Frjáls verslun - 01.10.2012, Blaðsíða 40
40 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012
Solveig K. Jónsdóttir. „Þessar tíu eru allar frábærar og svo
hefði verið hægt að nefna tugi í viðbót.“
Solveig gerir ekki upp á milli tíu bestu bókanna.
„Bækurnar sem ég nefni eru ákaflega áhuga verð ar og
vel úr garði gerðar frá hendi höfunda, ljós myndara,
teiknara, þýðenda, ritstjóra, prófarka lesara, umbrots-
manna, kápuhöfunda, starfsmanna prentsmiðja og
útgefenda,“ segir Solveig K. Jónsdóttir bókmennta-
gagnrýnir. „Allir sem að þeim stóðu geta verið stoltir
af sínu verki. Og svo eru það allar hinar bækurn-
ar sem vert hefði verið að nefna. Mér er lífsins
ómögulegt að taka eina og setja efsta.“
AppelsínurfráAbkasíu, Vera
Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsan
irnar miklu – Jón Ólafsson
Fortíð og nútíð tala saman og
samræðan er ein af ástæðum þess
hve áhugaverð saga Veru Hertzsch
verður í meðförum Jóns Ólafssonar.
Höfundur tengir Stalínstímann við
önnur tímabil í sögu Sovétríkjanna,
Rússlands og Íslands og fjallar um
endursköpun minninganna um valda
tíma Stalíns.
Bjarna-Dísa – Kristín Steinsdóttir
Dísa er varnarlítil frammi fyrir óblíðri
náttúru og viðskotaillu samfélagi en
stundum er líka gaman að lifa því Dísa
er ung og lífsglöð og á sér drauma.
Kristín fer nærfærnum höndum
um Dísu og bókin skilur eftir góða
tilfinningu sem fylgir væntumþykju og
skilningi.
ð – ævisaga – Stefán Pálsson, Anton
Kaldal Ágústsson, Gunnar Vilhjálmsson
og Steinar Ingi Farestveit
Merkilega viðburðarík, fróðleg og
skemmtileg bók um málsögu og staf
setningu. Kemur áreiðanlega mörgum
á óvart sem ekki höfðu málfræði að
uppáhaldsfagi.
Vel úr garði gerðar
Églæðistframhjáöxi – Beate Grims
rud, þýðandi Hjalti Rögnvaldsson
Pabbi er sjaldan í vinnu, mömmu lang
ar að hafa allt fínt og akkúrat, börn in
eru mörg og eitt til viðbótar á leið inni.
En sagan fjallar þó fyrst og fremst um
stelpuna Lydíu sem oft er ringl uð en
alltaf til í að skoða málin frá nýju sjónar
horni. Hún vill komast til botns í furðum
veraldar og óskiljanlegri atburðarás
lífsins. Falleg þýðing á góðri bók.
MaxímúsMúsíkúsbjargarball
ettinum – Hallfríður Ólafsdóttir og
Þórarinn Már Baldursson
Þriðja bókin um Maxímús sem
enn kemur fögrum listum til að
stoðar og lýkur upp heimi tónlistar
fyrir ungum lesendum. Vönduð og
skemmtileg eins og fyrri bækurnar
um Maxímús húsamús í Hörpu.
Reykjavíkurnætur – Arnaldur Indriðason
Erlendur er alíslenskur og manneskju
legur á besta mögulega máta. Ritsnilli
Arnalds er óumdeild og lesandinn
fyllist undarlegum áhuga á þessum
durtslega lögreglumanni og volæðinu
sem hann upplifir í erfiðu starfi á
köldu landi.
SaganafklaustrinuáSkriðu –
Steinunn Kristjánsdóttir
Fáir þekkja sögu íslenskra klaustra
en hana segir Steinunn. Hún tvinnar
sam an við söguna af Skriðuklaustri
fyrr og síðar og af uppgreftri fornleif
anna á Skriðu. Góðar skýringarmyndir
og teikningar prýða bókina ásamt
ljósmynd um sem styðja textann. For
vitnileg bók um sértækt efni sem gert
er aðgengilegt fyrir alla.
Stafnbúi – Steindór Andersen og
Hilmar Örn Hilmarsson
Rannsóknir benda til þess að
sagnaljóðahefðin láti undan síga
þegar hlustendur og flytjendur læra
að lesa og skrifa og fá ljós til að
lesa í frístundum. Rímurnar eru til
á bókum en tala má um endur
reisn þeirra í meðförum Steindórs og
Hilmars. Bókmenntaformið lifir með
tónlistinni. Bókin er falleg og saga
rímnahefðarinnar áhugaverð.
Strandir – Gerður Kristný
Gerður Kristný er ljóðskáld fyrir alla,
líka þá sem lesa ekki ljóð. Ljóðmál
hennar er fagurt og skýrt og mynd
málið tært og ferskt.
Undantekningin
– Auður Ava Ólafsdóttir
Ljóðrænn texti og fallegar myndlík
ingar einkenna Undantekningu Auðar.
Sagan er um nútímafólk með nútíma
vandamál og það er frískandi að sjá
höfund horfast í augu við samtíð sína,
skerpa myndina af henni á dálítið ýktan
hátt og takast svona ljómandi vel upp.
bækur ársins