Frjáls verslun - 01.04.2011, Side 27
FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011 27
viðTal: Jón G. Hauksson Myndir: Geir ólafsson
eitt atriði öðru fremur. Samherji hefur aldrei
auglýst eftir fólki í yfir manns stöður. Við
höfum aldrei ráðið þannig í stjórnunarstörf
hjá félaginu. Allir skip stjórar Samherja
hafa byrjað sem hásetar eða stýrimenn. Allir
stjórnendur Sam herja í landi hafa byrjað
annars staðar í fyrirtækinu. Það sama gildir
um erlend dóttur félög okkar. Nær allir yfir
stjórnendur þeirra störfuðu með okkur á
Íslandi áður en þeir héldu utan. Þannig hefur
fólki verið gefið tækifæri til að fást við sífellt
meira krefjandi störf innan Samherja. Með
þessum hætti höfum við byggt upp öfluga
og trausta liðs heild innan fyrirtækisins og
ég tel það meginskýringuna á því hversu
vel Samherja hefur vegnað til þessa. Ég vil
enn fremur nefna að við höfum valið að
starfa í flestum greinum sjávarútvegs og hafa
markaðsþekkinguna innan veggja fyrir tæk
isins.“
En ef þú ættir að nefna fimm helstu mistökin
sem þú hefur gert við stjórnun Samherja?
„Mistökin eru mörg og því miður er það
þannig að rangar ákvarðanir í sjávarútvegi
kosta oft mikið. Það sem gildir er að staldra
ekki of lengi við mistökin heldur læra af
þeim og horfa fram á veginn. Ég trúi því
þó að ég hafi ýmist tekið eða verið með í að
taka fleiri réttar ákvarðanir en rangar.“
Hver hefur verið arðbærasti hluti Samherja frá
upphafi – sá sem hefur skilað mestri framlegð?
„Sjávaraútvegurinn er alltaf að breytast.
Sem dæmi má nefna úthlutun aflaheimilda
á Íslandi og það magn sem má fiska af
hverri tegund. Kröfur neytenda hafa líka
breyst mjög mikið sem og kaupmáttur
fólks í einstökum löndum. Það reynir því
mjög á aðlögunarhæfni fyrirtækja sem
starfa í sjávarútvegi.
Með tilkomu frystitogaranna á sínum tíma
opnuðust nýir markaðir, m.a. fyrir sjófrystan
karfa og grálúðu í Japan, sem fékkst ótrúlega
hátt verð fyrir. Núna greiða Kínverjar mjög
hátt verð fyrir grálúðu, grálúðuhausa og
grálúðusporða, sem byrjað var að nýta fyrir
um 10 árum. Nýjasti markaðurinn fyrir
uppsjávarafurðir er VesturAfríka og sala á
ferskum þorsk hnökk um til Frakklands hefur
aukist mjög á síðustu árum. Inn í þetta koma
siðir og trúarbrögð einstakra þjóða. Fastan
hefur mikil áhrif á fiskneyslu, svo dæmi sé
nefnt, og Þjóðverjar borða lítið af fiski yfir
sumarið. Því má í raun segja að veið arnar
sjálfar hafi breyst mun minna en framleiðslan
og mark aðssetningin. Arð sem in liggur í því
að stjórna veiðunum í sam ræmi við þarfir
markaðarins hverju sinni.
Heilt yfir má þó segja að styrkur Samherja
liggi í fjölbreyttri starfsemi víða um heim
þar sem hver þáttur styrkir annan.“
KVÓTAFRUMVÖRP
RÍKISSTJÓRNARINNAR
Hvernig metur þú kvótafrumvörpin tvö
sem ríkisstjórnin hefur komið fram með og
aðdraganda þeirra?
„Það sem er sérstakt við þau – en kemur
ekki á óvart – er að sjávarútvegsráðherra
sá ekki ástæðu til að afla sér upplýsinga
hjá nokkrum í þessari grein sem býr yfir
þekkingu og reynslu varðandi veiðar,
vinnslu og markaðssetningu. Hann ráð
færði sig hvorki við stjórnendur og starfs
fólk fyrirtækja í sjávarútvegi né stéttarfélög
sjómanna og fiskvinnslufólks.
Stór hluti af verðmætasköpun í sjávar
útvegi er vinnslan og markaðssetn ingin.
