Þjóðlíf - 01.05.1989, Page 51
MENNING
Brennið bið vitar
Grétar Kristjónsson
sœkir heim Valgerði
Hönnu Jóhanns-
s
dóttur og Oskar
Aðalstein í
Reykjanesvita:
Allt frá því ég var lítill drengur hef ég þekkt
vita. Öndveröarnesviti og Skálasnagaviti á
Svörtuloftum eru gamlir leikfélagar, enda
þótt ég kynntist þeim aldrei í návígi, —
aðeins tilsýndar frá sjónum þar sem ég undi
löngum með föður mínum við fiskidrátt. En
nú hef ég einsett mér að kynnast nýjum vita
— og það á annan hátt. Ég vil kynnast honum
„innanfrá“ ef svo má segja því ég hef í hyggju
að hafa tal af fólkinu sem þar býr og forvitn-
ast um Iífið sem það lifir. Og ég legg land
undir fót einn sunnudag í mars og held á vit
útvarðar okkar í suðvestri, — Reykjanes-
vita.
Vitinn gnæfir uppi á hárri hæð yfir bæjarhús-
unum sem eru umvafin hrikalegu landslagi á
alla vegu. Út við stórskorna ströndina kveð-
ur úthafsaldan sinn gamla taktfasta brag.
Hún hefur hægt um sig á þessum degi, enda
hið besta veður. Sólin glampar í einu auga
risans á hæðinni. í fjarska sést til Eldeyjar.
Stolt rís hún úr hafi með þverhnípt björg á
alla vegu.
Valgerður Hanna og Óskar Aðalsteinn á Reykjanesvita.
Konan sem lýkur upp fyrir
mér þegar ég hef knúð dyra
á bænum býr yfir einhverj-
um hljóðlátum glæsibrag
sem erfitt er að lýsa.
Ósjálfráttt dettur mér í
hug að þarna sé kona sem
hafi verið drottning frá
fæðingu, svo eðlilega ber
hún glæsileik sinn. Hún heitir Hanna. Ein-
hvemveginn dettur mér ekki í hug að spyrja
hvað hún heiti fullu nafni. Ekki skiptir máli
hvað þessi kona heitir heldur hvað hún er.
Og tilheyrandi henni verður „Hanna“ að
sannkölluðu drottningarnafni. Síðar komst
ég að því að hún heitir fullu nafni Valgerður
Hanna Jóhannsdóttir.
Húsbóndinn heitir einnig konunglegum
nöfnum — Óskar Aðalsteinn. Hann er ís-
51