Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 29
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 29
arnir okkar eru í svipaðri stöðu
úti í Evrópu þannig að það er
ýmislegt hægt að móta og gera
á nýjan hátt.
Ég hef m.a. lagt áherslu á að
breyta ýmsu varðandi notkun
upplýsingatækni til fræðslu og
til dreifingar upplýsinga. Kynn
ingar geta t.d. verið á iPad til að
einfalda og veraldarvefinn má
nota til að auðvelda fagfólki og
öðrum aðgengi að upplýsingum
og fræðslu. Við erum að þróa
nýjar lausnir á þessu sviði.“
En hvernig ætli Gunnur lýsi sér sem stjórnanda? „Ég hugsa að ég sé sann
gjarn stjórnandi. Ég er heiðar
leg og stjórna í teym um. Ég
skipa ekki fyrir held ur kýs frekar
samvinnu. Það eru að megninu
til sérfræðingar í þekkingar
fyrirtæki eins og Vistor og ég
þarf að geta treyst á þekk ingu
þeirra og samvinnu.“
sAGAN
Vistor er hluti af Veritassam
stæðunni sem byggist á grunni
Pharmaco hf., sem var stofnað
árið 1956 í þeim tilgangi að
auka framboð lyfja hér á landi
sem og koma á breytingum í
innflutningi þeirra og dreifingu.
Árið 2002 keypti Veritas, undir
stjórn Hreggviðs Jónssonar,
umrædda starfsemi Pharmaco
og síðan hafa verið gerðar
ýms ar breytingar á fyrirtækinu
sem leitt hafa til frekari vaxtar.
Systur fyrirtæki Vistor eru Dis
tica, Medor og Artasan.
trAUst mIkIlvæGt
Vistor er stærsta lyfjaheildsala
landsins og í fararbroddi á sviði
markaðssetningar á lyfjum og
er velta fyrirtækisins áætluð 7,5
milljarðar króna á þessu ári.
Gunnur segir að það hafi
fyrst og fremst verið mikil vinna
sem kom fyrirtækinu svona
áleiðis. „Stjórnendur hafa verið
fram sýnir. Það eru forréttindi og
gaman að vera hérna, ég myndi
segja að traust væri einkenni
fyrirtækisins; traust bæði í inn
viðum fyrirtækisins og traust út
á við gagnvart birgjun um okkar
og þeim aðilum sem við vinnum
með á Íslandi.“
Hvað varðar drauminn sem tengist fyrirtækinu segir Gunnur: „Draum
sýnin er að viðhalda því sem
við erum með og stækka það.
Draumur minn er að fólk al
mennt viti aðeins meira um
það sem við erum að gera og
hvað fyrirtækið stendur fyrir.
Fyrirtækið þarf að þróast með
breytingum á markaðnum og
því síbreytilega umhverfi sem
við lifum í í dag.
Vistor er mjög vel rekið og kom
vel út í þeim ólgusjó sem hefur
gengið á í íslensku þjóðfélagi
og efnahagslífi. Það var engin
ævintýramennska í gangi í
fyrir tækinu og það er gott farar
nesti inn í framtíðina fyrir mig
sem nýjan framkvæmdastjóra.
Vistor var fyrirmyndarfyrirtæki í
VRkönnun fyrr á þessu ári sem
og móðurfélagið, Veritas, og við
erum stolt af því.“
Vistor er stærsta
lyfjaheildsala lands
ins og í fararbroddi
á sviði markaðssetn
ingar á lyfjum og er
velta fyrirtækisins
áætluð 7,5 millj
arðar króna á
þessu ári.