Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.2012, Qupperneq 44

Læknablaðið - 15.04.2012, Qupperneq 44
LYFJAEFTIRLIT Markmiðið er markvissari lyfjaávísanir Lyfjaeftirlit landlæknis hefur eflst til muna á síðasta ári ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Hjá landlæknisembættinu starfar nú þriggja manna teymi við lyfjaeftirlit, þau Magnús Jóhannsson læknir, Ingunn Björnsdóttir lyfjafræðingur og Ólafur B. Einarsson líffræðingur og verkefnisstjóri um lyfjagagnagrunn. Þau segja bætt lyfjaeftirlit byggjast á góðu samstarfi við lækna en rafræn sjúkra- og lyfjaskrá á landsvísu sé það sem beðið er eftir. „Lyfjagagnagrunnurinn komst í gagnið árið 2006 og eftirlit með honum var hluta- starf okkar Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis þar til hann hætti störfum hjá embættinu og ég sinnti þessu einn þar til í fyrra að Magnús og Ingunn komu hingað til starfa. Með því má segja að lyfjaeftirlit byggt á lyfjagagnagrunni hafi aukist verulega," segir Ólafur í upp- hafi. Hann segir að mikil vinna hafi farið í að byggja upp gagnagrunninn, gera hann nothæfan og skilvirkan og semja eftirlits- handbók. „Við erum enn að sníða viðmótið að þörfum eftirlitsins. Við gerum útttektir á þriggja mánaða fresti og skoðum út- skriftir á lyfjum í ákveðnum flokkum, aðallega ávanabindandi lyfjum en þar undir eru 130 lyfjaheitisnúmer. Aðal- vandi okkar er þó að koma trúnaðarupp- lýsingum til læknanna þar sem við höfum ekki upplýsingar um starfsstöðvar lækna og boðleiðir eru takmarkaðar. Það eru ekki allir læknar jafn hrifnir af því að fá bréf í ábyrgðarpósti þessa efnis heim til sín." Magnús bætir því við að læknar skipti oft um starfsstöð og upplýsingar um slíkt séu því fljótar að úreldast. „Það er hvergi haldin skrá yfir þetta og okkar eina leið til að koma viðkvæmum upplýsingum til lækna er oft að senda þeim bréf. Slík bréf innihalda oft upplýsingar með nöfnum skjólstæðinga sem koma upp í eftirliti. Við viljum ekki senda bréf með slíkum upplýs- ingum í almennum pósti eða á fjölmennan vinnustað þar sem læknirinn er hættur eða kemur mjög stopult á." Ingunn segir að ábendingar til læknanna snúist oft um að tilteknir sjúklingar virðist flakka á milli lækna og fá margfalda skammta af ávanabindandi lyfjum. „Læknarnir geta ekki séð hvort sjúklingurinn hefur fengið lyfseðil með sama lyfi hjá öðrum lækni en við sjáum það og bendum þeim á það." Vantar samræmda sjúkra- og lyfjaskrá Hér er auðvitað tæpt á því máli sem læknar hafa hvað hatrammast barist fyrir að komist í gagnið, en það er samræmd sjúkra- og lyfjaskrá á landsvísu. Þannig gætu þeir séð hvaða lyfjum aðrir læknar eru að ávísa og hagað sínum ávísunum í samræmi við það. „Þetta snýst ekki nema að mjög litlu leyti um misnotkun lyfja heldur einfaldlega betri læknisfræði," seg- ir Magnús og leggur áherslu á að í sam- ræmdri rafrænni sjúkra- og lyfjaskrá fyrir allt landið verði heilmikið af þessum upp- lýsingum. „Þar að auki væri æskilegt að læknar hefðu aðgang að lyfjagagnagrunn- inum í dag og gætu séð hvort sjúklingar þeirra eru að fá lyfjum ávísað annars staðar. Það er auðvitað gagnlegt, jafnvel þó þeir sæju ekki nöfn hinna læknanna. Það myndi eflaust hafa áhrif á ákvörðun læknisins ef hann sæi að sjúklingurinn er að fá sama lyf hjá 13 öðrum læknum eins og dæmi eru um þó það sé ekki algengt." Þau segja að áherslur þeirra við lyfja- eftirlitið hafi beinst að því að finna þá ein- staklinga sem eru að fá ávanabindandi lyf hjá mörgum læknum en einnig að finna þá lækna sem telja verður að ávísi slíkum lyfj- um í óhófi. „Við getum varað læknana við þessum sjúklingum og haft samband við þá sem við teljum að séu að ávísa í óhófi. Oftast er það gert í góðri trú læknisins og við getum þá hjálpað þeim að draga úr lyfjaávísunum til þessara einstaklinga." Þau benda á að misnotkun ávana- bindandi lyfja og blekkingaleikur fíkla gagnvart læknum sé ekki séríslenskt fyrirbrigði. „Það hefur verið rannsakað í Svíþjóð að 1-2% þeirra sem fá ávísað ávanabindandi lyfjum eru að misnota þau og/eða selja öðrum." Eitt af því sem þau leggja áherslu á er að trúnaðarsamband læknis og sjúklings er á ábyrgð beggja. „Sjúklingur sem svíkur lyf út úr lækni með blekkingum er að brjóta trúnað. Læknirinn má ekki treysta sjúklingi í blindni og ber að leita eftir merkjum um ávana eða fíkn þegar um slík lyf er að ræða." Upplýsingar í lyfjaeftirliti eru ekki eingöngu komnar úr lyfjagagnagrunni. í eftirliti eru einnig skoðaðar rann- sóknarniðurstöður krufningarsýna vegna dauðsfalla sem rekja má til misnotkunar eða ofnotkunar lyfja. Þá eru innlagnir á bráðadeildir vegna eitrana eða ofskömmt- unar ávanabindandi lyfja skoðaðar en vegna slíkra tilfella eru kannaðar ávísanir til fólksins 90 dögum fyrir andlát eða inn- lögn. „Auk þess fáum við fullt af ábend- ingum úr ýmsum áttum frá almenningi, lögreglu, læknum og lyfjafræðingum sem er allt mjög gagnlegt." Aðspurð um hvort eftirlitið beinist nær eingöngu að notkun ávanabindandi lyfja, segja þau að svo hafi verið nær eingöngu undanfarið ár. Astæðuna megi að nokkru leyti rekja til aukinnar umræðu í samfé- laginu um þetta en heilbrigðisyfirvöldum hafi verið kunnugt um vandann talsvert fyrr og ráðstafanir hafi þegar verið komn- ar til framkvæmda áður en umræðan hófst 236 LÆKNAblaðið 2012/98
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.