Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Í stuttu máli
BÆTTU SMÁ DENVER Í LÍF ÞITT
Verð frá 44.900 kr.
Þessi ferð gefur frá 2.700 til 8.100 Vildarpunkta aðra leiðina.
+ Bókaðu núna á icelandair.is
Lögmaður og fyrrverandi stjórnarmaður í Kaup þingi, Bjarn freður
H. Ólafsson, er sömu leiðis
ákærður og þess krafist að
hann verði sviptur lögmanns
rétt indum. Tvímenn ing unum
er gefið að sök að hafa beitt
blekkingum til að tryggja yfir
ráð yfir Exista.
Það vekur athygli að þetta
er kæra vegna gjörnings eftir
banka hrun, eða í desember
2008 þegar hlutafé í Exista var
aukið um 50 milljarða króna og
þeir bræður í Bakkavör tryggðu
sér það.
Lýði er gefið að sök stórfellt
brot á hlutafélagalögum með
því að greiða einungis einn
milljarð króna. Milljarðurinn
kom frá Lýsingu hf., sem var
félag í eigu Exista, í formi láns
en samkvæmt ákæru rann
upphæðin aldrei inn í rekstur
Exista.
Bjarnfreður H. Ólafsson,
héraðs dómslögmaður og fyrr
verandi stjórnarmaður hjá
Kaupþingi, sendi sama dag
og gengið var frá kaupunum
að undirlagi Lýðs villandi
tilkynningu til ríkisskattstjóra
og Verðbréfaskráningar Íslands
um að hlutafé Exista hefði verið
aukið um fimmtíu milljarða
króna sem greitt hefði verið
fyrir að fullu.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálf stæðis flokksins,
gefur ekki kost á sér sem
varaformaður flokksins
á næsta landsfundi og
hættir á þingi í vor. Hún
hyggst flytja til Sviss en
Tómas Már Sigurðsson,
eiginmaður hennar, tók fyrr
á árinu við sem forstjóri
Alcoa í Evrópu og eru
höfuðstöðvarnar í Sviss.
lýður Guðmundsson
ákærður
Ólöf flyst til sviss
tvær þyrlur oG kaf
bátur um borð
Sérstakur saksóknari hefur ákært lýð Guðmundsson,
fyrrverandi stjórnarformann exista, fyrir stórfellt brot
gegn hlutafélagalögum.
Lýður Guðmundsson.
Ólöf Nordal.
Octopus, lystisnekkja milljarðamæringsins Pauls Allens, eins af stofnendum Microsoft, lá um nokkurt skeið á ytri höfninni í Reykjavík í sumar og var í huga sumra orðin eins konar „stofuprýði“ í höfninni. Octopus hefur haft viðkomu
í Reykjavík undanfarin sumur. Um mitt sumar tók Allen þátt
í leiðangri konunglega breska sjóhersins á Octopus að flaki
herskipsins HMS Hood sem var skotið niður af þýska herskip
inu Bismarck árið 1941 á Danmerkursundi milli Grænlands og
Íslands.
Octopus, lystisnekkja Allens, er 4.141 fet á lengd og hefur
að geyma tvær þyrlur, fjarstýrð köfunartæki og kafbát. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem Allen býður snekkjuna fram til
leitarstarfa því í apríl síðastliðnum lánaði hann skipið til leitar í
Kyrrahafi eftir að flugvél hvarf á þeim slóðum.
Octopus, lystisnekkja Pauls Allens, hefur verið áberandi
í ytri höfninni í sumar.