Þjóðlíf - 01.05.1989, Blaðsíða 43
MENNING
Hvað gerð-
ist í gær?
Alþýðuleikhúsið sýnir um þessar
mundir leikritið „Hvað gerðist í
gær?“ sem byggt er á endurminn-
ingabók Isabellu Leitner, en hún
er ungverskur gyðingur sem lifði
af Auschwitz.
Guðiaug María Bjarnadóttir
fer með hlutverk Isabellu í verk-
inu, en Guðrún Bachmann
þýddi. Aðrir sem standa að sýn-
ingunni eru: Lárus H. Grímsson
(tónlist), Egill Örn Árnason (lýs-
ing), Viðar Eggertsson (leik-
mynd), Erla B. Skúladóttir (að-
stoðarleikstjóri) og Gerla
(leikstjóri). Sýningin og leikur
Guðlaugar Maríu hafa fengið lof
gagnrýnenda og er reiknað með
að sýningar standi fram á vorið.
Boðskapur verksins er „að elska
lífið, virða manneskjuna og að
hata aðeins eitt — stríð“. íslenska
þýðingin á verkinu er prentuð í
heild í vandaðri leikskrá.
—ó
Hund-
heppinn
Nemendaleikhús Leiklistarskóla
íslands æfir nú nýtt íslenskt leikrit
eftir Ólaf Hauk Símonaron, sem
heitir Hundheppinn. Pétur Einar-
sson leikstýrir verkinu og bún-
inga hannar Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir og Þórunn Sveins-
dóttir. Ólafur Örn Thoroddsen
sér um tæknimál og lýsingu.
Hundheppinn er lokaverkefni
Nemendaleikhússins og lýsir á
grátbroslegan hátt lífshlaupi Ara
og ævintýralegum ástarmálum
hans. Leikendureru Bára Lyngd-
al Magnúsdóttir, Christine Carr,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Ólafur Guð-
mundsson, Sigurþór Albert
Heimisson, Steinn Ármann
Magnússon og Steinunn Ólafs-
dóttir.
Ferðin á
heimsenda
Reykjavíkur sýnir í gamla húsinu
og lýkur þar með 92 ára sögu LR í
því húsi.
Leikritið Ferðin á heimsenda
er eftir Olgu Guðrúnu Árnadótt-
ur, en öll forvinna að verkinu er
unnin í hópvinnu af svokölluðum
SMÁ-hópi Leikfélagsins, en auk
Olgu skipa hópinn þær Ásdís
Skúladóttir, Margrét Árnadótt-
ir, Hlín Gunnarsdóttir og Soffía
Vagnsdóttir.
í Ferðinni á heimsenda segir
m.a. af galdrakarlinum Hrappi
og Skottu vinkonu hans og óp-
rúttnum aðferðum þeirra við að
reyna að stela verndargripnum
Geislaglóð úr höndum prinsessu
Ljósalands. Gripurinn berst líka
fyrir tilviljun í hendur þremenn-
inga í útilegu og lenda þeir af
þeim sökum í ýmsum ófyrirséð-
um ævintýrum sem bera þá allt til
enda veraldar.
Ferðin á heimsenda.
I leikritinu er dregin upp mynd
af stórskemmtilegum og einkar
litskrúðugum ævintýraheimi þar
sem ýmsar kynjaverur skjóta upp
kollinum, m.a. köngulóardrottn-
ing, pöddur, tröll, vetrarálfar,
syngjandi skógur, talandi lands-
lag og sitthvað fleira. í sýning-
unni er líka undurljúf tónlist og
fallegir söngvar.
Frumsýning var í IÐNÓ 25.
febrúar sl. og hlaut sýningin af-
bragðsgóðar viðtökur gagnrýn-
enda. Áhorfendur á öllum aldri
hafa líka skemmt sér konung-
lega, fagnaðarlætin eru mikil og
ánægjan mjög einlæg. Sýningar
eru í Iðnó alla laugardaga og
sunnudaga og hefjast kl. 14.00.
Vert er líka að taka fram að
þetta er síðasta sýning Leikfélags
Reykjavíkur í Iðnó. Með þessari
sýningu lýkur 92 ára sögu LR í
Iðnó.
Ferðin á heimsenda hefur fengið
góðar viðtökur í Iðnó, en þetta er
síðasta Ieikritið sem Leikfélag
Guðlaug María Bjarnadóttir
leikur Isabellu í áhrifamiklu
leikriti Alþýðuleikhússins í
Hlaðvarpanum.
43