Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 82

Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 82
82 FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, segir margt standa upp úr á sínu fyrsta heila ári sem forstjóri VÍS. Út á við hafi líklega borið hæst nýtt merki fyrirtækisins og ríka áherslu á forvarnir. Í forvörnunum sé horft til framtíðar til að fyrirbyggja slys með viðskiptavinum. Inn á við hafi umfangsmikil stefnumótunarvinna skilað mjög góðum árangri. Forvarnir og öryggi viðskiptavina leiðarljós VÍS Þegar litið er um öxl á þessum tímamótum er mér ofarlega í huga hve starfs menn VÍS voru samstilltir, áhugasamir og duglegir að taka þátt í að móta og innleiða nýja stefnu fyrirtækisins,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir. „Ég er ákafl ega stolt af því hvernig til tókst, bæði inn á við og út á við, sem hefur meðal annars skilað sér í góðum árangri í rekstrin- um. Hlutverk okkar er að veita framúrskarandi þjónustu, vernd og stuðla að öflugum forvörnum. Þetta gerum við af umhyggju, fagmennsku og með árangursríkum hætti svo viðskiptavinir verði þess vel varir, enda eigum við mikla sameiginlega hagsmuni með þeim í því að fækka slysum og tjónum“ meðvituð um samfélagslega ábyrgð Eðli málsins samkvæmt hvílir rík samfélagsleg ábyrgð á tryggingafélagi. „Við erum þess vel meðvituð og segja má að allt okkar starf snúist um samfélagsábyrgð. Við leitumst stöðugt við að efla áhættuvitund þjóðarinnar og koma öryggishugsun inn hjá fólki þannig að það tileinki sér forvarnir í sem víðustum skiln- ingi, ekki bara viðskiptavinir okkar heldur allir. Forvarnir eru okkar leiðarljós. Við trúum því að hægt sé að fyrirbyggja slys og eigum t.d. ekki að sætta okkur við eitt einasta banaslys í umferðinni. Þótt þeim kunni að fækka um helming milli einhverra tiltekinna ára er ár ang urinn samt óviðunandi ef þau eru eitt eða fleiri. Okkur hefur tekist að virkja fyrirtæki í skráningu þess sem við köllum næstum því slys. Þannig koma menn auga á hvar hætturnar leynast og gefst tækifæri til að bæta úr, sem er vitaskuld af hinu góða. Slysin gera nefnilega boð á undan sér í flestum ef ekki öllum tilfellum og betra er heilt en vel gróið.“ Athyglisverðar auglýsingar Samhliða kynningu á nýju merki fór VÍS fremur ótroðnar slóðir í auglýsingum síðla sumars og í haust með öðrum áherslum en hefðbundið gæti talist í tryggingageiranum. „Við ákváðum að hafa léttleikann í fyrirrúmi en þó með alvarleg- um undirtóni. Forvarnirnar eru sem fyrr þungamiðjan en aðalpersónan er algjörlega úti að aka í þeim. Henni er nánast fyrirmunað að gera nokkuð rétt en þá kemur umhyggjusöm rödd skynseminnar í lok hverr- ar auglýsingar og leiðir okkur af fagmennsku í allan sannleika um rétt og rangt. Þessar auglý s- ingar vekja mikla athygli. Sem dæmi má nefna að þær hafa verið skoðaðar vel yfir fjörutíu þúsund sinnum á youtube- vefnum. Við höfum líka fengið mikil bein viðbrögð við þeim þar sem fólk segist hafa tekið skilaboðin til sín og tileinkað sér. Til dæmis hvað snertir bil á milli bíla, sem er sú auglýsing sem hvað mesta athygli hefur vakið. Hlutverk okkar er að vernda og beita öllum ráðum til þess. Að tvinna það saman við húmor gefur góða raun að því er virðist.“ Forvarnarfrumkvæði starfs­ manna Starfsmenn VÍS hafa tekið áskor un stjórnenda um að sýna frumkvæði í forvörnum opnum örmum. Þeir komu á fót hópi sem hefur veg og vanda af Upplýsingar Um fyrirtækið: Velta: 2011: 18,6 milljarðar króna fjöldi starfsmanna: 222 forstjóri: Sigrún Ragna Ólafsdóttir stjórnarformaður: Benedikt Jóhannesson stefnan: VÍS stefnir að því að verða það tryggingafélag sem aðrir líta til sem fyrirmyndar á öllum sviðum; í rekstri, ánægju viðskiptavina, rafrænni þjónustu, árangursríku forvarnarstarfi og sem framúrskarandi vinnustaður. TexTi: sVAVA JónsdóTTir/ Mynd: Geir ólAfsson uM áraMót VÍS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.