Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2011, Qupperneq 60

Frjáls verslun - 01.02.2011, Qupperneq 60
60 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 orka og iðnaður að hér er að vaxa og dafna umsvifamikil stoð þjónusta við áliðnað svo sem í uppbygg­ ingu, viðhaldi og rekstri álvera. Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar í Hafn­ ar firði er skemmtilegt dæmi um slíkt. Það fyrirtæki er mjög umsvifamikið í þjón ustu við áliðnað, ekki aðeins hér á landi, held ur hefur það flutt út vörur tengdar áliðnaði til 19 landa. Þetta eru tæki sem hönnuð hafa verið, þróuð og framleidd fyrir álverin á Íslandi. Annað ágætt dæmi er verkfræðistofan HRV sem sinnir nú verkefnum fyrir álverin sem erlendir aðilar sinntu áður. Það er að verða til klasaþekking á þessu sviði og ekki ólíklegt að við sjáum hér verða til öflug fyrirtæki tengd áliðnaði sem muni í vax andi mæli flytja út vörur sínar og þekk ingu.“ tækiFæri til nýsköpunar Þorsteinn segir að nýsköpun í áliðnaðin­ um skili auknum útflutningstekjum. „Stórt verkefni er framleiðsla álvírs hjá Fjarðaáli. Einnig er verið að breyta framleiðslunni í Straumsvík í svokallaða bolta sem eru verðmeiri afurð en núverandi framleiðsla. Jafnframt má nefna álþynnuframleiðsluna fyrir norðan sem er áltengd afurð. Þar að auki eru tvö eða þrjú verkefni í athugun hjá sjálfstæðum aðilum um frekari úrvinnslu áls. Tækifærin til nýsköpunar eru margs konar. Ég held að við eigum á næstu árum eftir að sjá mörg fyrirtæki sem hafa mikla þekkingu á áliðnaði flytja hana til annarra landa. Þessa þróun sáum við á sínum tíma í kringum sjávarútveginn þegar Marel og fleiri fyrirtæki gátu vaxið og dafnað í krafti öflugs iðnaðar heima fyrir. Þótt vægi íslensks sjávarútvegs í starfsemi Marels sé ef til vill ekki mikið í dag lék hann lykilhlutverk á uppvaxtarárum félags­ ins. Ég tel mjög líklegt að við eigum eftir að sjá sambærilega þróun hjá fyrirtækjum sem þjón usta áliðnað.“ Þorsteinn segir mikla verðmætaaukningu hafa orðið í orkuiðnaðinum í tengslum við álframleiðsluna. „Gjarnan er gert lítið úr þessum þætti. Á liðnum áratug hefur raforkusala til stóriðju nærri þrefaldast. Á sama tíma hefur hagnaður orkufyrirtækj­ anna fyrir fjármagnsliði og afskriftir nær fimmfaldast og eigið fé aukist úr 86 milljörð um króna í rúma 300 milljarða króna. Raforku sala til stóriðju virðist því skila ágætri arðsemi.“ stöðugleikinn kostur Stöðugleiki er einn af kostum áliðnaðar­ ins, að mati Þorsteins. „Meðallíftími álvers er 50­60 ár. Verðmætasköpunin í kringum eitt svona fyrirtæki er mikil á svona löng um tíma. Stöðugleikinn er jafnframt hag stæður fyrir raforkukerfið. Það er ekki verið að draga úr framleiðslunni eða auka hana eftir sveifl um. Það er keyrt á fullum afköstum árið um kring sem skapar mikið tekjuflæði.“ Álfyrirtækin þrjú eru öll með áætlun um aukna framleiðslu á næstu árum. Álverið í Straumsvík er nýbúið að endurnýja raforkusamning við Landsvirkjun til næstu 25 ára, að því er Þorsteinn greinir frá. „Það eru 45 ár frá því að framkvæmdir hófust í Straumsvík. Þar er enn verið að stækka og fjárfesta þar sem auka á fram­ leiðsluna um 40 þúsund tonn. Fjarðaál hef­ ur unnið að straumhækkunarverkefni sem mun auka afkastagetuna um 14 þúsund tonn á ári. Svo standa yfir framkvæmdir Norðuráls við álver í Helguvík en afkasta­ geta þess er áætluð allt að 360 þúsund tonn.“ Þótt vægi íslensks sjávarútvegs í starfsemi Marels sé ef til vill ekki mikið í dag lék hann lykilhlutverk á uppvaxtarárum félags ins. Ég tel mjög líklegt að við eigum eftir að sjá sambærilega þróun hjá fyrirtækjum sem þjón usta áliðnað. Ál gefur okkur einstaka möguleika þegar kemur að hönnun mannvirkja. Sem byggingarefni býður það upp á nýjar leiðir við að nýta dagsbirtu og samspil ljóss og skugga. Segja má að í álinu sameinist notagildi og glæsileiki. Burðarvirki úr áli koma sér vel þegar byggingar þurfa að falla vel að umhverfinu. Slík hönnun opnar jafnframt ýmsar leiðir til bættrar orkunýtingar. Ekki má gleyma því að ál er endurvinnanlegt og hægt að byggja úr því aftur og aftur. www.alcoa.is Fyrir samFélagið, umhverFið og komandi kynslóðir. Fyrir umhverFið létt, sterkt og náttúruvænt ÍSLE N SK A /S IA .IS A L C 54349 03/11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.