Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 65
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 65
Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
félaga og háskóla, sem vildu
bregð ast hratt og örugglega
við breyttu árferði á markaðn
um og aukinni eftirspurn eftir
störfum og verkefnum. Á stuttu
tíma bili eða frá desember 2008
til maí 2009 settum við á fót
fimm frumkvöðlasetur, sem brátt
töldu hundruð einstaklinga, sem
unnu að viðskiptahugmyndum
sín um undir okkar verndarvæng
með tilheyrandi handleiðslu
og stuðningi. Við erum stolt af
þessu mikla átaki, sem á sér fá
ef nokkur fordæmi annars staðar.
Fjöldi hæfra og reyndra einstakl
inga stóð allt í einu frammi fyrir
því að vera án atvinnu og til að
missa þetta fólk ekki úr landi var
nauðsynlegt að virkja stuðnings
umhverfi nýsköpunar enn frekar
og sýna þessum aðilum að lausn
á aðstæðum þeirra gæti verið
falin í framgangi eigin viðskipta
hugmynda og hugvits eða
þátt töku í slíkum hugmyndum.
Fjöl margir létu slag standa og
eru í dag með eigin rekstur.
Hér má nefna fyrirtæki eins og
Remake Electric og Kviknu sem í
dag horfa fram á mikla rekstrar
aukningu og fjölgun starfsmanna.
Þegar upp er staðið hygg ég
að efnahagslægðin, sem hér
hefur riðið yfir land og þjóð,
hafi haft mjög mikil og jákvæð
áhrif á sköp un nýrrar hugsunar
auk þess sem menn hafa getað
rýnt í baksýnisspegilinn og lært
af reynslu fyrri ára. Kreppan
hefur haft mjög hvetjandi áhrif á
nýsköpun enda eru það ekki ný
sannindi að nýsköpun nærist í
kreppu.“
Þverfagleg nálgun
Hvernig aukum við nýsköpun í
samfélaginu; hvað þætti þurfum
við að efla og styrkja?
„Ég vil horfa á allt samhengið;
menntun, rannsóknir og atvinnu
líf, sem órofa heild. Menntun þarf
að styrkja hér á landi og hvetja
þarf fleiri til þess að fást við
raunvísindi og verkfræði. Aftur á
móti þarf að glæða áhuga þessa
sama fólks á skapandi greinum
og listum sem svo geta notið
þeirrar tengingar. Það er hin þver
fag lega nálgun og hugsun sem
við þurfum að koma inn á öll svið
svo heildin njóti góðs af. Við þurf
um að tryggja að atvinnustefna,
menntastefna og velferðarstefna
gangi í takt og efla nýsköpunar
hugsun meðal nemenda á öllum
skólastigum og veita fullorðnum
einstaklingum sömu tækifæri.
Hugtakið „nýsköp un“ er afskap
lega víðtækt og frjótt og þarf
hugmyndafræði þess einfaldlega
að vera hluti af menningu okkar.“
Frumkvöðlar auka lífsgæði
Hvert er mikilvægasta hlutverk
frumkvöðla, að þínu mati?
„Frumkvöðullinn er erkiengill
atvinnulífsins. Frumkvöðullinn
skapar hreyfingu, framleiðslu,
þjón ustu, fjármagn og síðast
en ekki síst atvinnu fyrir fólk.
Mikil vægasta hlutverkið er
eflaust að með frumkvöðlum
víkkar veröld okkar, styrkist og
verð ur fjölbreyttari. Á Nýsköpun
ar miðstöð Íslands höfum við
lög boðið hlutverk um að „stuðla
að lífsgæðum“. Frumkvöðlar, í
orðsins fyllstu og helgustu merk
ingu, auka lífsgæði okkar, svo
sannarlega. Okkar hlutverk er að
þjóna þeim og örva.
„Á stuttu tímabili eða
frá desember 2008
til maí 2009 sett um
við á fót fimm frum-
kvöðla setur, sem
brátt töldu hundruð
einstaklinga, sem
unnu að viðskiptahug-
myndum sínum undir
okkar verndarvæng.“