikir. Um 97% sýktra búa í Afríku.1315 Aðrar
gerðir schistosoma sýkja aðeins dýr en geta valdið sundmannakláða
í mönnum og hafa meðal annars fundist hérlendis!6
Augnyrja (trachoma) er bólga í hornhimnu og slímhúð augans.
Hún stafar af síendurteknum smitum af bakteríunni Chlamydia
trachomatis, gerðum A-C, í umhverfi þar sem hreinlæti er ábóta-
vant. Algengi er um 85 milljónir og um 1,3 milljónir manna verða
blindir á hverju ári, mest megnis í Afríku og Mið-Austurlöndum.917
Leishmaniasis er sjúkdómur af völdum nauðbundins innan-
frumu frumdýrs (obligate intracellular prolozoa) sem smitast með
biti sandflugna. Sársaukalaus sár myndast á húð, slímhúð og inn-
yflum. Algengi er um 12 milljónir, dánartíðni um 70.000 á ári.
Sjúkdómurinn er nú tíður sem tækifærissýking með HIV í Suður-
Evrópu. Hann finnst í 88 löndum, þar af eru 72 þróunarlönd!8-19
Annað frumdýr, Trypanosoma cruzi, smitast með biti blóð-
sjúgandi skordýra og veldur Chagas-sjúkdómi (Chagas disease)
sem einkennist af langvinnum hjartavöðvakvillum og maga- og
garnasjúkdómum í um 30% smitaðra. Algengi er um 15 milljónir
og dánartíðni um 20.000 á ári, hæst í Suður-Ameríku.3-20
Beinbrunasótt (dengue fever) af völdum dengue-veiru veldur
blæðingum í sinni svæsnustu mynd. Rannsóknir benda til að
almennt skipi sjúkdómurinn sama sess og berklar og malaría
hvað varðar samfélagsleg áhrif. Nýgengi er að aukast og eru nú
um 100 milljón tilfelli á hverju ári, þar af eru 500 þúsund tilfelli
alvarlegra fylgikvilla og um 20 þúsund dauðsföll. Líklegast má
rekja þá aukningu til fólksfjölgunar, þéttbýlismyndunar og bættra
skilyrða fyrir smitbera (vector), sem í flestum tilvikum er moskító-
flugan Aedes aegypti. Beinbrunasótt er algengust í Suður-Ameríku
og Suðaustur-Asíu, en auk áhrifa sinna þar er hún líka orðin einn
algengasti sjúkdómurinn í alþjóðlegum ferðalöngum.5-21
Niðurgangssjúkdómar eru oftast af völdum veira, en geta líka
verið af völdum baktería og frumdýra. Þeir valda frekar dauða en
aðrir VSÞ vegna meðfylgjandi salt- og vatnstaps, þá sérstaklega
hjá börnum. Talið er að 2,5 milljónir manna látist á hverju ári úr
niðurgangi sem er nú í fimmta sæti yfir helstu orsakavalda dauða
í heiminum. Niðurgangur er þriðja algengasta dánarorsök barna
yngri en fimm ára í heiminum, en 600 sinnum fleiri börn deyja í
þróunarríkjum en á Vesturlöndum.3-22'24
Buruli-sár, holdsveiki, dracunculiasis, mýgulusótt (yellow fever),
himberjasótt (yaws) og höfgasótt af völdum Trypanosoma brucei
(african sleeping sickness) eru dæmi um sjaldgæfari VSÞ. Þeir valda
engu að síður miklum sjúkdómseinkennum, oft á tíðum ör-
kumlum, án þess að valda dauða. Algengi þessara sjúkdóma er
frá nokkrum þúsundum upp í hundruð þúsunda, en oft er algengi
þeirra óþekkt stærð.9-25-27
Af þessu stutta yfirliti er ljóst að um afar fjölbreyttan hóp sjúk-
dóma er að ræða og faraldsfræði innan hópsins er misjöfn. Hins
vegar eiga þeir svo margt sameiginlegt að það er auðveldara en
ekki að fjalla um þá sem hóp.
