Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 34
34 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Y-kYNslÓðIN
1. Leggur áherslu á persónuleg mark
mið og starfsþróun.
2. Vill fá tækifæri til að eflast og þró
ast persónulega.
3. Vill efla starfshæfni sína, óháð
því starfi sem hún sinnir í augna
blikinu.
4. Vill fá tækifæri til að stunda nám
sam hliða starfi.
5. Vill nýta sér stjórnendaþjálfun.
Erl endar rannsóknir sýna að
einstaklingar af þessari kyn slóð
kunna vel að meta stjórnenda
þjálf un (Coaching). Þeir sem hafa
fengið tækifæri til að nýta sér slíka
þjálf un upplifa umtalsvert meiri
starfsánægju en þeir sem ekki hafi
fengið tækifæri til þess.
6. Vill að fyrirtæki styðji þau í þátt
töku í fagfélögum eða hópum
sambærilegum við það sem við
þekkjum hérlendis t.d. í Stjórnvísi
og Dokkunni.
7. Vill fríðindi sem snúa að heilsu og
hreysti. Hafa verður í huga að fátt
er það sem öllum líkar og því er
alltaf þörf á einhverri fjölbreytni.
8. Hefur þörf fyrir endurgjöf en of
þröngar skorður, svo sem skipu
lögð starfsmannasamtöl, eru ekki
endilega besta leiðin. Finna þarf
hvað hentar hverjum og einum.
9. Leggur ríka áherslu á vinna fyrir
góðan málstað og við það sem
þau trúa á. Þau vilja að fyrirtæki
hafi góð gildi og sýni ábyrgð í
verki bæði gagnvart samfélagi og
umhverfi.
10. Vill heilsusamlegt og gott starfs
umhverfi sem veitir hvatningu og
innblástur.
Samfélagsmiðlar og rafræn tengsl eru
sjálfsagður hluti tilveru Ykynslóðarinnar.
Það er mikilvægt að vera opinn fyrir
hugmyndum þeirra um tækninýjungar
sem geta eflt og bætt samskipti á vinnu
staðnum og við viðskiptavini og aðra
hagsmunaaðila utan fyrirtækisins. En
mikilvægt er að muna að þó að þessi
kyn slóð nýti rafræna samskiptamiðla í
miklum mæli hefur hún ekki minni þarfir
en aðrir varðandi persónulega endurgjöf
og samskipti við stjórnendur, augliti til
auglitis. Að þessu þarf að hyggja ef efla á
áhugann.
stJÓrNeNDUr FrAmtíðArINNAr
En þegar fram líða stundir og þessi kyn slóð
tekur í auknum mæli við stjórnar taum um,
hvers er þá að vænta? Sagan segir að þess
megi vænta að þau leggi meiri áherslu
á samstarf og árangur heild ar innar en
fram úrskarandi árangur ein stakl inga.
Meiri áhersla verði lögð á að skapa fram
úrskarandi gæði en einungis að sigra í
sam keppninni.
Stjórnendur framtíðarinnar munu bera
aukna virðingu fyrir einstaklings bundn
um mun og veita svigrúm varðandi ólíkar
vinnuaðferðir og vinnutíma. Skörp skil
milli vinnutíma og frítíma munu dofna
og sveigjanleiki til að vinna að heiman
eða utan vinnustaðarins aukast. Fólk
verður tengt vinnustaðnum gegnum
tölv ur og síma og svarar hvenær sem er
sólarhrings. Þannig getur orðið enn erfið
ara að losna frá vinnunni þótt þú sért í
raun fjarverandi.
Stjórnendur af þessari kynslóð leita
að tækifærum, ekki vinnustað. Það
þýð ir ekki að þeir séu ekki tilbúnir í
skuldbindingar heldur eru þeir stöðugt í
þekkingarleit. Að hafa unnið á mörgum
vinnustöðum á skömmum tíma mun þess
vegna ekki endilega þykja ókostur.
Sagt er um þessa kynslóð að hún vinni
til að lifa, frekar en að lifa til að vinna.
Hún skilgreinir sig í meira mæli út frá því
sem hún aðhefst utan vinnu en því sem
hún starfar við. Löt eða ekki löt? Þessi
kynslóð er líkleg til að leita stöðugt leiða
til að ná meiri árangri á styttri tíma. Það
mun ef til vill veita aukið svigrúm til að
sinna áhugamálum og verja tíma með
fjöl skyldunni.
Hvort af þessu leiðir betri heimur, aukinn rekstrarárangur, aukin
starfs ánægja eða betra vinnuumhverfi
getur tím inn einn leitt í ljós. En eitt getum
við verið viss um. Áður en við vitum af
verður komin ný kynslóð nýaldarbarna
út á vinnumarkaðinn sem mun storka
viðteknum venjum og krefjast þess að
við hugsum enn á ný allt upp á nýtt. Það
heitir víst þróun sem í fyllingu tímans
verður eflaust kölluð framfarir.
Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Þróunarsetrið Eldey á Ásbrú býður frumkvöðlum og fyrirtækjum með
nýsköp un ar verkefni sem þarfnast stærra rýmis að leigja frábæra aðstöðu
á hag stæðu verði.
Í Eldey gefst skapandi einstaklingum og fyrir tækjum tækifæri til að fá stuðning,
fræðslu og ráðgjöf til að hrinda hug myndum sínum í fram kvæmd, og um leið
tækifæri til að efla tengs lanet sitt og finna mögu lega samstarf saðila.
Tæplega 30 fyrirtæki og samtök hafa í dag aðstöðu í Eldey sem gerir þetta
að einu af mest spennandi þróunarsetrum landsins.
Þróunarsetrið Eldey er rekið af Heklunni, Atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja.
Nánari upplýsingar á asbru.is og heklan.is
Stórar hugmyndir
þurfa mikið pláss
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-S
ÍA
-
1
2
2
6
2
4
stjórnun