Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Side 31

Frjáls verslun - 01.03.2015, Side 31
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 31 N ýverið skapaðist fjöl miðlaumræða um stuðning eins ráð ­ herra við útflutnings ­ fyrir tæki. Þetta er sérstakt á Íslandi og margir virðast halda að utan ríkisþjónustan eigi bara að halda sig við móttökur stjórnmála­ legs eðlis og skilaboð fyrir stjórn­ völd fram og til baka. Þá er í lagi að styðja við einstaka listamenn og rithöfunda. Þegar ég heimsótti Peking í fyrsta sinn 2006 var Mitterrand Frakklandsforseti staddur þar og í blaði sem lá frammi í íslenska sendiráðinu kom fram að hann væri þar í sinni fimmtu ferð frá embættistöku og væri að liðka fyrir franska olíufyrirtækinu Total til að ná samningum við Sino­ pec ­orkufyrirtækið og einnig væri hann að hjálpa til við að selja Airbus­flugvélar. Hvort tveggja hefði verulega þýðingu fyrir Frakkland. Það var enginn vælutónn í kringum þetta og sýnir hvernig utanríkisþjónusta flestra landa starfar í dag og hvaða hlut ­ verk ráðamenn leika, allavega í þessum heimshluta.“ Árni Þór Árnason segir að í mars hafi Oxymap­nýsköp ­ unar fyrirtækið skrifað undir áhuga verðan viðskiptasamning í Kína sem geti haft verulega þýðingu fyrir það. „Við leituðum til Júlíusar Hafstein sendiherra með viðskipta þjónustu utanríkis­ ráðuneytisins sem tengdi okkur við sendiráðið í Peking og það var meira en sjálfsagt að aðstoða og skapa flotta umgjörð þar sem skrifað var formlega undir samstarfið. Ragnar Baldursson sendifulltrúi stýrði athöfninni með glæsibrag á kínversku, japönsku, ensku og íslensku þannig að gestir okkar voru mjög upp með sér. Þeir töluðu fæstir ensku þannig að þetta útspil okkar gerði litla fyrirtækið með sex starfsmenn, sem gerði samning við 600 manna fyrirtækið, mun álitlegra. Við lofum aftur á móti að skapa meiri gjaldeyristekjur en það er málið.“ Samstarf utanríkisþjónustunnar og fyrirtækja árni ÞÓr árnaSon framkvæmdastjóri Oxymap ehf. FYRIRTæKJAREKSTUR Practical og Congress Reykjavík hafa nú sameinað krafta sína undir merkjum CP Reykjavík. Við erum frísklegt og skapandi þjónustufyrirtæki sem skipu- leggur viðburði, ferðir og ráðstefnur fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini. www.cpreykjavik.is Við gerum viðburðaríkara RÁÐSTEFNUR / VIÐBURÐIR / HVATAFERÐIR I ngrid Kuhlman segir að sjaldgæft sé að nýir stjórn­ endur séu framúrskarandi frá fyrsta degi í nýju starfi enda sé um lærdómsferli að ræða. Hún nefnir fimm algengustu mistök þeirra. „Þeir sköruðu oft fram úr í sínu fyrra starfi og höfðu mikið sjálf­ stæði og ákvarðanavald. Þeir búast við meira valdi í nýju starfi og eru oft hneykslaðir yfir því hversu aðþrengdir þeir eru og háðir yfirmönnum, starfsmönn­ um og meðstjórnendum. Nýir stjórnendur halda í öðru lagi oft að vald fylgi stjórnendastarfinu en læra fljótt að starfsmenn bregðast ekkert endilega við fyrirmælum. Það tekur þá yfirleitt smátíma að átta sig á því að þeir þurfa að ávinna sér virðingu og traust starfsmanna.“ Ingrid segir að í þriðja lagi haldi nýir stjórnendur oft að þeir verði að hafa stjórn á undirmönn­ um sínum. „Ef þeir eru óöruggir krefjast þeir skilyrðislausrar hlýðni frá starfsmönnum en hlýðni er ekki það sama og holl usta. Það er mikilvægt fyrir stjórn endur að skapa hollustu við sameiginleg markmið og fá alla til að stefna í sömu átt. Í fjórða lagi halda nýir stjórn ­ end ur oft að mikilvægt sé að mynda góð tengsl við einstaka starfs menn. Í stað þess ættu þeir frekar að einbeita sér að því að byggja upp gott teymi með því að styrkja menninguna og vinna með gildi teymisins – þannig get­ ur nýr stjórnandi ýtt undir frammi­ stöðu einstakra starfsmanna. Í fimmta lagi er algengt að nýir stjórnendur haldi að starf stjórn andans snúist um að láta hlutina ganga smurt. Þeir þurfa hins vegar að átta sig á að þeir bera ábyrgð á að hafa frum­ kvæði að og innleiða breytingar sem munu bæta frammistöðu hópsins. Það þýðir líka að það þarf oft að ögra viðteknum ferlum eða skipulaginu.“ Fimm algengustu mistök nýrra stjórnenda HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN ingrid kuHLman framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar „Það tekur þá yfirleitt smátíma að átta sig á því að þeir þurfa að ávinna sér virðingu og traust starfsmanna.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.