Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 42
42 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Startup Reykjavík var stofnað árið 2012 að frumkvæði Klaks – Nýsköpunarmiðstöðvar
atvinnulífsins, Innovits – Nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs og Arion banka.
reykjavík
og frumkvöðlar
Startup
K
ynningarnar vöktu athygli
og aðdáun enda voru þær vel
undir búnar. Á sjö mínútum
tókst frumkvöðlunum að
segja frá tækifærinu, mark að
inum, viðskiptamódelinu, fjármagns þörf
inni, stefnumótuninni, svara helstu spurn
ingum fjárfesta. Einungis tíu vikum áður
voru flestar þessara viðskipta hug mynda á
frumstigum og kynn ingarnar á þeim voru
mjög tak markaðar. En á tíu vikum unnu
fyrir tækin saman í Startup Reykja víkpró
gramminu og fleiri en fimm tíu leið bein
endum til þess að hanna, prófa og gera
við skiptahugmyndina að veruleika.
Startup Reykjavík var stofnað árið 2012 að
frumkvæði Klaks – Nýsköpunarmiðstöðvar
atvinnulífsins, Innovits – Nýsköpunar og
frumkvöðlaseturs og Arion banka. Startup
Reykjavik er tíu vikna fyrirtækjahraðall þar
sem markmiðið er að flýta uppbyggingu
sprotafyrirtækja og gera fyrirtæki fjárfest
ingarhæf. Um 180 fyrirtæki sóttu um þátt
töku en einungis tíu voru valin. Þetta var
próftilraun en gerður hefur verið samn ingur
á milli Klaks, Innovits og Arion banka til
þriggja ára um að byggja upp þetta verkefni.
Leiðbeinendurnir sem tóku þátt í verk
efninu voru þrenns konar: fjárfestar,
sér fræð ingar í vaxtarferli fyrirtækja og
sér fræðingar í upplýsingatækni. Fimmtíu
einstaklingar tóku þátt sem leiðbeinendur,
sem annars vegar hittu öll fyrirtækin og
veittu ráð út frá sínum þekkingarsviðum og
hins vegar leiðbeinendur sem völdu ákveðin
fyrirtæki sem þeir studdu í gegnum ferlið.
Frumkvöðlarnir voru sammála því að
ráðin, tengslanetið og stuðningurinn sem
þeir fengu í gegnum leiðbeinendakerfið
væri ómetanlegur. Lista yfir leiðbeinendur
Startup Reykjavík má finna á heimasíðu
verkefnisins (www.startupreykjavik.com).
Þau tíu fyrirtæki sem tóku þátt í Startup
Reykjavík hafa flest hver vakið mikla at
hygli og hafa fjölmiðlar tekið þátt í að segja
frá þeim áhugaverðu hugmyndum sem er
grundvöllur þeirra.
When Gone varð til í kjölfar þess að frum
kvöðullinn lá fyrir dauðanum og vildi
skilja eftir skilaboð til ungra barna sinna.
Þegar hann náði sér af veikindunum sór
hann að gefa öðrum tækifæri að skrá
minningar sínar sem væru svo sendar
vinum og ættingjum eftir andlát við
komandi.
Designing Reality ætlar að gera öllum
kleift að búa til þrívíddarmódel úr ljós
myndum og birta á miðlum eins og
Facebook.
Live Shuttle gerir notendum kleift að
senda ljósmyndir og vídeó út til vina sinna
og annarra í rauntíma.
Cloud Engineering sem nýlega vann til
alþjóðlegra verðlauna á Arctic 15, býður
upp á tækni þar sem hægt er að fylgjast
með t.d. verðupplýsingum keppinauta á
netinu.
Eski Tech er að hanna búnað og viðmót
sem gerir lyfjagjöf til eldri borgara skil
virkari.
StartupVille er að búa til leik sem
gerir fjárfestum mögulegt að fjárfesta í
alvörusprotafyrirtækjum fyrir leikja pen
inga en skapar markað og tengsl á milli
fjárfesta og frumkvöðla.
Mymxlog eru búnir að hanna verk og
mannauðsstjórnunarkerfi fyrir flug vél
virkja og tengda aðila.
Heilsufar er að hanna kerfi sem gerir fólki
kleift að fylgjast með og hugsa um eigin
heilsu.
Guitarparty er orðið leiðandi í að safna
lögum og hljómum á netinu og kenna fólki
að spila þessi lög á hljóðfæri.
Streamtags er að þróa hugbúnað sem
gerir áhorfendum kvikmynda kleift að finna
upplýsingar um efni sem birtist í mynd inni á
einfaldan og skemmtilegan hátt.
Áhugasamir fjárfestar geta fengið að sjá
upptöku af kynningum þessara fyrirtækja
frá því á Reykjavík Startup Investor Day
með því hafa samband við Klak, Innovit eða
Arion banka (t.d. eythor@klak.is).
Það eru allir sammála um að Startup
Reykjavík hafi heppnast einstaklega vel og
það leikur enginn vafi á að þetta verkefni
verður endurtekið á næsta ári. Verkefnið
sýndi og sannaði jafnframt að með til
tölulega ódýrum og einföldum hætti, ef
menn gera hlutina rétt, er hægt að búa til
nýja og glæsilega fjárfestingakosti á Íslandi,
flott sprotafyrirtæki sem eiga eftir að marka
spor í viðskiptasögu Íslands.
Tíu stofnendur sprota
fyrirtækja stóðu á sviði í
Arion banka og kynntu
viðskiptahugmyndir sínar
17. ágúst síðastliðinn
á fjárfestadegi Startup
Reykjavík.