Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 57
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 57
„Það er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki í vexti að hafa aðgang að þessu tækniumhverfi
og við það bætist svo að markaðurinn er stærstur í Bandaríkjunum.“
Kjartan Sverrisson og félagar hjá GuitarParty stefna á vöxt erlendis.
stækka. Forritarar voru ráðnir í Litháen og
einn sölumaður í San Francisco. Áhuginn
kom að vestan og um mitt ár 2009 fór Davíð
líka vestur. Hann hefur búið þar síðan.
200 manns í vinnu
Núna eru starfsmenn orðnir 203, þar af 40 í
Bandaríkjunum, 70 í Danmörku og afgang
ur inn dreifður um víða veröld. Í þessum hópi
eru Íslendingar auk Davíðs en fyrirtækið er
alþjóðlegt.
En af hverju flutningur til Ameríku? Er ekki
sama hvar tölvufyrirtæki eru niðurkomin,
bara ef þau hafa góða nettengingu?
„Jú, fyrir frumkvöðla má segja að góð net
tenging skipti meira máli en staðsetningin,“
segir Davíð. „En þegar fyrirtækið fer að vaxa
skiptir æ meira máli að vera þar sem hlutirnir
gerast. Og núna er það á svæðum eins og
við San Franciscoflóann.“
Davíð nefnir í fyrsta lagi að auðvelt sé að
fá bandaríska fjárfesta í lið með hátækni
fyrir tækjum. Kreppan hefur leitt til þess að
ávöxt un í bönkum er engin og þá reyna fjár
festar að koma fé sínu í fyrirtæki sem geta
gefið arð. Seðlabankinn bandaríski hefur
einnig aukið peningamagn í umferð með
seðlaprentun til að örva atvinnulífið. Kreppan
hefur því haft góð áhrif á tæknigeirann.
„Við þetta bætist svo að hér er líflegt tækni
umhverfi, bæði háskólar og stór og þróuð
fyrirtæki,“ segir Davíð. „Það er nauðsynlegt
fyrir fyrirtæki í vexti að hafa aðgang að
þessu tækniumhverfi og við það bætist svo
að markaðurinn er stærstur í Bandaríkjun
um.“
Hugmyndin að baki Guitarparty hefur verið að þróast í fjögur ár og kom fyrst fram á netsvæðinu gítar-
grip.is og það er enn til. Þörfin fyrir stærri markað hefur leitt til þess að nú er komin alþjóðleg útgáfa af
síðunni og var hún í úrvalshópi Gulleggsins árið 2011.
HasLa sér völl Á TExTAMArkAði
Kjartan Sverrisson hjá GuitarParty.com segir að núna séu not endur um 35 þúsund á Íslandi. Það má því segja að 10% íslensku þjóðarinnar noti
vefinn reglulega, enda gítarleikur og söngur
hálfgert þjóðartómstundagaman.
En íslenskir notendur verða varla fleiri.
Því er eina leiðin til að vaxa að komast á
al þjóðlegan markað. Og þar eru Bandaríkin
stærst. Núna er orðið til útibú vestra. Kjartan
segir að það sé óhjákvæmilegt vegna
banda rískra laga um höfundarrétt. Fyrirtækið
er hins vegar ekki flutt úr landi og tæknivinn
an er unnin heima. Norðurlönd eru líka
spenn andi markaður.
Á síðunni eru birt gítargrip, auk þess sem
notandinn getur valið um að skipta þeim
út fyrir ukulelegrip, en hljóðfærið ukulele
nýtur vaxandi vinsælda. Einnig er búið að
gera 172 kennslumyndbönd þar sem Þorgils
Björg vinsson úr Sniglabandinu leiðbeinir
gítar leikurunum.
Alls eru rúmlega sjö þúsund lög komin á
vefinn þegar þetta er skrifað. Upphafsmenn
að GuitarParty.com eru þeir Sævar Öfjörð
Magnússon og Arnar Tumi Þorsteinsson og
eru þeir enn að. Fastir starfsmenn eru nú þrír
auk lausamanna.
Kjartan Sverrisson hjá
GuitarParty.com: