Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 44
44 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Það voru sjö af fyrrverandi starfsmönnum Flögu sem komu sam an árið 2006 og ákváðu að nýta reynslu sína og þekkingu eftir áratug í vinnu fyrir Flögu
til að koma upp nýju fyrirtæki á sviði heil
brigðistækni. Flaga heitir nú Embla og er
bandarískt fyrirtæki.
Flaga var leiðandi fyrirtæki í svefnrann
sóknum í heiminum. Það var stofnað af dr.
Helga Kristbjarnarsyni, sem var kunnur
vísindamaður á sviði svefnrannsókna. Við
flutning Flögu úr landi 2006 varð þróunar
deildin eftir og hópur manna án vinnu.
Nú er þekkingin og reynslan, sem fékkst
hjá Flögu, nýtt í Nox Medical við fram
leiðslu á nýjum svefnrannsóknarbúnaði,
sem hentar börnum jafnt sem fullorðnum.
Nýjungin felst í að hafa búnaðinn minni
og þægilegri en áður þekktist og allt er
þráðlaust. Þarna nýtast framfarir síðustu
ára í tölvutækni í heilbrigðisgeiranum.
þekktu Verkefnið og markaðinn
„Það tók okkur aðeins tvö ár að búa til
og fá vottun á fyrstu frumgerðina að nýju
svefnrannsóknartæki,“ segir Sveinbjörn
Höskuldsson, framkvæmdastjóri Nox
Medical. Þetta er óvenjustuttur tími hjá
sprotafyrirtæki að komast yfir fyrsta og oft
erfiðasta hjallann: Að geta boðið söluhæfa
vöru áður en allir peningar eru uppurnir.
Sveinbjörn segir að þetta skýrist af því
að starfsmenn Nox Medical bjuggu að
mikilli reynslu á mjög mörgum sviðum
heilbrigðistækni þegar fyrirtækið varð til.
Hann er sjálfur rafmagnsverkfræðingur og
segir að starfsmennirnir sjö, sem stofnuðu
fyrirtækið, hafi búið yfir kunnáttu á öllum
sviðum sem þarf til að búa til lækninga
vöru og koma henni á markað. Núna starfa
ellefu manns hjá Nox Medical.
„Flækjustigið við að fá nýja lækningavöru
viðurkennda er ótrúlega hátt,“ segir Svein
björn. „Við höfðum farið í gegnum þessa
flækju áður og það flýtti mikið fyrir.“
Nox Medical var komið með vottun og
söluleyfi í Evrópu og Bandaríkjunum fyrir
árslok 2008. Framleiðsla hófst við upphaf
árs 2009 og fyrirtækið varð sjálfbært á
fyrsta söluári. Sala búnaðarins hefur síðan
þá gengið að óskum bæði í Evrópu og
Banda ríkjunum og fyrir árangurinn hlaut
fyrirtækið bæði Nýsköpunarverðlaunin og
Vaxtarsprotann 2010.
Hrunið fyrir Hrun
Tækin sjálf eru framleidd í Kína. Svein
björn segir að innlend útgjöld fyrirtækisins
séu fyrst og fremst laun starfsmanna og
ferðakostnaður. Ákveðið var að byggja
ekki eigin sérhæfða verksmiðju og komast
þann ig hjá mikilli áhættu við fjárfestingu
og losna við fastan kostnað.
Sveinbjörn segir að raunverulegt hrun
tæknigeirans hafi orðið fyrir bankahrunið
vegna þess að bankarnir soguðu til sín
tæknimenntað starfsfólk og kostnaður fór
úr böndunum vegna gjaldeyrismála. Nox
Medical var skuldlaust þegar bankarnir
hrundu og lenti ekki í vanda þess vegna.
Gjaldeyrisbólan fyrir hrun var verri.
Lærdómurinn sem Sveinbjörn dregur af
reynslunni frá Nox Medical er að byrja með
skýr markmið varðandi vöru og markaðs
setningu og reyna að ná sem fyrst inn
eigin tekjum. Sjálft stuðningskerfið fyrir
sprotafyrirtæki á Íslandi telur hann hins
vegar allgott og að Nox Medical hafi notið
góðs af því. „Það sem vantar er hins vegar
miklu meiri peningar inn í þetta kerfi enda
þessi stuðningur bæði arðbær fyrir ríkið og
fjárfesting í framtíðinni.“
fljótir á fætur
Fyrirtækið Nox Medical varð til vegna bankabólunnar miklu á Íslandi – áður
en hún sprakk. Hópur verkfræðinga varð eftir á Íslandi þegar móður fyrir-
tækið Flaga hraktist úr landi 2006 vegna hárra vaxta og hás gengis. Þeir
sem eftir sátu urðu að bjarga sér.
„Það tók okkur aðeins tvö ár að búa til og fá vottun á fyrstu frumgerðina.“
Nox Medical
sprotar og frumkvöðlar