Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 44
44 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
og frumkvöðlar
Fjárfest í framtíðinni
Fimmtánda Seed Forumþingið var haldið í höfuðstöðvum Arion banka 13.
apríl 2012 síðastliðinn. Eins og ávallt voru fengnir ræðumenn til þess að fjalla
um stöðu og framtíð nýsköpunar og fjárfestingar í sprotafyrirtækjum á Íslandi.
Ó
lafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, opnaði
fimmt ándu Seed Forum
ráð stefnuna í Arion banka í
apríl síðastliðnum og Svana
Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka
iðn aðarins og stofnandi Stika, fjallaði um
fram tíð sprotafyrirtækja á Íslandi.
Þrír Norðmenn, Joachim HøeghKrohn,
fram kvæmdastjóri Argentum, Torkel
Ystgaard, aðstoðarframkvæmdastjóri SIVA,
og Truls Berg, stjórnarformaður NorBan
– norsku englasamtakanna, fjölluðu um
ný sköp unarumhverfið í Noregi.
Tilgangur komu Norðmannanna var að
búa til samstarfsverkefni við íslenska aðila.
Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
skipulagði fundi með opinberum aðilum,
ráðuneytum og lykilaðilum í nýsköpun,
jafnt sem einkaaðilum. Í þessu fólst mikið
tækifæri enda er Argentum orðinn næstum
jafnstór framtakssjóður og framtakssjóður
Evrópu. Umfang Argentum er rúmlega 200
milljarðar íslenskra króna. Það er mikilvægt
að vekja áhuga erlendra fjárfesta og áhættu
fjárfestingasjóða á íslenskum sprota og
vaxt ar fyrirtækjum.
FJárFestING í sprOtUm
Sprotaþing Íslands, undir forystu Klaks
– Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins,
hefur haldið fimmtán Seed Forum Ice land
þing á Íslandi. Sprotaþing Íslands er sam
félagsfyrirtæki sem er rekið án hagn aðar
markmiða sem hefur það markmið að vekja
athygli á sprotafyrirtækjum og mikil vægi
fjárfestinga í þeim. Seed Forum Iceland
eru fjárfestaþing sem haldin eru tvisvar á
ári í Arion banka til þess að leiða saman
frumkvöðla og fjárfesta og skapa grundvöll
fyrir fjárfestingar í sprotafyrirtækjum. Alls
hafa 113 sprotafyrirtæki kynnt sig fyrir
fjárfestum á Seed Forum Iceland frá árinu
2005, þar af 75 íslensk sprotafyrirtæki.
Undirbúningurinn fyrir Seed Forum
Iceland hjálpar frumkvöðlum að hugsa um
fjárfestingarhæfi, hvernig á að kynna fyrir
fjárfestum og skapa tengsl við þá. Talsvert
hefur verið talað um árangur af slíkum
þingum og ýmsir hafa gagn rýnt þingið
vegna þess að það hefur ekki verið fjárfest í
þeim fyrirtækjum sem hafa kynnt á þinginu
samdægurs. Sömu aðilar hafa stundum verið
TexTi: eyþór ívar Jónsson / myndir: Geir ólafsson.