Frjáls verslun - 01.04.2011, Page 80
80 FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011
fólk
„Fjölskyldan ferðast mjög mikið og sérstaklega innanlands. Við reynum að taka fyrir
ákveðna landshluta og gaumskoða þá. Til dæmis áttum við stórkostlega upplifun á Vest-
fjörðum eitt sumarið.“
TexTi: HilMar karlsson
Þ
að má segja að ég
sinni fjölbreyttu starfi
hjá Skemmtigarð in
um. Daglegur rekstur
hjá mér er að sjá um
fjármál fyrirtækisins, mark aðs
mál, starfsmannamál og ýmis
tilfallandi verkefni sem koma á
borðið hjá mér. Ég skelli mér svo
reglulega í hlutverk hópstjóra
enda krefst starfið þess að ég
sé sífellt í nánu samneyti við
við skiptavini okkar. Þannig næ
ég að vera í stöðugum tengslum
við starfsemina og sé hverra
nýjunga er þarft – og hvað má
betur fara í rekstrinum.
Við byrjuðum með litbolta árið
2000 og bjóðum nú upp á fjöl
breytta afþreyingu, meðal ann
ars: minigolf, litbolta, lasertag,
ratleiki, hláturjóga, trommuhring,
þrautaleiki og aðra hópeflis af
þreyingu. Afmælisveislur eru
í mikilli sókn hjá okkur. Svo
höld um við fjölskyldudaga fyrir
fyrirtæki þar sem við bjóðum
upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir
alla aldurshópa. Við vinnum
náið með starfsmannastjórum
og starfsmannafélögum í að
skipu leggja allt frá mjög stórum
viðburðum yfir í minni skemmt
anir fyrir starfsfólk. Ég nýt þess
að vera í þessu starfi enda eru
það forréttindi að vinna við að
skemmta öðrum. Við hlið mér
er svo öflugur hópur starfsfólks
sem lætur hjarta fyrirtækisins
slá. Einkunnarorð okkar eru: „Við
sérhæfum okkur í hlátri“. Starf
mitt felur einnig í sér að koma
sífellt með nýjungar í garðinn
okkar til þess að geta boðið
viðskiptavinum upp á eitthvað
nýtt á hverju ári. Síðasta sumar
byggðum við þrjátíu tonna
sjó ræningjaskip og sjóræningja
þorp fyrir ævintýra minigolf
völlinn okkar, Fjársjóðsleitina.“
Ingibjörg lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og þaðan lá leiðin í viðskipta
fræði við HÍ og útskrifaðist
hún af fjármálasviði árið 1999.
„Eftir útskrift fór ég í vinnu hjá
LandspítalaHáskólasjúkrahúsi á
sviðum hag og fjármála. Áætl
anavinna, stefnumótun og kostn
aðargreining voru meðal þeirra
fjölmörgu verkefna sem voru á
mínu ábyrgðar og starfssviði
fyrir spítalann.
Ég hef mikið verið í félags mál
um í gegnum tíðina og unnið í
ýmsum nefndum, meðal annars
fyrir heilbrigðisráðuneytið að
verkefnum er lúta að rekstri
Landspítala svo og nýbyggingu
sjúkrahússins. Í dag er ég í
stjórn ferðamálasamtaka höfuð
borgarsvæðisins og í nefnd fyrir
FKA, auk þess að sitja í stjórnum
tveggja afþreyingarfyrirtækja.“
Sambýlismaður Ingibjargar
er Eyþór Guðjónsson og eiga
þau fjögur börn. Fjölskyldan
ferðast mjög mikið og sérstak
lega innanlands. „Við reynum
að taka fyrir ákveðna landshluta
og gaumskoða þá. Til dæmis
áttum við stórkostlega upplifun
á Vestfjörðum eitt sumarið. Á
ferðalögum okkar erum við
dug leg að nýta okkur tjaldsvæði
og bændagistingu víðsvegar
um landið. Við Eyþór fórum
einn ig í frí til Indlands, sem var
mjög framandi, einstök og sterk
upplifun. Á döfinni hjá okkur nú
eru fjölmörg verkefni þannig að
við ferðumst líklegast ekki mikið
þetta sumar. Í staðinn tökum við
langar helgar við og við og er
ætlunin að fara með alla fjölskyld
una á framandi gönguslóðir.“
Auk ferðalaga eru helstu
áhugamál Ingibjargar hesta
mennska og fjallganga. „Í sumar
stefni ég á Sveinstind. Ég er
alin upp á hestbaki og starfaði
sem reiðkennari í nokkur sumur
með skóla og hef alltaf haft
mikinn áhuga á hestamennsku.
Draum urinn er að fá hesta handa
fjöl skyldunni, vonandi sem fyrst
– reyndar eftir þráláta beiðni
næstelstu dótturinnar. Svo bíður
golfið handan við hornið.“
Ingibjörg Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri Skemmtigarðsins í Grafarvogi
Nafn: Ingibjörg Guðmundsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
17. apríl 1972
Foreldrar: Guðmundur E. Þórðarson
og Alda Benediktsdóttir
Maki: Eyþór Guðjónsson
Börn: Karen Björk, 15 ára, Karen, 12
ára, Óttar, 10 ára, og Hekla, 4 ára
Menntun: Viðskiptafræðingur frá HÍ