Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 28
28 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Gunnur Helgadóttir er framkvæmdastjóri Vistor sem er stærsta lyfjaheild
sala landsins og leiðandi fyrir tæki á sviði markaðssetningar á lyfjum.
Fyrirtækið er í samstarfi við fjölda al þjóðlegra lyfja fyrir tækja sem eru í
forystu fyrir þróun og rannsóknir á nýjum lyfjum. Gunn ur starfaði sem
hjúkrunarfræð ingur áð ur en hún fór að vinna hjá Vistor fyrir hartnær tíu
ár um. Vinnan í Vistor vakti frekari áhuga á við skipt um og stjórnun og
samhliða starfi sínu fór hún í MBAnám í Há skól anum í Reykjavík
Ég var bókaormur og var í ballett og fimleikum. Ég var og er alæta á bækur og las á æskuárunum
m.a. Fimm fræknubækurnar
af áhuga og á unglingsárunum
las ég til dæmis allar bækur
Þórbergs Þórð arsonar.“
Hún fór í Menntaskólann við
Hamrahlíð – valdi náttúrufræði
braut – og fann að áhuginn
beindist að heilbrigðisgeiranum
og raunvísindum. Hún varð
stúdent vorið 1983 og þá um
veturinn hóf hún nám í hjúkr
unarfræði við Háskóla Íslands.
„Mér fannst praktískt að fara í
hjúkrunarfræði, fag þar sem ég
var örugg um að fá vinnu.“
Eiginmaðurinn, Baldvin
Kristjánsson, var að klára nám
í læknisfræði á sama tíma og
Gunnur var að byrja í hjúkr
unar fræði og þegar Gunnur
út skrifaðist úr hjúkrunarfræðinni
árið 1989 voru þau hjónin búin
að eignast tvö börn – og þá
flutti fjölskyldan til Svíþjóðar
þar sem Baldvin fór í sérnám.
Þau bjuggu í Svíþjóð í tólf ár
en þriðja barnið fæddist þar í
landi.
„Ég var í hlutastarfi á meðan
börnin voru lítil en fyrst eftir að
við fluttum út vann ég á öldr un
ardeild og síðar á háls, nef og
eyrnadeild með viðkomu á
augn deild. Síðar vann ég á gjör
gæsludeild og loks sem hjúkr
unarforstjóri á hjúkrunarheimili.“
Börnin uxu úr grasi og að
því kom að það elsta færi í
menntaskóla. „Við veltum því
fyrir okkur hvort við ættum að
flytja til Íslands; fjölskyldan
heima var líka farin að toga í
okkur.“
Jú, það var ákveðið að flytja
til Íslands og haustið 2000 flutti
fimm manna fjölskyldan, sem
hafði upplifað ýmis ævintýri í
landi Emils og Línu, til landsins.
mArkAðsstJÓrI vArð
FrAmkvæmDAstJÓrI
„Ég vann á augndeild Land
spítalans í eitt ár eftir að við
fluttum heim en fór svo að vinna
hjá LaserSjón og þar var ég í
eitt og hálft ár áður en ég ákvað
að prófa eitthvað allt annað en
hjúkrun.“
Gunnur hóf störf hjá Vistor
sem sölufulltrúi í einni markaðs
deildinni en hún var í því starfi
í fjögur ár. „Ég var orðin leið á
að vinna vaktavinnu og langaði
til að takast á við ný verkefni.
Reynsla mín í heilbrigðisgeir
anum nýttist vel í starfinu hjá
Vistor.
Það hvatti mig til dáða að
vinna hjá Vistor og til að takast
á við nýjar áskoranir og víkka
sjóndeildarhringinn. Ég fór því
í MBAnám við Háskólann í
Reykjavík og vann í hlutastarfi
með námi. Mér fannst mjög
skemmtilegt og spennandi að
koma inn í umhverfi þar sem
fólk frá mismunandi greinum
atvinnu lífsins stundaði nám sam
an og lærði líka hvað af öðru.“
Gunnur útskrifaðist árið 2006
og fljótlega eftir það varð hún
markaðsstjóri hjá Vistor. „Það
var mjög skemmtilegt starf. Ég
fékk að vaxa með því og það
sem ég hafði lært í náminu
nýtt ist vel og mér fannst það
forréttindi að fá að takast á við
ný verkefni.“
Það var svo í janúar á þessu ári sem Gunn ur tók við framkvæmda
stjórastöðu fyrir tækisins.
„Vistor hefur verið vel rekið í
gegn um árin og ég vildi ekki
koll varpa einhverju sem er í
góð um farvegi. En auðvitað er
ég með hugmyndir til að móta
fram tíðarstefnu fyrirtækisins í
breyttu umhverfi. Það eru t.d.
miklar sparnaðarkröfur almennt
í heilbrigðisgeiranum. Birgj
TexTi: svava JónsdóTTir / mynd: Geir ólafsson oG fleiri
nærmynd
Ég skiPa
Ekki fyrir
Gunnur Helgadóttir: