Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 96

Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 96
96 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Ferðaskrifstofan WOW­ferðir var stofnuð 29. febrúar 2012 og er hluti af WOW­fjölskyldunni, með sömu starfsstöðvar og WOW air. WOW­ferðir bjóða upp á skemmtilegar og áhugaverðar ferðir til allra áfangastaða WOW air með sérstaka áherslu á fjölbreyttar pakkaferðir við allra hæfi. WOW­ferðir bjóða upp á sérferðir, borgarferðir, golfferð­ ir, skíðaferðir, leikhúsferðir og menningarferðir svo fátt eitt sé nefnt. Inga Birna er nýtekin við starfi framkvæmdastjóra en hún hefur komið að ferðaþjónustu áður þar sem hún starfaði um skeið hjá Icelandair group, m.a. sem sölu­ og markaðsstjóri hjá Flugfélagi Íslands og sem forstöðumaður Vildarklúbbs Icelandair. Inga Birna segist hlakka mikið til að takast á við spennandi verkefni og er glöð yfir að vera komin aftur á heimaslóðir: „Þeg ­ ar maður er einu sinni kom inn í ferðabransann þá verður vart aft ur snúið. Nú stöndum við í ströngu við að skipuleggja golf­ og skíðaferðir. Um leið og haustið skellur á okkur vilja golf­ arar framlengja sumarið og við bjóðum upp á stórglæsilegar ferðir til Spánar í september og október. Enn aðrir eru komnir í vetrargírinn og strax farnir að festa sér skíðaferð og WOW air flýgur til Salzburgar frá 22. des­ ember til 2. mars, viðskiptavinir okkar geta því farið í skipulagða skíðaferð með WOW­ferðum til Austurríkis nú eða tekið flugið ein göngu og skipulagt sína skíða ferð sjálfir.“ Inga Birna er farin að skipu ­ leggja næsta ár, bæði ferðir fyrir Íslendinga og einnig ferðir fyrir erlenda ferðamenn til Ís­ lands. „Við ætlum að hugsa út fyrir kassann og koma til móts við alla flóruna og bjóða upp á skemmtilegar og öðruvísi ferðir á næsta ári ásamt að sjálfsögðu hefðbundnum ferðum eins og golfi, sólarferðum og borgarferð­ um. Heilsa og hreyfing skiptir mig miklu máli og ég hef mikinn áhuga á að skoða ferðir tengdar alls kyns hreyfingu; hjólaferðir, gönguferðir o.s.frv., bæði fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi og einnig fyrir Íslendinga erlendis.“ Inga Birna býr í Kópavogi ásamt dætrum sínum, Guðrúnu Köru 15 ára og Árnýju Eik 11 ára, en er fædd og uppalin í Keflavík. „Ég flutti til Reykjavík­ ur 1991 eftir stúdentspróf. Stuttu síðar ákvað ég að skoða heiminn, læra önnur tungumál og njóta framandi menningar áður en ég færi í frekara nám. Bjó m.a. í París og Ekvador, það var ótrúlega skemmtilegur tími og ég náði bara ágætum tökum á spænskunni, franskan var aðeins erfiðari. Ég útskrifaðist með BS­gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands vorið 1999 og með MBA­gráðu frá Há skólanum í Reykjavík vorið 2006. Stundum langar mig hrein lega til þess að setjast aft­ ur á skólabekk og læra eitthvað úr allt annarri átt, læknisfræði eða verkfræði, en ég er fljót að vakna upp af þeim draumi. Ég stunda golf af kappi, en velgengnin helst ekki alltaf í hendur við áhugann. Ég er frekar óþolinmóð og hefði viljað sjá forgjöfina lækka hraðar en raun ber vitni, en þetta kemur allt. Ég hef líka stundað skíði frá barnæsku, en foreldrar mínir voru duglegir að fara í Bláfjöll, Kerlingarfjöll og Skálafell með okkur systkinin. Ætla að reyna að komast til Austurríkis í skíðaferð eftir jólin, það yrði algjör draumur. Dætur mínar stunda einnig skíðaíþrótt ina, förum mikið í Bláfjöll og reyn ­ um að fara nokkrar helgar til Akureyrar yfir vetrartímann, en þær eru á snjóbrettum. Svo stunda þær báðar ballett í List ­ dansskóla Íslands og mér tókst svo að draga yngri dóttur mína í golfið en hún æfir golf með GKG.Svo hef ég bara áhuga á allri hreyfingu og útivist. Búin að æfa crossfit í rúmt ár og finnst það ótrúlega gott fyrir líkama og sál. Einnig hjóla ég mikið með góðri vinkonu minni, hleyp mér til gamans og fer á fjöll. Við mæðgur fórum saman í frábæra gönguferð á Fimmvörðuháls í sumar ásamt skemmtilegum vin ­ um og erum þegar byrjaðar að leggja línurnar fyrir skemmtilega gönguferð næsta sumar.“ Inga Birna Ragnarsdóttir – framkvæmdastjóri WOW-ferða „Ég stunda golf af kappi, en velgengnin helst ekki alltaf í hendur við áhugann. Ég er frekar óþolinmóð og hefði viljað sjá forgjöfina lækka hraðar en raun ber vitni, en þetta kemur allt.“ Nafn: Inga Birna Ragnarsdóttir Fæðingarstaður: Fæðingarheimilið í Reykjavík, 9. mars 1972 Foreldrar: Guðrún Árnadóttir og Ragnar Gerald Ragnarsson Börn: Guðrún Kara, 15 ára, og Árný Eik, 11 ára Menntun: BS í viðskiptafræði frá HÍ og MBA frá HR FóLk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.