Frjáls verslun - 01.02.2011, Side 68
68 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
Orka Og iðnaður
eldsneytið brennur upp áður en það fer út
í pústið. Krafturinn verður meiri og margir
lýsa reynslu sinni þannig að auk meiri krafts
sé mun léttara að aka, hvort sem það er bíll
eða mótorhjól. Ef við tökum Harley David
son, sem við lögðum áherslu á í upphafi, þá
er slíkt hjól í kringum 250 kg og segja þeir
sem eru með vetnisrafalinn að það sé eins
og hjólið hafi lést um 50 kíló.“
Að sögn þeirra félaga hefur verið mun
auðveldara að eiga við mótorhjólin. „Það
sem helst háir því að jafnauðvelt sé að nota
vetnisrafalinn í bíla og mótorhjól eru tölv
urn ar sem eru í flestum nýlegum bílum í
dag. Tölvurnar eru í raun allar prógrammer
aðar fyrir bensínið og það sem truflar mest
eru svokallaðir pústsensorar sem mæla
súr efni, mæla hvað mikið er af óbrunnu
elds neyti eftir á bílnum sem fer út í pústið.
Alltaf fer eitthvað af óbrunnu eldsneyti í
gegnum pústið þannig að þegar farið er að
setja örlítið vetni og brenna upp allt bensínið
heldur sensorinn að þarna sé alltof þunn
blanda og hönnun tölvubúnaðarins gerir
það að verkum að eyðslan eykst. Við höfum
náð að bregðast við þessu vandamáli með
sérstöku elektrónísku tæki sem við kaupum
að utan og leiðir sensorinn í gegn og breytir
signalinu.“
Hvað varðar vetnisrafalinn sjálfan fór
mest ur tími þróunarinnar í að búa til rafal
sem myndi endast. „Þarna stóð hnífurinn
í kúnni. Aðallega var það tæring sem við
vorum í vandræðum með en okkur tókst
loks að koma í veg fyrir hana. Staðan í dag
hjá okkur er sú að við erum nánast komnir
alla leið með rafalinn og höfum 100% trú á
tækinu sjálfu. Rafallinn smellpassar í alla
bíla sem eru með það sem við getum kallað
gamaldags mótor og mótorhjólin eru eins og
sköpuð fyrir vetnisrafalinn. Síðan erum við
að undirbúa að fara betur í tölvubílana en
það er gífurleg vinna. Við eyddum löngum
tíma í eina tilraun og þegar hún fór að virka
var árangur erfiðisins mikill og bíllinn gjör
breyttist í akstri og varð mun öflugri á lægri
snúningi.“
Hvað varðar sparnað þá kemur hann
þeg ar ekið er varlega eða í langakstri. „Mín
reynsla,“ segir Helgi, „er að ég er með stór
an Ford sem er 2,6 tonn og mér hefur alltaf
fundist hann þungur og náði honum aldrei
undir 18 lítrum í langkeyrslu. Nú eftir að
ég er búinn að fínstilla vetnið inn á hann
mældi ég leiðina til Akureyrar og til baka
á kringum 95 km hraða og náði honum
niður í 12,6 á hundraðið þrátt fyrir allar
heiðar og brekkur á leiðinni. Þegar ég fer
svo til Keflavíkur næ ég honum undir 12
á hundraðið þannig að þetta er talsverður
árangur. Á móti kemur að bíllinn er orðinn
svo skemmti legur í akstri að stundum á ég
það til að verða eins og átján ára strákur
sem er að setjast undir stýri á kraftmiklum
bíl í fyrsta sinn, er alltaf að gefa í og þá er
sparnaðurinn enginn. Þannig að segja má að
ég nýti ekki sparnaðinn til fulls.“
Þegar er byrjað að kynna vetnisrafalinn í
útlöndum, m.a. Bandaríkjunum og Bretlandi.
„Við erum farnir af stað með mótorhjólin,
enda mun auðveldari markaður að eiga
við, og höfum sérstaklega beint sjónum að
Harley Davidson þar sem við vitum að þau
hjól eru dýr og eigendurnir vilja hafa þau
fullkomin. Þess má svo geta að við vorum
að fá sendan póst frá bresku blaði sem vill
fá allar upplýsingar sendar til sín og gera
prófanir og birta grein um árangurinn. Við
höfum verið að kynna vöruna hér á landi
með góðum árangri og munum gera átak í
kynningu á erlendum markaði en þar sem
þróunartíminn hefur verið mun lengri en
áætað var er peningahliðin ekki alltof sterk
hjá okkur. Vonandi rætist úr með allri þeirri
athygli sem vetnisrafallinn hefur fengið.“
Helgi Hilmarsson og Sveinn Hrafnsson hafa verið að þróa vetnisrafal í mótorhjól og bíla í rúm þrjú ár og eru bjartsýnir á að árangur erfiðisins fari að skila sér.
Bíllinn er orðinn svo skemmtilegur í akstri að stundum á ég það
til að verða eins og átján ára strákur og gef í, en þá verður sparn
aðurinn lítill.Vetnisrafallinn er ekki stór og er eins og hannaður
fyrir mótorhjól og passar í alla bíla.
Fagmennska í stóriðju snýst um sátt. Sátt á hnattræna vísu og sátt við samfélagið í kring. Sátt við
stjórnvöld, viðskiptavini og starfsfólk. Sátt við lífríki náttúrunnar og það jafnvægi sem ávallt þarf
að ríkja á milli nýtingar náttúruaðlinda til verðmætasköpunar og verndunar þeirra fyrir ágangi og
eyðileggingu.
Elkem á Íslandi nýtur góðs af þekkingu og metnaði í baklandi sínu hjá Elkem AS sem með vönduðum
verkferlum og öflugu þróunarstarfi leitar víðtækrar sáttar um starfsemi sína víða um heim. Eftir
ríflega þrjátíu ára rekstur verksmiðjunnar á Grundartanga er Elkem á Íslandi stolt af því að vera á
meðal flaggskipanna í flota Elkem. Með öryggi og fagmennsku að leiðarljósi leggjum við mikilvægt
lóð á vogarskálar sáttar um framleiðslu hágæða málmblendis fyrir heimsbyggðina alla.
SÁTT
ze
b
ra
Elkem Ísland | Grundartanga | 301 Akranes | elkem@elkem.is | elkem.is