Sem dæmi má nefna þann stall sem
norsk ur eldislax er kominn á. Þrátt fyrir
gríðarlegt magn, sem hefur aukist úr 400
þúsund tonnum í eina milljón tonna á
fáeinum árum, hefur verðið haldist mjög
hátt og stöðugt. Veitingahúsaeigendur geta
sett laxinn á matseðilinn og verslunar keðj
ur geta sett laxinn í kæliborðin og selt. Þeir
geta treyst því að fá afurðina í því magni og
á þeim tíma sem um er samið, langt fram í
tímann. Þarna eru framleiðendur í raun að
selja þjónustu og afhendingaröryggi háu
verði en á bak við vöxtinn er góð samvinna
stjórnvalda og fyrirtækja í Noregi.
Í Noregi hafa fyrirtækin framtíðarsýn og geta gert áætlanir. Með hliðsjón af framkomnum frumvörpum er alveg
ljóst að sjávarútvegur á Íslandi mun ekki
gera slíkar áætlanir. Í frumvarpinu kemur
70 sinnum fram að sjávarútvegsráðherra
geti gert þær breytingar sem honum
dettur í hug á hverjum tíma! Það er líka
jafn ljóst að menn hafa ákveðið að minnka
fyrirtæki eins og Samherja og brjóta upp
Síldarvinnsluna, því ein grein frum varp s
ins fjallar beinlínis um hana.
Til upprifjunar vil ég nefna að árið 2002
gerði Samherji út átta skip frá Akureyri
– Baldvin Þorsteinsson EA, Vilhelm Þor
steinsson EA, Akureyrina EA, Margréti
EA, Víði EA, Hjalteyrina EA, Oddeyrina
EA og Þorstein EA – með samtals um 300
sjómönnum. Núna ger um við út upp
sjávar skipið Vilhelm Þor steinsson EA og
bolfiskveiðiskipin Snæfell EA og Oddeyrina
EA með alls um 100 sjómenn. Þessi þrjú
skip hafa ekki nægar aflaheimildir til þess
að hægt sé að gera þau út allt árið. Til
dæmis veiða bolfiskveiðiskipin Snæfell
og Oddeyrin á þessu fiskveiðiári samtals
aðeins 650 tonn af þorski! Árið 2002 voru
gerð út þrjú bolfiskveiðiskip frá Dalvík en
eru tvö í dag. Þessi mikli samdráttur lýsir
ágætlega þróuninni í atvinnugreininni á
Eyjafjarðarsvæðinu síðustu ár og hversu
kolrangt er farið með staðreyndir um
tilflutning aflaheimilda til Samherja. Og
nú á að flytja enn frekari heimildir frá
þessu svæði. Við viljum hins vegar að
óreyndu ekki trúa öðru en að þingmenn
kjördæmisins sameinist um að koma í veg
fyrir frekari tilflutning á aflaheimildum af
svæðinu. Það er ljóst að íbúarnir á þessu
svæði sætta sig ekki við frekari skerðingu.
Við höfum rekið frystihús á Dalvík í 10 ár og þar hefur ekki fallið dagur úr í vinnu, að undanskildum jóla
fríum og sumarfríum. Það er að mínum
dómi ótrúlegt afrek sem verðskuldar
athygli. Í þeirri von að við myndum njóta
aukningar í þorskkvóta á næsta fisk veiði
ári, sem sjómenn hafa séð fyrir í tvö ár,
ákváðum við að þreyja þorrann og kaupa
2.000 tonn af fiski frá skipum í Evrópu sam
bandinu og vinna hér á landi. Þetta gerðum
við til að halda uppi vinnu á Dalvík út fisk
veiðiárið á sama hátt og árin á undan. Þar
starfa um 120 manns, í fiskiðjuverinu og í
þurrkunarstöðinni.
Frumvörpin ganga m.a. út á það að verð
launa þá sérstaklega sem hafa selt sig út
úr þessari grein og færa þeim aflaheim
ildir aftur. Sem dæmi má nefna að allur
byggðakvóti Dalvíkurbyggðar á þessu
fiskveiðiári fór til aðila sem höfðu áður selt
sig út úr kerfinu og hafið smábátaútgerð.
„Við höfum ávallt
talið það styrk okk-
ar að hafa alla
þætti starfseminnar
undir sömu stjórn,
þ.e. veiðar, vinnslu
og sölu afurða.
Við megum aldrei
gleyma því að mikil
verð mæti verða til í
markaðs starfinu.“