Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 81
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 81
Þráinn Þorvaldsson.
Steinþór Sigurðsson líf efnafræðingur kom til starfa með Sig mundi tveimur árum síðar og loks var
fyrir tækið Saga Medica stofnað
árið 2000. Þá var hafin þróun
fram leiðsluvara og kom fyrsta
vara fyrirtækisins, Angelicajurta
veig, á markaðinn tveimur árum
síðar. „Angelica virkar gegn kvefi
og kvíða, SagaPro er við tíðum
næt urþvaglátum, SagaMemo
er gott fyrir minnið og svo eru
það Voxishálstöflurnar sem er
með þekktustu og best seldu
háls töflum á Íslandi,“ segir Þráinn
Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
hjá Saga Medica.
Hann segir að SagaPro sé á
meðal mest seldu náttúruvara
hér á landi. Nýlega var lokið við
klíníska rannsókn á vörunni sem
Þráinn segir að skipti miklu máli
varðandi markaðssetningu bæði
hérlendis og erlendis.
Vörur Saga Medica eru seldar í
um tvö hundruð heilsuvöruversl
un um í Bandaríkjunum og
Kan ada. „Við erum t.d. að fara
í gegnum skráningarferil bæði í
Kanada og innan Evrópubanda
lagsins. Ferillinn í Kanada hefur
tekið tvö ár en er ekki að fullu
lokið. Þegar skráningu er lokið er
hægt að hefja markaðssetningu
fyrir alvöru.“
Þráinn segir að markmið Saga
Medica sé að bæta heilsu fólks
og lífsgæði með vörum unnum
úr jurtum. „Það eru margar leiðir
til þess að auka lífsgæði fólks og
ein af þeim er að bæta heilsuna.
Vörurnar okkar hjálpa fólki með
ákveðin vandamál til að lifa
betra lífi.“
TIL Að BæTA LÍF FóLKS
Upphafið að Saga Medica má rekja til þess að Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi prófessor og háskóla-
rektor, fór fyrir um tuttugu árum að rannsaka íslenskar lækningajurtir við Háskóla Íslands.
„Við erum t.d. að fara í gegnum skráningarferil bæði í Kanada og innan
Evrópu bandalagsins.“
Saga Medica
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og á fyrirtækið nú tvö alþjóðleg einkaleyfi og eitt til viðbótar er
komið í alþjóðlegt umsóknarferli.
Fyrirtækið er með starfsstöðvar
bæði á Íslandi og í Skotlandi.
„Aðferðafræðin gengur út á raf
drátt á kjarnsýrum með tvívíðum
rafdrætti,“ segir Hans Guttorm
ur Þormar, framkvæmdastjóri
Lífeindar, „en með því fáum við
nákvæmari upplýsingar um sam
setningu og gæði kjarnsýrusýna
en mögulegt hefur verið að fá
hingað til. Jafnframt þessu höfum
við verið að þróa tækjabúnað til
að gera notendum/vísindamönn
um kleift að framkvæma þessa
aðferðafræði fljótt og örugglega.
Við eigum nú frumgerðir af tækja
búnaði og einnota gelkort til að
rafdraga kjarnsýrusýni og er
stefnt á að koma tækjabúnaðin
um í gegnum CEstöðlun fyrir
markaðssetningu. Við erum í
sam starfi við vísindamenn sem
eru að prófa aðferðafræðina
með okkur og vonandi getum
við komið tækjabúnaði til valinna
vísindamanna svo það séu líka
óháðir aðilar sem prófa og meta
aðferðafræðina. Við höfum verið
að senda til birtingar vísinda
greinar með niðurstöðum okkar
um þessa tækni.“
Aðferðafræðin þykir það merkileg
að nákvæm lýsing hennar var birt í
Nature Protocols, einu af tímaritum
Naturetímaritaút gáf unnar.
Hans segir að markaðssetning sé næst á dagskrá með
tilheyr andi framleiðslu á tækja
búnaði til sölu og dreifingar. „Það
skref verður annaðhvort tekið með
fjármögnun eða í samstarfi við
stærri erlend fyrirtæki. Við hefðum
hins vegar aldrei komist svona
langt nema með dyggri aðstoð
góðra aðila, Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins, Tækniþróunar hf. og
sjóða Rannís, sérstaklega Tækni
þró unarsjóðs, svo ég nefni bara
örfáa af öllum þeim sem átt hafa
þátt í þessu.“
NÁKVæMARI UPPLýSINGAR UM SAM-
SETNINGU KJARNSýRUSýNA
Fyrirtækið Lífeind var stofnað árið 2001 eftir að Guðmundur H. Gunnarsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands,
vann ásamt leiðbeinanda sínum, Jóni Jóhannesi Jónssyni, keppnina „Upp úr skúffunum“.
„Aðferðafræðin gengur út á rafdrátt á kjarnsýrum með tvívíðum rafdrætti,“
segir Hans Guttorm ur Þormar, framkvæmdastjóri Lífeindar.“
Lífeind ehf.
Hans Guttorm ur Þormar.