Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 16
16 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Starfsmenn Marels söfnuðu yfir sex
milljónum.
Ingólfur Örn Guðmundsson gekk í 3 klst á holl enskum
klossum.
sEx milljÓnir söfnuðust
Í tour dE marEl
Í stuttu máli
Um 500 starfsmenn Marels um allan heim söfnuðu nýlega yfir sex milljónum króna til
góð gerðarmála á fyrsta alþjóðlega
Tour de Marelfjáröflunardeginum
15. september sl. þar sem starfsmenn
í 21 starfsstöð Marels í heiminum
komu saman með fjölskyldum og
vin um til að safna áheitum með
íþrótta iðk un. Yfir tvær milljónir
söfnuðust á Íslandi og rann sú
fjárhæð óskipt til Krabba meinsfélags
Íslands. Á meðal íþróttagreina
sem starfsmenn Marels á Tour de
Mareldeginum tóku þátt í voru
hlaup, sund, hjólreiðar, knattspyrna,
bootcamp og borðspil.
Theo Hoen, forstjóri Marels, hjólaði
þennan dag t.d. 120 kílómetra til
styrkt ar góðgerðarmálum í Hollandi.
„Tour de Marel endurspeglar
mikilvæg gildi sem við trúum á:
Teym isvinnu og skuldbindingu
ásamt húmor og skemmtun,“ segir
Theo Hoen.
Um 150 manns tóku þátt í
Tour de Marel á Íslandi í fimm
íþróttagreinum; 10 kílómetra hlaupi,
20 kílómetra hjól reiðum, þriggja
klukkustunda göngu, golfi og
bootcampþrautabraut. Auk þessa
sýndu um 1.000 manns stuðn ing í
verki og keyptu nýútgefinn geisla
disk Marel Blues Project, en ágóði
þeirrar sölu rennur til styrktar
góðum málefnum um allan heim.