Læknablaðið - 15.12.2011, Page 53
A F AÐALFUNDI
Nilsson segir að fyrir tæpum 20 árum
hafi verið gerð róttæk breyting á þjónustu
við aldraða í Svíþjóð. „Þá var flestum
stofnunum og elliheimilum lokað og á
hverju ári síðan hefur hjúkrunarrýmum
fyrir aldraða á stofnunum fækkað. Áhersl-
an er á að fólk geti verið heima hjá sér
eins lengi og hægt er og geti fengið bæði
félagslega þjónustu og jafnvel hjúkrunar-
þjónustu að nokkru leyti heim til sín. Þetta
er bæði hagkvæmara fyrir þá sem veita
þjónustuna og betra fyrir þá sem þiggja
hana. Margir hinna öldruðu þurfa margs
konar heilbrigðisþjónustu. Við teljum að
það sé óhagkvæmt að veita hana á sjúkra-
stofnunum heldur sé hagkvæmasta leiðin
að veita hana í heimaþjónustu og hafa
hana alla á hendi eins aðila en ekki tveggja
eða fleiri."
Nilsson segir að vissulega þurfi að
veita hjúkrunarþjónustu á stofnunum
fyrir þá veikustu meðal aldraðra. „Það er
eins og með alla sem eru veikir. En það
á ekki að setja fólk á stofnun aldursins
„Þaö virkar mjög hvetjandi á alla
aðila að með bættri þjónustu megi
spara vcrulegar fjárliæðir," segir Eva
Nilsson B&genholm um breytingar í
þjónustu við aldraða í Svíþjóð.
vegna, heldur einungis ef það er of veikt
til að vera heima. Þetta er ekki mjög stór
hópur í rauninni og heilsufar aldraðra
verður sífellt betra. Það má skipta fólki
á eftirlaunaaldri í þrjá hópa. Fámenn-
asti hópurinn eru þeir sem þurfa mesta
þjónustu vegna veikinda, og eðli málsins
samkvæmt er þetta dýrasti hópurinn
og þarna er hægt að endurskipuleggja
þjónustuna hvað mest. Annar hópurinn
eru þeir sem þurfa nokkra læknisþjónustu
og einhverja félagslega þjónustu en sjá um
sig sjálfir að mestu leyti. Þriðji hópurinn
er sá sem er heilsuhraustur og þarf mjög
litla læknisþjónustu og nánast enga félags-
lega þjónustu. í fyrsta hópnum eru um
300.000 manns, 3% sænsku þjóðarinnar,
og við teljum að þjónustan við þennan hóp
sé ómarkviss og hana megi bæta verulega
með því auka heimaþjónustu og draga úr
sjúkrahúsvistun. Meginmarkmiðið er að
bæta þjónustuna en það virkar mjög hvetj-
andi á alla aðila að með bættri þjónustu
megi spara verulegar fjárhæðir. Við höfum
dæmi úr litlu sveitarfélagi þar sem þessu
hefur þegar verið hrint í framkvæmd og
árangurinn er ótrúlegur þar sem kom í
ljós að sjúkranóttum fækkaði um 80%
samhliða því að hinir öldruðu voru mun
ánægðari með þjónustuna."
LÆKNAblaðið 2011/97 717