Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 8
8 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
FjármáL
FjárFestum
mismunað
Einstaklingar í fjárfestingum sitja ekki við sama
borð og lífeyrissjóðirnir
TexTi: Jón G. Hauksson
• Lífeyrissjóðir greiða hvorki fjármagnstekjuskatt né auðlegðarskatt enda sá
síðarnefndi eingöngu lagður á einstaklinga. Einstaklingar sitja ekki við sama
borð og lífeyr issjóðirnir í fjárfestingum.
• Er verið að brjóta jafnræðisregluna?
• Auðlegðarskatturinn er að soga burt allan arð einstaklinga og almennra hluthafa
en ekki líf eyrissjóða.
• Er auðlegðarskatturinn að fæla íslenska fjárfesta til útlanda, Sviss og Lúxemborgar?
• Ætti að láta hlutafélögin sjálf greiða auðlegð arskattinn frekar en hluthafana?
F
járfestum er mismunað veru
lega í sköttum. Ein stakl ingar
og félög í eigu einstakl inga
sitja ekki við sama borð og
lífeyrissjóðir í fjár fest ingum.
Líf eyris sjóðir greiða hvorki fjármagns
tekju skatt af arði né auð legðar skatt en
síðar nefndi skatturinn er eingöngu lagð
ur á einstaklinga og hjón og miðast við
skattalega eign. Auð legðar skatt urinn er í
raun að soga burt allan arð einstaklinga
af fjárfestingum og ýtir undir að þeir
flytji lögheimili sitt til útlanda, landa
eins og Sviss og Lúxemborg þar sem
þeir losna við þessa skatta vegna tví
sköttunar samninga.
Við birtum hér nokkur dæmi um
þessa mismunun. Lesendur sjálfur geta
svo leikið sér með hvaða tölur og fjár
hæðir sem er. Eitt dæmið sýnir að með
an lífeyrissjóðir greiða enga skatta af
vöxtum af innstæðu í banka þurfa eigna
mikil hjón sem fjárfesta á eigin vegum
eða í gegnum félag sitt að greiða 86% í
skatta af tekjum af banka inn stæð unni
sem og eigninni sjálfri.
Þessi staða er komin upp þegar aldrei
hefur verið eins mikilvægt að draga fjár
festa að atvinnulífinu og halda þeim á
Íslandi. Það er ljóst að ef ekki væri fyrir
gjaldeyrishöft ýtti auðlegðarskatturinn
einn og sér á eignafólk að flytja fé sitt úr
landi. Aðeins sex fyrirtæki eru skráð á
hluta bréfamarkað í kauphöll hér á landi.
Við mat á verðmæti hlutabréfa í þeim er
stuðst við markaðsvirði í árslok. Sé félag
hins vegar ekki skráð í kauphöll skal telja
fram hlutdeild í skattalegu bókfærðu
eigin fé félagsins. Þetta þýðir með öðr
um orðum að stöndugt fyrirtæki með
mikið skattalegt bókfært eigið fé er hátt
metið og eigendur bréfanna greiða auð
legðarskatt af eigin fé hlutafélagsins sem
þeir að öllu eðlilegu hafa ekki aðgang að.
AUðleGðArskAttUr eINGöNGU
á eINstAklINGA
Spyrja má sig hvort ekki væri eðlilegra að
auðlegðarskatturinn legðist á hlutafélagið
fyrst á annað borð er verið að miða við
A. 500 mkr. innstæða í banka
tökum dæmi af hjónum sem eiga 500
milljónir í banka og 200 milljónir í
öðr um eignum. (Hrein skatta leg eign
umfram þrepið er því 500 mill jóna króna
bankainnstæðan.) við skulum bera ávöxt
un hjónanna saman við lífeyrissjóð sem
á sömu fjár hæð inni á banka reikningi
og fær sömu vaxtatekjur. Gef um okkur
að ársvextirnir séu 3,0% en samkvæmt
heimildum Frjálsrar verslunar er mjög
sjaldgæft að fjárfestar fái meiri ávöxtun
en það hjá bönkunum.
ársvextirnir af bankainnstæðunni
eru 15 milljónir hjá báðum aðilum – en
raunverulegur arður mjög misjafn.
Nettótekjur lífeyrissjóðsins eru 15 millj
ónir af þessari inn eign (greiðir ekkert
í skatta) en nettó tekjur hjónanna af
innstæðunni eru 2,1 milljón króna. Það
er vegna þess að þau greiða 2,9 milljónir
í fjármagnstekjuskatt og 10 milljónir
í auðlegðarskatt (miðast við eign um
áramót og skatturinn kemur til greiðslu
á næsta ári).
Með öðrum orðum; hjónin fá
15 millj ónir í vaxta tekjur á ári af
bankaeigninni en þurfa að greiða
12,9 milljónir á ári af henni í skatta,
eða 86%.
B. 500 mkr. eign í hlutafélagi
Gefum okkur núna að stóreignahjónin
og lífeyris sjóð irnir eigi í hlutafélagi en
ekki innstæðu í banka. Hlutafélagið
greiðir út 15 milljónir í arð. Hjónin eiga
skattalega eign í hlutafélaginu upp á 500
milljónir króna eins og lífeyrissjóðurinn
og 200 milljónir í öðrum eignum eins og
húsnæði.
Útkoman er sú að hjónin þurfa að
greiða 10 milljónir í auðlegðarskatt
á næsta ári af eign sinni í fyrir tæk inu
en lífeyrissjóð urinn ekki neitt. Þá þurfa
þau að greiða 3 milljónir í fjármagns
tekjuskatt. Alls 13 milljónir í skatta.