Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 58

Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 58
58 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 verða að stækka Tekjurnar eru af auglýsingum og áskrift og einnig af þjónustu, til dæmis við að koma upp söngbókum. Áskriftargjöld fyrir þjónustu á netinu eru hins vegar alltaf lág. Það þýðir að notendur verða að vera mjög margir til að reksturinn gefi vel af sér. Til að stækka og komast áfram í harðri samkeppni þarf bæði fjárfesta og sambönd. Kjartan segir að tæknin hafi sannað sig og því ræðst framtíð­ in af markaðsmálunum. Yfirleitt er það svo að áhugasamir gítarleikarar leita á netinu eftir gripum og textum og nota leitarvélar eins og Google til þess að hefja leitina. Því skiptir öllu máli að koma fyrstur upp þegar spurt er um grip. Þá er gott að vita hvernig leitarvélar vinna og er það sérgrein Kjartans. Hann starfaði áður í markaðsdeild Icelandair og vann þar ásamt starfsmönnum Google að markaðssetningu vefja Iceland­ air. Kjartan segir að meira en helmingur umferðar á GuitarParty.com komi í gegnum leitarvélar. En það er ekki hægt að gera allt gegnum netið og margt af því sem GuitarParty.com stefnir á að gera næstu 12 mánuði krefst þess að unnið sé persónulega með sam­ starfs aðilum erlendis, persónuleg samskipti ráða oft úrslitum um hvort viðskipti takast. Til að þessi markmið náist er GuitarParty. com að ræða við fjárfesta um fjármögnun fyrirtækisins. Eyþór Bender hóf feril sinn hjá Hewlett Packard í Þýskalandi en þar lærði hann viðskiptafræði.an lá leiðin til stoðtækjafyrirtækisins Össurar þar sem hann starfaði í 13 ár. Síðustu fimm árin hjá Össuri rak Eyþór Ameríkudeild fyrirtækisins.komst hann í kynni við vísindamenn hjá Berkeley­háskóla sem voru að koma á legg sprotafyrirtæki í kringum gönguþjarka. Eyþór tók við starfi forstjóra Ekso Bionics árið 2010. Það er hægt að nota orðin að „koma á legg“ í bókstaflegri merkingu því göngu þjark inn gerir fólki sem er lamað vegna mænu skaða kleift að standa upp og ganga. Fjórir mót ­ orar knýja mjaðmir og hné og koma í stað vöðvaafls. Á bakinu er tölva og raf hlöður sem knýja þjarkann. Aðrar útgáfur miða að því að hann nýtist við erfiðisvinnu með því að taka álag af líkamanum og leyfa þannig notanda að lyfta þungu fargi eða bera þungar byrðar. Afhending á tækinu hófst í febrúar á þessu ári eftir nokkurra ára vöruþróun og prófanir. Rúmlega tuttugu endurhæfingarspítalar hafa tekið tækið í notkun beggja vegna Atlantshafs og von er á að sú tala tvöfaldist fyrir lok ársins. Tækniumhverfið vestra Núna starfa 86 manns hjá Ekso Bionics, þar af þrír Íslendingar. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 40 verkfræðingar og 10 þeirra eru með doktorspróf í sínum greinum. Það hefur mikið að segja um staðsetningu Ekso Bion­ ics í San Francisco­flóanum. Upphaflega er hugmyndin héðan og tækniumhverfið hér forsenda þess að hægt sé að þróa hana,“ segir Eyþór. „Framleiðslan byggist á hátækni og núna er varla völ á kunnáttumönn um í þessum tæknigreinum nema hér í San Fran­ cisco og hugsanlega í Boston. Markaðurinn er í fyrstu hjá endurhæfingar­ stöðvum og sjúkrahúsum víða um heim en gönguþjarkinn verður síðar þróaður til heima nota. Það tekur að sögn Eyþórs um þrjá daga að læra að ganga með þess­ um hætti og þá næst hálfur venjulegur gönguhraði. Öllu er stýrt gegnum nema en tækið er ekki tengt taugakerfi líkamans. „Við erum á byrjunarreit í þessari þróun því eftir fáein ár mun okkur ekki bregða við að sjá fólk ganga niður Laugaveginn í vel hönnuðum gönguþjarki,“ segir Eyþór Bender. „Á síðunni eru birt gítargrip, auk þess sem notandinn getur valið um að skipta þeim út fyrir ukulele­grip, en hljóðfærið ukulele nýtur vaxandi vinsælda.“ „Upphaflega er hugmyndin héðan og tækniumhverfið hér forsenda þess að hægt sé að þróa hana.“ Eyþór Bender. Gönguþjarkinn gerir lömuðu fólki kleift að standa upp úr hjólastólunum og ganga. og frumkvöðlar Enn sem komið er kallast tækið gönguþjarki eða gengill. Ný nöfn eru vel þegin því tækið þróast stöðugt og á í framtíðinni ekki aðeins að nýtast lömuðum heldur öllum sem þurfa á auknum styrk að halda. Það á þá jafnt við um leik, störf og daglegt líf. tækniLeGt GönGulAGEyþór Bender hjá Ekso Bionics í San Francisco:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.