Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 46

Læknablaðið - 15.12.2011, Side 46
UMFJÖLLUN O G GREINAR „Þegar alll er dregið samati þá má segja að snemma beygist krókurinn þar sem ég hef enn ánægju af því sama og í barnæsku, lestri oggrúski afýmsu tagi." smásmugulegri yfirheyrslu. Smám saman fór ég þó að hafa meira gaman af Jóni og lærði að meta lævísa kímni hans. Hann var virtur fræðimaður og lét eftir sig ágæt ritverk. Davíð Davíðsson prófessor kenndi lífeðlisfræði og lífefnafræði á öðru og þriðja ári. Davíð var listrænn, músík- alskur, kíminn og orðheppinn, stríðinn, hugmyndaríkur og vel að sér í fræðunum, en óskipulagður, dómharður og dyntóttur. Við áttum reyndar eftir að verða miklir vinir. Fyrirkomulag námsins í læknadeildinni var grimmilegt að því leyti að ef nem- endur stóðust ekki próf að loknu þriðja árinu varð að byrja alveg frá byrjun að nýju eða hverfa frá læknanámi. Margir fóru illa á þessu. Síðasti hluti námsins var mun skemmtilegri, þar sem við dvöldum á ýmsum deildum spítalanna og nutum leiðsagnar sérfræðinga á hverju sviði. Það er þó ólíku saman að jafna við spítala- kennslu í dag, þar sem skipulag og klínísk þjálfun er í miklu betra horfi. Við vorum meira og minna áhorfendur að vinnu sér- fræðinganna. Þó var það ólíkt skemmti- legra en þurrir fyrirlestrar og yfirheyrslu- form kennslunnar fyrstu árin." Hjartalækningar í Bretlandi og Bandarikjunum Að loknu kandídatsári og héraðsskyldu hóf Þórður framhaldsnám við hjartadeild Hammersmith-sjúkrahússins í London í ársbyrjun 1970 undir leiðsögn Johns F. Goodwin og Celiu Oakley. „Þau voru álitin meðal fremstu sérfræðinga Bret- lands í hjartalækningum og læknar um allt Bretland sendu þeim sjúklinga með vandráðin sjúkdómseinkenni. Ómskoð- anir voru á frumstigi og enn stuðst að mestu við hefðbundna læknisskoðun við sjúkdómsgreiningu. Sjúklingahópurinn á hjartadeild Hammersmith Hospital var fjölbreyttur og allt annað en tilbreytingar- laus." Samhliða starfi á hjartadeild sjúkra- hússins lagði Þórður grunn að doktors- verkefni sínu sem fjallaði um slagbilsskeið í hjarta. Doktorsvörnin fór fram í febrúar 1974 og eftir það fór Þórður að leggja drög að frekara rannsóknarstarfi og framhalds- námi í Bandaríkjunum. „Það kom ýmislegt til greina í þessu sambandi en niðurstaðan varð sú að ég fékk stöðu aðstoðarlæknis við Baylor College of Medicine við Methodist Ho- spital í Houston í Texas og við Sólrún konan mín fluttum þangað sumarið 1974. Það var mikill áfangi í mínum huga að komast til Houston en töfraljómi lék á þessum árum um háskólasjúkrahúsið þar, einkum á sviði hjartaskurðlækninga. Þar voru tveir frægustu hjartaskurðlæknar heims, Michael Debakey og nemandi hans, Denton Cooley, en þeir sátu ekki á sátts höfði. Hjartaígræðsluaðgerðir voru þá nýjar af nálinni og gerðust þeir fjandvinir stórvirkir á þeim vettvangi. Þótt hróður lyflækna í Houston væri ekki sambærilegur við orðstír skurðlæknanna, þótti mér heillandi tilhugsun að leita nýrra viðhorfa og vitneskju í þessari ungu og auðugu olíuborg." í Houston dvaldi Þórður í eitt ár við læknisstörf og rannsóknir og kynntist því sem efst var á baugi í hjartalækningum í heiminum. „Ég kynntist þarna mörgu úrvalsfólki þótt stórkanónurnar stigju ekki niður af stalli sínum. Mestur hluti starfs míns fór fram á rannsóknastofu í hjartasjúkdómum en ég var oft á ráðgef- andi vakt á hjartadeildum. Þarna var þá stærsta hjartagjörgæsludeild í heimi með 56 rúmum og 12 skurðstofum. Debakey fór á milli skurðstofanna og gerði vanda- sömustu inngripin. Menn óttuðust hann svo að sumum lá við öngviti ef hann yrti á þá. Hann rak menn umsvifalaust vegna minnstu yfirsjóna og hann þoldi alls ekki að honum væri sagt frá fylgikvillum eftir aðgerðir hans, og enn síður dauðsföllum. Fyrir kom að undirmenn hans földu nýlátna sjúklinga í lyftum eða þvottaher- bergjum þegar von var á karli. Dvölin í Houston var lærdómsrík og áhugi minn á að stunda rannsóknir fékk nokkurn byr, en þó langaði mig að komast að á stofnun sem hafði á sér meiri rannsóknabrag. Ég sótti því um starf við lyflækningadeild háskólasjúkrahússins við University of California í San Diego. Það kom fljótt á daginn að umskiptin voru jákvæð því að verkefnin og aðstaðan sem mér var búin hentaði mér fullkomlega. 710 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.