Faraldsfræði og sjúkdómsbyrði
Talið er að minnst milljarður manna séu sýktir af umræddum
sjúkdómum í dag.3 Algengi, nýgengi og dánartíðni eru þó afar mis-
jöfn milli sjúkdóma en einnig vantar upplýsingar um faraldsfræði
nokkurra þeirra. Þá skal einnig bent á að tölur um algengi VSÞ eru
taldar vanmetnar sökum ófullnægjandi skráninga.4-9 Sumir sjúk-
dómanna eru að hverfa, þökk sé skipulögðu átaki og heppilegum
lífsferlum sýkils. Aðrir eru að aukast á ný eftir að hafa verið í lægð
í mörg ár, enn aðrir eru stöðugir sem endranær!1-28-29 Sem hópur
valda sjúkdómarnir tæpum þremur milljónum dauðsfalla á ári og
sjúkdómsbyrði þeirra er metin allt að 94 milljónir heilbrigðra ára
sem tapast af lífi smitaðra einstaklinga (disability-adjusted life years,
DALY)? DALY-kerfið magngreinir sjúkdómsbyrði út frá reikni-
formúlu þar sem meðal annars er notast við lífslíkur í samfélagi,
nýgengi ákveðins sjúkdóms og fjölda dauðsfalla smitaðra.30 Vegna
þess að sjúkdómarnir valda, bæði beint og óbeint, örorku og skerð-
ingu lífsgæða þeirra sem smitast miklu frekar en dauða, hefur
DALY-kerfið ekki þótt nægilega gott matstæki fyrir þess háttar
króníska sjúkdóma í fátækum samfélögum þar sem lífslíkur eru
lágar. Engu að síður er sjúkdómsbyrði vanræktra sjúkdóma, reikn-
uð í DALY, í einstaka tilvikum hærri en HIV, malaríu og berkla.3
Lífsgæðaskali (quality-adjusted life ycars; QALY) sem byggist á við-
tölum við smitaða hópa, spurningalistum og sjónrænum skölum
(visual analog scale) er talinn geta metið betur áhrif sjúkdóma eins
og VSÞ, jafnt bein sem óbein, en er mun erfiðari og dýrari í fram-
kvæmd.4
Einn stærsti sameiginlegi þáttur sjúkdómanna er sjúklinga-
hópurinn. Algengi smita er hæst í fátækum hitabeltislöndum sem
falla í flokk þróunarlanda hjá Alþjóðabankanum. Flest þeirra eru
í Afríku en mörg eru einnig í öðrum heimsálfum, svo sem Suður-
Ameríku, Suðaustur-Asíu og í Mið-Austurlöndum. Þar myndast
kjöraðstæður fyrir framgang helstu smitbera og þroskun sníkla.
Þó er VSÞ einnig að finna í ríkjum utan hitabeltis, svo sem í Mið-
Asíu og Suður-Evrópu, og eru þar vaxandi vandamál!9-31 Það eru
langoftast þeir sem búa við hvað verstar félagshagfræðilegar að-
stæður sem smitast. Sá hópur býr við lélegt aðgengi að hreinu
vatni, óviðunandi hreinlætisaðstöðu og litla heilsugæslu, auk
slæms húsakosts. Allir þessir þættir gera smituðum erfiðara um
vik að leita sér lækninga og auka verulega smithættu. Því geta
margir einstaklingar verið smitaðir af fleiri en einum sjúkdómi í
einu.2-4-11-17
Þessi sjúklingahópur á síður kost á að borga fyrir helstu for-
varnir eða meðferð. Jafnvel þeir tekjuhæstu í samfélaginu geta átt
erfitt með að standa straum af kostnaði, búi þeir í þróunarríki. Þar
má nefna að í Ghana árið 2003 kostaði meðferð við Buruli-sárum
242% af meðalárstekjum fátækasta hóps samfélagsins og 94% af
meðalárstekjum þess ríkasta.2 En aðrir þættir en beinharðir pen-
ingar skipta máli þegar kemur að því að leita sér meðferðar. Sem
dæmi má nefna langar vegalengdir frá heimili að heilsugæslu eða
spítala, tímalengd meðferðar, meðferðarmáta og fjölda skipta. Ef
þessir þættir eru óhagstæðir, geta þeir valdið því að sjúklingurinn
getur eða vill ekki ljúka meðferð að fullu. Það viðheldur smithættu
í samfélaginu og eykur líkur á viðnámi gegn lyfi sem er fyrsta
val (first-line)!9 Einnig hefur verið sýnt fram á verri árangur og
mætingu smitaðra barna í skóla og neikvæð áhrif á efnahagslega
afkastagetu smitaðra fullorðinna einstaklinga. Þar að auki geta
nokkrir sjúkdómanna lagst á húsdýr (zoonosis).1129 Þannig geta
sjúkdómarnir haft langtímaáhrif á afkomu smitaðra og fjölskyldur
þeirra.5 Þar fyrir utan geta smitaðir átt á hættu að missa vinnu
vegna örkumla af völdum sjúkdómsins eða útskúfunar úr samfé-
694 LÆKNAblaðið 2011/97