Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 68
68 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Gestur B. Gestsson, framkvæmdastjóri Sparnaðar, segir að fyrirtækið sé eitt fárra slíkra
fyrir tækja í Evrópu sem hafa hlot
ið svona vottun en hún tekur til
gæðastjórnunarkerfa, ráðgjafar,
þjónustu og utanumhalds gagn
vart viðskiptavinum:
„Vottunin er afar mikilvægur
áfangi fyrir Sparnað og hef
ur mikla þýðingu gagnvart
við skipta vinum, starfsfólki og
samstarfsaðilum. Sjálft ferlið er
nákvæmt og umfangsmikið en
lykilorðið í uppbyggingu staðal
sins er árangur. Við þurftum að
uppfylla fjölda skilyrða. Þetta var
engu að síður gríðarmikil vinna
og því fer fjarri að henni sé lokið,
því það fer fram ítarleg endur
skoðun árlega fyrir endurvottun.
Svo þetta heldur okkur á tánum
áfram og krefur okkur um að
við halda sömu gæðum gagnvart
öllum viðskiptavinum.
Samstarf við trausta aðila í
Þýskalandi
Sparnaður ehf. er ráðgjafar
fyrirtæki sem hefur að markmiði
að aðstoða fólk við að ná árangri
í fjármálum. Fyrirtækið fer nýjar
leiðir í ráðgjöf og veitir að stoð við
að greiða niður skuld ir og auka
eignamyndun og fjárhagslegt
öryggi viðskiptavina.
Sparnaður býður einnig við
skipta vinum sínum leiðir til að ná
markmiðum sínum í samstarfi við
trausta aðila í Þýskalandi, sem
hafa gætt hagsmuna viðskipta
vina sinna líkt og þeir væru þeirra.
Sparnaður leiðir saman nýja
hugsun í fjármálaþjónustu, alda
gamla reynslu frá Þýskalandi og
áræði í samkeppni við öflugustu
fjármálafyrirtæki á landinu.
Starfsfólk Sparnaðar ehf. vinn ur
fjölbreytt störf og því er bak
grunnur þess ólíkur, allt eftir því
hvernig störfum það sinnir. Stór
hluti starfsmanna Sparnaðar er
með háskólamenntun að baki en
við ráðningu nýrra starfsmanna
er einnig horft til reynslu og
persónueinkenna umsækjenda.
Þá eru gildi fyrir tækisins höfð
að leiðarljósi við ráðningu nýrra
starfsmanna. Eins og gefur að
skilja eru margir starfsmenn okk
ar með menntun í viðskiptafræði
og öðrum greinum sem tengjast
fjármálum.“
Gestur B. Gestsson, framkvæmdastjóri Sparnaðar ehf.
„Sparnaður fer nýj-
ar leiðir í ráðgjöf og
veitir aðstoð við að
greiða niður skuldir
og auka eignamynd-
un og fjárhagslegt
öryggi viðskipta-
vina.“
ræturnar
Ný hugsun í
fjármála þjónustu
Ráðgjafarfyrirtækið Sparnaður hefur nú, fyrst íslenskra fyrirtækja á sviði fjármála og
trygginga ráðgjafar, hlotið ISO 9001:2008-vottun frá DQS sem er vottunaraðili sem
rekur áttatíu skrifstofur í sextíu löndum.
S p a r n a ð u r e h f .
stofnár: 2002
stofnendur: Gestur B. Gestsson, Davíð Tryggvason og Heimir
Helgason. Ingólfur H. Ingólfsson kemur síðar að félaginu, árið 2007.
viðskiptahugmyndin: Sparnaður ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem
aðstoðar fólk í tengslum við fjármál heimilanna í að verða skuld-
laust með ráðum, áætlunum, útreikningum og þjónustu með það
að leiðarljósi að skapa jákvæða eignastöðu og tryggari starfslok.
Sparnaður ehf. er umboðsaðili þýska vátryggingafélagsins Bayern-
Versicherung, sem tilheyrir tryggingasamsteypunni Versicher-
ungs kammer Bayern. Versicherungskammer Bayern er hluti af
þýsku sparisjóðasamsteypunni sem er undir stjórn sambandsríkja
Þýskalands.
markmið fyrirtækisins: Að aðstoða sem flesta í að verða skuld -
laus ir á sem skemmstum tíma, spara sem mest í fjármagnskostnað
og öðlast fjárhagslegt öryggi á efri árum.
Texti: Hrund Hauksdóttir / Myndir: Geir Ólafsson og úr safni