Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 90

Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 90
90 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Sean Connery Connery var fyrstur til að leika Bond og yfirleitt er hann efstur á blaði þegar kosið er um hver er besti Bondinn. Connery fædd­ ist í Edinborg 25. ágúst 1930. Þegar hann var valinn til að leika Bond hafði hann keppt í líkams ræktarkeppnum og hafði litla reynslu af leiklist. Fyrsta myndin, Dr. No, sló í gegn og lék hann í fjórum Bond­myndum næstu fimm árin. Orðinn leiður á að vera eingöngu 007 í aug­ um almennings ákvað hann að hætta eftir You Only Live Twice en lét til leiðast að leika í Diamonds are Forever þegar George Lazenby var kominn í ónáð hjá framleiðendunum. Þess má geta að Connery lék Bond 1983 í Never Say Never Again, en sú mynd telst ekki til Bond­seríunnar þótt sannarlega sé hún Bond­mynd. Sean Conn ery var 32 ára gamall þeg ar hann lék í Dr. No og 53 ára þegar hann lék í Never Say Never Again. James Bond-myndir Seans Connerys dr. no From russia With love Goldfinger thunderball diamonds are Forever never Say never again (utan við Bond­seríuna) george lazenby Óhætt er að segja að óheppni George Lazenbys í hlutverki James Bond megi rekja til þess að hann tók við af Sean Conn­ ery. Lazenby lék aðeins í einni Bond­mynd, On Her Majesty’s Secret Service (1969), mynd sem yfirleitt er talin meðal betri Bond­mynda. Lazenby fæddist í Ástralíu 5. september 1939 og var þekkt módel þegar honum bauðst að leika Bond eftir mikla leit að eftirmanni Connerys. Hann hafði enga reynlsu af leiklist fyrir utan auglýsingar. Eftir mislukkaðan leikferil sneri hann sér að kappakstri en hefur á seinni árum snúið sér aftur að kvikmyndaleik. Lazenby var 30 ára gamall þegar hann lék Bond og sá yngsti sem hefur leikið njósnarann. James Bond-mynd george lazenbys On Her Majesty’s Secret Service Skyfall verður frumsýnd í október en þá eru fimmtíu ár frá því fyrsta Bond-kvikmynd in, Dr. No, leit dagsins ljós þar sem Sean Connery gerði njósnara hennar hátignar, James Bond, 007, ódauðlegan. TexTi: Hilmar karlsson Vöruframleiðend ur hafa nýtt sér Bond­ myndirnar til að koma vörum sínum á framfæri og það þrátt fyrir að slík auglýsing sé keypt dýrum dóm um; bílar, flugvélar og flugfélög, og margt fleira. James Bond Þegar haft er í huga að meira en hel ming ur jarðar búa hef ur séð að minnsta kosti eina Bond-kvikmynd er ekkert óeðlilegt að halda því fram að James Bond hafi haft nokkur áhrif á mannkynið í heild hvað varðar fatnað, bíla og drykki. Og þrátt fyrir að fimmtíu ár séu liðin frá því Bond kom fyrst fram í Dr. No er langt í frá að hann sé að falla úr tísku. Svo er það aftur á móti fullyrðing þeirra sem til þekkja að ef James Bond væri njósnari í raunveruleikanum væri hann einhver sá versti í bransanum. James Bond er svalur náungi og hefur löngum verið sendiherra Breta hvað það varðar og er stutt síðan hann var notaður í skemmti legt atriði með Englandsdrottningu við setningu Ólympíuleikanna, svo það er engin furða að Bretar vilji þennan njósnara hennar hátignar ódauðlegan. Ekki hefur hrifningin verið minni í öðrum löndum og er þekkt sagan af John F. Kenn­ edy Bandaríkjaforseta, sem var svo hrifinn af Dr. No að hann sá til þess að hann fengi sérstaka forsýningu í Hvíta húsinu á From Russia With Love áður en allir aðrir fengu að líta myndina augum. Vöruframleiðendur hafa nýtt sér Bond­myndirnar til að koma vörum sínum á framfæri og það þrátt fyrir að slík auglýsing sé keypt dýrum dóm ­ um; bílar, flugvélar og flugfélög, úr, sólgleraugu, símar, vín og margt fleira er vandlega valið fyrir hverja mynd. Ein ný vörutegund kemur fyrir í Skyfall sem á sjálfsagt eftir að falla í grýttan jarðveg hjá hörðustu aðdáendum. James Bond fær sér bjór í myndinni og það ekki hvaða bjór sem er, heldur Heineken sem borgar víst 45 milljónir dollara fyrir að koma vöru sinni að og rennir þessi auglýsingaherferð stoðum undir þá margtuggnu setningu að allt sé falt fyrir peninga Mestu áhrifin hefur þó James Bond haft í kvikmynda­ og sjón varps brans­ anum. Óteljandi eftirlíkingar hafa litið dagsins ljós í misgóðum kvikmyndum og sjónvarpsseríum sem eiga það sam eiginlegt að hafa runnið sitt skeið á meðan James Bond blómstrar. Eitt er ótalið sem fylgt hefur James Bond í gegnum tíð ina og það er tónlistin. Þar á mestan heiður John Barry, sem lést í fyrra. Samdi hann mörg lög fyrir kvikmyndirnar sem urðu mjög vin ­ sæl og sjálf kvikmyndatónlist hans var þvílík snilld að ekki þarf annað en að hlusta á fyrstu tónana til að vita hvaðan tónlistin kem ur. Þeir leikarar sem leikið hafa James Bond hafa allir orðið heimsfrægir þótt mismunandi sé hvað þeim hefur tekist að halda frægðinni við. Sex leikarar hafa leikið JameS Bond Sean Connery. George Lazenby. kvikmyndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.