Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 91

Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 91
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 91 TexTi: Hilmar karlsson roger moore Roger Moore er sá sem oftast hefur leikið James Bond eða sjö sinnum á árunum 1973 til 1985. Með komu hans í hlutverkið kom húmorinn. Moore fæddist í London 14. október 1927. Hann kom til greina í upphafi sem James Bond en var bundinn annars staðar. Áður en Bond­ myndirnar komu til sögunnar var hann þekktastur fyrir að leika Simon Templar í The Saint­ sjónvarpsseríunni. Moore komst vel frá seríunni og hefur alla tíð, bæði meðan hann lék Bond og eftir að hann lét af störfum, verið eftirsóttur leikari og leikið í mörgum kvikmyndum. Auk kvikmyndaleiks er hann í dag virkur í starfi fyrir UNICEF. Roger Moore var 45 ára þegar hann lék í A View To Kill og 57 ára þegar hann lék í Live and Let Die. James Bond-myndir rogers moores a view to a kill octopussy For Your eyes only moonraker the Spy Who loved me the man with the golden gun live and let die timothy dalton Ef Roger Moore var gagnrýndur fyrir að taka of létt á James Bond þá var túlkun Timothys Dalt ons algerlega á öndverðum meiði og þótti hann þunglama­ legur í hlutverkinu. Dalton fæddist í Wales 21. mars 1946. Hann naut mikillar virð ingar sem sviðsleikari og lék mörg fræg sviðshlutverk, m.a. í leikritum eftir Shakespeare. Dal­ ton lék í tveimur Bond­myndum og er aðalástæðan fyrir því að hann lék ekki í fleirum sú að sex ár liðu frá því Licence to Kill var gerð og þar til farið var að gera Goldeneye. Lítið hefur farið fyrir Dalton á undanförn ­ um árum en honum bregður þó af og til fyrir í kvikmyndum. Timothy Dalton var 41 og 42 ára þegar hann hann lék James Bond. James Bond-myndir timothys daltons the living daylight licence to kill pierce Brosnan Strax árið 1984 var farið að tala um Pierce Brosnan sem næsta James Bond, en skuldbinding hans í sjónvarpsseríunni Rem- mington Steele kom í veg fyrir að hann gæti þegið hlutverkið. Þegar hann loks fékk tækifærið var hann tilbúinn í hlutverkið og þykir hafa staðið sig með prýði. Brosnan fæddist á Írlandi 16. maí 1953 en ólst upp í Lond­ on. Remmington Steele var vinsæl sjónvarpssería og voru Brosnan allir vegir færir eftir að henni lauk og tók hann Bond fram yfir önnur kvikmyndahlut­ verk. Fyrsta Bond­myndin sem Brosnan lék í, GoldenEye, er vinsælasta Bond­myndin frá upp hafi. Pierce Brosnan var 42 ára gamall þegar hann lék Bond í fyrsta sinn og 49 ára þegar hann lék Die Another Day. James Bond-myndir pierce Brosnans goldeneye tomorrow never dies the World is not enough die another day daniel Craig Núverandi James Bond, Daniel Craig, þykir hafa komið með ferska sýn á hlutverkið og er almenn ánægja með framm i­ stöðu hans, en hann var valinn eftir að átján mánuðir höfðu farið í að leita að eftirmanni Pierce Brosnans. Craig fæddist í Chester á Englandi 2. mars 1968 og hafði átt velgengni að fagna í breskum kvikmyndum og sjónvarpi þegar hann skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki James Bonds. Meðfram því að leika Bond hefur Craig verið eftirsóttur kvikmyndaleikari og leikið í nokkrum ágætum kvikmyndum. Daniel Craig var 37 ára þegar hann lék í Casino Royale. James Bond-myndir daniels Craigs Casino royale Quantum of Solace Skyfall 007 kemur m til BJargar Tuttugasta og þriðja Bond-kvikmyndin, Skyfall, verður tekin til sýningar hér á landi 26. október, sama dag og í flest- um öðrum Evrópulöndum, m.a. Bretlandi. Í Bandaríkjunum verður Skyfall frumsýnd 9. nóvember. Í upphafi Skyfall hefur klúðrast aðgerð í Istanbúl sem James Bond var þátttakandi í. Bond er horfinn og er talið að hann hafi látið lífið. Þegar á netið leka upplýsingar um alla njósnara MI6 berast bönd- in að M og hætta er á að hún missi starfið. Þegar allt er að fara í háaloft birtist Bond og þar með fær M tækifæri til að hreinsa sig af ásökunum um að vera í sambandi við hættulegan glæpamann. Bond á samt eftir að efast um hollustu sína gagnvart M þegar hann kemst að ýmsu í fortíð hennar sem þolir ekki dagsins ljós. Auk Daniels Craigs, sem leikur Bond, eru í öðrum hlutverkum Judy Dench sem leikur M, Javier Bardem, Helen McCrory, Ralph Fiennes, Albert Finney, Bérénice Marlohe, Ola Rapace, Naomie Harris og Ben Whishaw, sem kominn er í hlutverk Q. Leiksjóri er Sam Mendes og er þetta í fyrsta sinn sem hann reynir sig við Bond. Mendes vakti mikla athygli fyrir sína fyrstu kvikmynd, American Beauty, sem vann til fimm óskarsverðlauna árið 2000, þar á meðal sem besta kvikmynd og Mendes fékk óskarinn sem besti leikstjóri. Ekki hefur hann fylgt vel- gengni American Beauty eftir, en leikstýrt fjórum kvikmyndum; Road To Perdition, Jarhead, Revo lutionary Road og Away We Go, allt ágætar myndir en engin stórvirki á sviði kvikmynda- listarinnar. Daniel Craig í hlutverki James Bonds. Í baksýn er hinn klass­ íski Bond­bíll, Aston Martin. Skyfall Timothy Dalton. Roger Moore. Pierce Brosnan. Daniel Craig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.