Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 10

Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 ERLENDI FORSTJÓRINN Loftur Ólafsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum: Frjáls verslun hefur fengið þekkta ein stakl inga til liðs við sig til að segja í mjög stuttu máli álit sitt á ýmsu tengdu við skiptum og efnahagslífi í hverju tölu blaði. UmSjón: Svava jónSdóTTir atóm-anna ÁlitsgjaFar FrjÁlsrar verslunar tryggðakort notuð í auknum mæli Ásmundur Helgason segir að íslensk fyrirtæki séu í auknum mæli farin að huga á nýjan leik að uppbyggingu tryggðakerfa en grunnurinn í kerfunum verður að vera sá að viðskiptavin­ urinn njóti betri kjara sé hann þátttakandi í kerfinu. Því þurfi fyrirtæki sem ætla sér að halda úti slíku kerfi að vinna stöðugt í að bjóða sínum hópi tilboð og afslætti sem aðrir fá ekki. „Ekki nóg með það heldur verður að auglýsa þessi tryggðatilboð meðal þeirra sem ekki eru í kerfinu til að þeir sjái að þarna er eftir einhverju að slægjast. Eitt af markmiðum sumra svona kerfa er að fá nánari upplýsingar um viðskiptavinina svo sem netfang, símanúmer, aldur barna þeirra og fjölda bíla á heimilinu sem nýtist við að nálgast einstaklingana með tilboð sem henta hverjum og einum. Best heppnuðu kerfin ná því að gera viðskiptavinina að sínum talsmönnum sem þreytast ekki á að dásama fyrirtækið.“ Ásmundur segir að Stöð 2 hafi til dæmis blásið nýju lífi í sitt kerfi sem hét einu sinni M12, Icelandair hafi alla tíð haldið úti sínu kerfi mjög vel og N1 leggi núna mikið í N1-kortin. „Fleiri fyrirtæki eru að feta inn á þessa braut, enda vita þau að það er mikilvægara að halda í núverandi viðskiptavini en að fá nýja. Það er einmitt kjarninn í öllum tryggðakerfum að fá núverandi viðskiptavini til að versla meira og snúa sér þar með síður til keppinautanna. Sum kerfi gefa út kort eins og netkortið á meðan önnur fara í samstarf við greiðslu­ kort eða sleppa því hreinlega að gefa út kort eins og Húsasmiðjan til dæmis sem byggir bara á kennitölum.“ AUGLÝSINGAR Ásmundur Helgason, markaðsfræð- ingur hjá Dynamo: Margt bendir nú til þess að botni yfirstandandi efnahags-kreppu hafi verið náð. Á hinn bóginn eru því miður ekki horfur á að við séum að komast upp úr kreppunni. Miðað við spár opinberra stofnana, Hagstofunnar (Þjóðhagsreikningar 2011:9) og Seðlabankans (Peningamál 2011:3), sem eru mjög samhljóða, verð ur hagvöxtur hér á landi lélegur næstu þrjú árin eða um 2,7% að jafnaði. Verði þetta raunin verður kreppunni ekki lokið í árslok 2013 en þá verður VLF enn undir því sem hún var 2007 og 2008. Atvinnu leysi verður þá jafnframt enn mjög mikið og litlu minna en nú er. Samkvæmt þessum spám verður árið 2013 fimmta eða sjötta ár kreppunn ar eftir því hvort hún er talin hafa hafist árið 2008 eða 2009.“ Ragnar segir að þessar spár Hagstofunnar og Seðlabankans byggist auðvitað á framhaldi núverandi efnahagsstefnu. „Allir sjá að hlutlægar efnahagsaðstæður hér á landi – ónotað vinnuafl og fjármagn og mörg vænleg framleiðslutækifæri – leyfa miklu meiri hagvöxt en spáð er. Ríkjandi efnahagsstefna kemur í veg fyrir að þessi tækifæri séu nýtt. Því er það að eigi að koma í veg fyrir þá dap urlegu efnahagslegu og félagslegu framtíð sem í spánum felst er nauðsynlegt að skipta um efnahagsstefnu.“ EFNAHAGSMÁL Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands: enn lengist í kreppunni Fyrsti yfirmaður hinnar frönsku Anne Lauvergeon sagði við hana: „Rétti staðurinn fyrir konu er heimilið.“ Þessi stórkarla-legu ummæli féllu í grýttan jarðveg. Fyrir rúmum áratug tók hún við stjórnartaumunum hjá franska ríkisfyrirtækinu á sviði kjarnorku og undir forystu hennar voru nokkur fyrirtæki sameinuð undir nýju nafni, Areva. Fyrirtækið hefur um árabil verið stærsta fyrirtæki í heimi í kjarnorkuframleiðslu og býr að sterkum heima­ markaði þar sem verulegur hluti orku í Frakklandi er framleidd- ur með kjarnorku. Undir stjórn Anne, og þess sem virðist vera framsýni hennar, var stefnan tekin á að bjóða allan pakkann, ef svo má að orði komast. Fyrirtækið byggir því og rekur kjarna- ofna, vinnur úraníum og endurvinnur og geymir úrgang. Og þessi viðskiptastefna hefur verið gerð að öflugri útflutningsvöru. Skilin milli stjórnmálalífs og viðskiptalífs eru á köflum óljós í Frakklandi og Anne hefur í gegnum tíðina þurft að feta það ein- stigi en um leið verið þátttakandi. Á sínum tíma var hún einn af nánustu starfsmönnum Mitterrands og núverandi forseti, hinn tápmikli og umdeildi Sarkozy, vildi fá hana til starfa þegar hann tók við völdum. Anne vildi ekki færa sig um set enda á fullri ferð hjá Areva. En nú er ævintýrið á enda. Að undanförnu hefur verið nokkuð á brattann að sækja og fyrirtækið lent í erfiðleikum og nokkur verkefni þess reynst kostnaðarsöm. Anne hætti sem forstjóri Areva í lok júní síðastliðins. Þeir, sem hafa þótt hún of sjálfstæð í starfi sínu í gegnum tíðina, geta varpað öndinni léttar. Þar gæti ef til vill sést glitta í fyrsta yfirmann hennar.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.