Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2011, Side 79

Frjáls verslun - 01.02.2011, Side 79
FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 79 Scott Bedbury, fyrrverandi markaðsstjóri Starbucks og Nike, var aðalfyrirlesarinn á Ímark-deginum og miðlaði af reynslu sinni og þekk ingu til ráðstefnu gesta sem gerðu góðan róm að ræðu hans.. Fjöldi auglýsinga- og markaðsfólks sótti Ímark- ráðstefnuna sem haldin var á Hilton Reykjavík Nordica-hótelinu í byrjun mars. Jónsson & Le’macks átti bestu sjónvarpsauglýsing una sem gerð var fyrir fjarskiptafyrirtækið Aterna. Aðstandendur auglýsingarinnar voru að vonum ánægðir með lúðurinn. Aðstandendur Polar Beer-auglýsingarinnar með Lúðurinn, en sú auglýsing var val fólksins. Jóhannes Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálmsson, eigendur Íslensku hamborgarafabrikkunnar, taka á móti Lúðrinum en fyrir tæki þeirra var með árangursríkustu auglýsingaherferðina í vöruflokknum. Þorsteinn Guðmundsson leikari og Jóhann Helgason, leikstjóri hjá Saga Film, voru að vonum ánægðir með að Inspired by Iceland var valin besta auglýsingaherferðin en þeir voru þar þátttakendur. Fögnuðurinn var mikill þegar ljóst var að auglýsingin Polar Beer var val fólksins. Aðstandendur auglýsingaherferðarinnar Come and be Inspired by Iceland taka á móti Lúðrinum en sú markaðsherferð var valin sú árangursríkasta í þjónustuflokknum.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.