Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 66
66 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Leiðandi í flugfrakt
Staða flugfraktar er oft talin endurspegla efnahagsstöðu þjóða hverju sinni. Þar
sem eðli starfsemi Icelandair Cargo er hraðflutningar er það eðlilega eitt það
fyrsta sem sveiflast með breytingunum sem verða í hagkerfinu.
I c e l a n d a i r C a r g o
Það er alveg hægt að halda því fram að tölurnar okkar endurspegli þetta mjög vel. Við sáum fram á
mjög hraðan vöxt á innflutningi á
tímabilinu frá 2003 til 2007, eða
tvöföldun á því magni sem flutt
var til landsins á þessu tímabili.
Árið 2008 kemur síðan hrunið og
flutningarnir falla til baka og árið
2009 var það lélegasta sem við
höfum séð síðan um aldamótin
síðustu, eða rúmlega 50% niður
frá árinu 2007. Flutningarnir fóru
ekki að vaxa aftur fyrr en árið
2011 og hafa verið að vaxa um
57% á síðustu mánuðum ef
horft er til innflutnings. Það má
segja að einhver teikn séu því á
lofti um hægan bata í hagkerf
inu sem vonandi er kominn til
að vera. Við sáum sömu stöðu
á erlendum mörkuðum. Það
kreppti verulega að alþjóðlegu
um hverfi í kjölfar bankahruns í
heiminum rétt eftir það íslenska
og fraktflutningar í flugi drógust
saman um 20% á mjög skömm
um tíma árið 2009. Þetta jafnaði
sig síðan á met hraða árið 2010
og flutningarn ir fóru aftur á það
stig sem þeir voru árið 2008, en
núna, í kjölfar vanda mála sem
oftast eru tengd við evrusvæðið,
hafa flutningar verið á niðurleið
þótt sveiflurnar séu minni.
Við höfum orðið að líða fyrir
þetta í starfsemi okkar í Evrópu
þar sem við höfum verið með þrjár
til fjórar fraktvélar í leiguverk efn
um síðustu ár. Það má því alveg
halda því fram að við sjáum fyrst
af öllum hvert hagkerfið stefnir
hverju sinni, en þar sem eðli
okk ar starfsemi er hraðflutningar
er það eðlilega eitt það fyrsta
sem fellur niður eða fer upp ef
breytingar verða á eftirspurn í
hagkerfinu.“
Efnahagslífið á réttri leið
Nemið þið að efnahagslífið sé
að rétta úr kútnum og hverjar eru
helstu breytingar sem þá eiga sér
stað í flugfraktinni?
„Eins og ég hef minnst á sjá
um við núna breytingar upp á
við. Það hafa verið merkjanlegar
breytingar síðustu 18 mánuði
en fram að því var batinn mjög
hægur, eftir rúmlega 50%
hrun. Við merkjum líka að sam
starfsaðilar okkar eru bjartsýnni
á að þessi þróun sé komin til að
vera. Þær vörur sem við flytjum
inn fyrir okkar samstarfsaðila
eru oft í dýrari kantinum eða
hafa mjög skamman líftíma og
þegar kreppir að minnkar veltan
á þeim eftir efnum og aðstæðum
hjá neytendum. Byggt á þeirri
sögulegu staðreynd sem lesa má
úr samspili þróunar á hagvexti
og innflutningi í flugi má ætla að
efna hagslífið sé á réttri leið.“
„Ég held þó að eng-
inn vafi leiki á því að
verðmætasta afurðin
sem við flytjum er
ferskur fiskur. Við
fljúgum með allt upp
í rúmlega 100 tonn
á dag af ferskum
flökum eða hnakka-
stykkjum á markaði í
Evrópu og Ameríku.“
Gunnar Már Sigurfinnsson er framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.
stofnár Cargo: Hluti af Icelandair þangað til árið 2000. Fyrstu
flugferðir forvera Icelandair voru ekki síst með frakt og póst frá
Akureyri til Reykjavíkur fyrir 75 árum.
stofnendur: Félagið sjálfstætt dótturfélag og síðan systurfélag
Flugleiða, eins og félagið hét þá. Fyrsti framkvæmdastjóri var Pétur
J. Eiríksson.
viðskiptahugmyndin: Að sjá um flutninga á vörum á öllum helstu
leiðum Icelandair Cargo og Icelandair.
meginmarkmið fyrirtækisins: Að vera leiðandi aðili í flugfrakt á
mörkuðum sem falla að leiðarkerfi Icelandair Cargo og Icelandair.
Texti: Hrund Hauksdóttir / Myndir: Geir Ólafsson og úr safni
ræturnar