Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
frumkvöðuLL
ÞAð er ábYrGð Að verA
Magnús Scheving fékk hugmynd, þróaði hana og varð einn þekktasti frumkvöðull landsins en ævintýrin
í Latabæ og boðskapurinn sem hann setur fram hafa haft áhrif út um nær allan heim. Þótt fjölmiðlaris-
inn Turner hafi fest kaup á meirihlutanum í fyrirtækinu situr Magnús enn við stjórnvölinn.
Það er líf og fjör í Latabæ. Fjöldi manns er í
kring um sviðið og stúlkan sem
leikur Sollu stirðu endurtekur
sama atriðið nokkrum sinnum
þar til allir eru orðnir ánægðir.
Magnús Scheving er klæddur
jakkafötum og stjórnar af öryggi.
Hann er kominn heim nokkrum
klukkutímum síðar; tveir tímar í
miðnætti. Þessir upptökudagar
eru langir. Hann býður til stofu
og logar í arninum. Hann sat í
stof unni fyrir um tuttugu árum
þegar hann fékk hugmyndina að
Latabæ. Mikið vatn hefur runn ið
til sjávar síðan þá og hef ur boð
skapur Latabæjar haft áhrif á
milljónir manna út um all an heim.
„Ég held að vissir hlutir spretti
úr vissu umhverfi. Sprotafyrir
tæki spretta ekki bara upp út
af því að einhver einstaklingur
er svona hugmyndaríkur. Þetta
tengist umhverfinu, mennt un,
styrkjakerfi og hvernig ríkis
stjórn ir stuðla að nýsköpun. Ég
held að allt hafi sinn stað og
stund og það skiptir máli að
við komandi sé á réttum stað á
rétt um tíma.“
á réttum stað á röng-
um tíma
Magnús lagði áherslu á að
fyrir tæki hans framleiddi
skemmti efni fyrir börn þar sem
boðskap urinn tengdist heils
unni og vildi að fyrirtækið yrði
þar fremst í flokki í heiminum.
„Flestir hefðu væntanlega reynt
að koma því til skila hvað fólk
ætti að gera með því að segja
það beint út. T.d. Þú skalt borða
hollan mat! Ég vildi að Latibær
hefði áhrif á hvað fólk gerði án
þess að segja það beint. Þetta
gerum við með því að koma
skilaboð unum áleiðis í kringum
sögurnar í hverjum þætti.“
Hann segir þetta hafi verið
erfitt í byrjun. „Ég þurfti að vera
með hugmyndina, framtíðar sýn
ina, ég þurfti að selja hugmynd
ina til að fá fjármagn og vinna í
að kynna öðrum hugmyndina.“
Hann lagði áherslu á að vera
inni í öllu. „Auðvitað á viðkom
andi að skipta sér af öllu.
Hver ætti til dæmis að svara
spurn ingu um hvort það séu
fiðr ildi í Latabæ og hvort þau
tali? Það veit það enginn nema
höfundurinn. Ég þurfti að semja
leikreglurnar. Það sem mér
fannst mest spennandi var að
mig langaði til að gera eitthvað
sem var eiginlega ekki hægt að
gera.“
Hann segir að hann hafi sett
sér það markmið að uppbygg
ing fyrirtækisins tæki um sextán
ár. „Ég held ég hafi feilað um
helming – þetta tekur þrjátíu ár.
Ég held að eigandi Latabæjar,
Turner, muni hagnast gríðarlega
næstu þrjátíu árin. Heilsa er
ekki að fara neitt. Ég held að við
séum á réttum tíma en þegar
Latibær hóf göngu sína höfðum
við rétt fyrir okkur á röng um tíma.
Það skildi enginn ná kvæmlega
hvað við vorum að tala um.“
Vinnan hefur verið mikil þessi ár
og segir Magnús að vel gengnin
tengist um 99% harðri vinnu og
einungis 1% sé tilkomið vegna
snilligáfu. Þá tal ar hann um mikil
vægi „manns númer tvö“ sem í
hans tilfelli er eigin kona hans,
Ragnheiður Mel steð, sem hefur
unnið mikið með honum. „Ég
ráðlegg öllum frumkvöðlum að
velja gott fólk með sér. Ég held
að það sé aðal málið.“
turner keypti meiri-
hlutann
Erfiðar aðstæður á fjármála
mörk uðum gerðu Latabæ líka
erfitt fyrir. Latibær fór í endur
skipulagningu á resktrinum og
efnahagnum sem fólst meðal í
því að samið var við kröfuhafa.
Þá var ætlunin að ná í öflugan
samstarfsaðila sem gæti hjálp
að til að auka virði félagsins og
þá ekki bara fjárhagslegt virði,
heldur einhvern sem gæti hjálp
að félaginu að ná markmið
um sínum. Það gekk eftir og
í fyrra keypti fjölmiðlarisinn
Turner Broadcasting meirhluta
fyrirtækisins. Magnús, sem á
nú minnihlutann, er enn forstjóri
fyrirtækisins og með samning
um að leika íþróttaálfinn næstu
tvö árin. Ekki höfðu verið teknir
upp sjónvarpsþættir síðan 2006
þar til upptökur hófust í sum ar
en gera á þrettán þætti auk
þess sem kvikmynd er í burðar
liðnum. Það sem er erfiðast í
þessu er að verð á barnaefni
í sjónvarpi hefur farið niður á
síðustu árum; maður fær ekki
lengur borgað fyrir að búa til
barnaefni og á mörgum stöðum
er búið að banna auglýsingar í
tengsl um við sýningu á barna
efni sem mér finnst vera fárán
legt. Það gerir það að verkum
að sjónvarpsstöðvar eru ekki
til búnar að borga fyrir efnið en
kostnaður við að framleiða það
hefur ekkert minnkað.“
Það er samt búið að vera
brjá l að að gera, eins og Magn
ús orðar það, burtséð frá upp
tök um á sjónvarpsþáttum.
„Það er búið að setja upp
Lata bæjarleikrit út um allan
heim, það er búið að skrifa bæk
ur, starfa með ríkisstjórnum og
TexTi: svava JónsdóTTir
og frumkvöðlar