Frjáls verslun - 01.04.2011, Blaðsíða 34
34 FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011
blaðið verði sá fjöl miðill. Til lengri tíma
geri ég ráð fyrir að fjölmiðlarekstur undir
merkjum Árvakurs geti orðið arðbær.
Árvakur stendur aðal lega á tveimur
styrkum stoðum, Morgun blaðinu sjálfu
og mbl.is, sem er langstærsti vefmiðill
landsins.“
Það hafa ekki alltaf verið kærleikar á milli ykkar
Davíðs Oddssonar. Hefur skoðun þín á honum
breyst eftir að hann varð ritstjóri blaðsins?
„Við Davíð Oddsson höfum fyrst og
fremst haft mismunandi skoðanir á mál
efnum en þau varða ekki persónur okkar.
Það er allt saman eðlilegt og því hafa
skoðanir mínar á honum ekkert breyst.“
AKUREYRI OG KA
KA, Knattspyrnufélag Akureyrar, er þitt uppá
haldsfélag og þú hefur styrkt það fjárhagslega.
Hvaða gildi hefur þetta félag fyrir þig og þína
fjölskyldu – og hvað tekur þú með þér út úr
íþróttastarfinu?
„Ég er mikill KAmaður og hef stutt
félagið þegar þess er kostur. Ég hef líka
mikinn áhuga á íþróttum og útivist al
mennt og það sama má segja um marga
aðra starfsmenn Samherja. Ég ber óendan
lega mikla virðingu fyrir öllu því fólki sem
leggur á sig ómælda vinnu í sjálfboðastarfi
íþrótta og æskulýðsfélaga og ég tel það
ómetanlegt í uppeldi barna og unglinga að
taka þátt í slíku starfi.
Samherji hefur frá stofnun lagt mikla áherslu á að styðja við bakið á íþrótta og æskulýðsfélögum á
Eyja fjarðarsvæðinu og sá stuðningur ein
skorðast engan veginn við KA. Samherji á
rætur á Eyjafjarðarsvæðinu, er að segja má
hluti þess samfélags, og því fylgir ábyrgð.
Við höfum alla tíð kappkostað að láta sem
flesta Eyfirðinga njóta góðs af starfseminni
og reynt eftir föngum að styrkja innviði
svæðisins með ýmsum hætti. Við sækjum
sem mest af þjónustu þangað, erum með
fjölmarga heimamenn í vinnu og veitum
ýmsum félögum á svæðinu styrki, sér í lagi
til barna og unglingastarfs þótt afreks
íþrótta fólk fái sinn skerf. Við höfum veitt
styrki sem nema um 250 milljónum króna á
síðustu þremur árum með þessum hætti –
og erum stolt af því.“
Telur þú að Akureyri hafi þróast vel sem
bæjarfélag – og hver er þín skoðun á því að
bæjarfélagið er ekki stærra en raun ber vitni?
„Ég tel að Akureyri hafi verið vel stjórn
að um mjög langt skeið. Fjárhagsleg staða
bæjarfélagsins er að sama skapi sterk í
samanburði við mörg önnur sveitar félög.
Þess vegna kom það mér svolítið á óvart
að bæjarbúar skyldu fela ein um flokki, og
í raun einni fjölskyldu, stjórn bæjarins í
síðustu kosningum. Mér þótti miður hvernig
Sigrún Björk yfirgaf bæjarpólitíkina, því
það var leitun að bæjarfulltrúa sem vann
jafn sam visku sam lega í störfum sínum
fyrir okkur bæjarbúa í mörg ár. Ég vil nota
þetta tækifæri til að þakka bæjarfulltrúum
liðinna ára fyrir unnin verk.“
Ef þú yrðir bæjarstjóri á Akureyri í einn dag,
hvert yrði þitt fyrsta verk?
„Ég myndi athuga hvernig rekstur Sjúkra
hússins á Akureyri yrði best tryggður til
framtíðar.“
HJÁTRÚIN MEÐ
LANDFESTARNAR
Að lokum þetta; hvernig kom hún til hjátrúin
að þú losaðir alltaf festar þegar Akureyrin EA
lét úr höfn á árum áður?
„Í upphafi var þetta virðing fyrir gömlum
hefðum. Það tíðkaðist hér á árum áður að
fulltrúi útgerðarinnar losaði landfestar
skips síns og þótti gæfumerki. Í árdaga
Sam herja gerði félagið bara út þetta eina
skip, Akureyrina, og það kom í minn hlut
að sleppa landfestunum. Í eina skiptið
sem það fórst fyrir hjá mér kom Akur eyr in
inn að nýju vegna vélarbilunar. Eftir það
sleppti ég ávallt landfestum Akur eyrarinnar
fyrstu 10 árin í sögu félags ins vegna þess
að við Samherjamenn vildum ekki storka
örlögunum frekar en nauð syn legt væri!
Ég viðurkenni fúslega að við höldum fast
í gamlar hefðir hvað þetta varðar en vil
reyndar orða það svo að við berum ákveðna
virðingu fyrir hjátrú forfeðra okkar. Skip
Samherja byrja aldrei nýtt ár á mánudegi –
við bíðum frekar til þriðju dags. Þessi sama
regla gildir um út gerð okkar í Þýskalandi og
Þjóðverjum þykir hún stórmerkileg, að ég
segi ekki undarleg!“
„Sjálfan aðstoðarseðlabankastjóra þarf til að úthluta farareyri til nokkurra starfsmanna Samherja sem vinna
að markaðsmálum! Það getur ekki talist eðlilegt.“
○○www.ossur.com
össur er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki á heilbrigðissviði
LÍF ÁN TAKMARKANA
○○