Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 73
bækur
að óttast að handbókin verði
fljótt úrelt í þeirri miklu endur-
skoðun á stjórnun og starfshátt
um sem stendur yfir í þjóðfél ag-
inu og vafalítið er ekki lokið.
Hættumerki
Öll uppsetning bókarinnar er skýr
og greinargóð sem auðveld ar
uppslátt. Hver kafli hefst á sam-
antekt sem ber heitið Hættu
merki. Þar eru dregin saman
nokkur atriði sem gætu verið
hættuleg starfsemi félagsins.
Ef stjórnarmaður verður þeirra
var ætti hann að staldra við,
meta áhrifin og bregðast við.
Með því má hugsanlega koma
í veg fyrir rangar ákvarðanir
eða óheillaþróun félagsins.
Hverjum kafla lýkur á samantekt
nokk urra gagnrýninna spurn
inga sem stjórnarmenn ættu að
spyrja sig sjálfa og aðra meðlimi
stjórnarinnar.
Eins og Árni Páll Árnason,
efna hags og viðskiptaráðherra,
segir í inngangsorðum sínum
að bókinni höfum við Íslending-
ar verið óþyrmilega minntir á
mikilvægi gagnrýninnar hugs
unar, vandaðra vinnubragða
og viðskiptahátta. Handbókin
auðveldar stjórnarmönnum
tvímælalaust að halda góðri
yfirsýn og spyrja gagnrýninna
spurninga með það fyrir augum
að hámarka árangur fyrirtækis
ins innan siðferðilegra marka.
Handbók stjórnarmanna
ætti að vera til í hverju einasta
stjórnarherbergi. Hún er haf sjór
upplýsinga fyrir nýja sem reynda
stjórnarmenn og auðveldar þeim
að standa undir auknum kröfum
sem gerðar eru til þeirra.
Handbók stjórnarmanna er skyldu-
lesning fyrir alla sem sitja í stjórnum
fyrirtækja.
„Ef stjórnarmaður
verður var við hættu
merki ætti hann að
staldra við, meta
áhrifin og bregðast
við.“
Vissir þú að um 1.900 fyrirtæki um allan heim í meira en 120
löndum nota hugbúnað frá íslenska fyrirtækinu LS Retail í alls
35.000 verslunum og á 77.000 afgreiðslukössum?
Stærst á íslenskum markaði
LS Retail er rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í þróun og sölu
á lausnum fyrir verslunar- og veitingarekstur á alþjóðamarkaði.
Meðal viðskiptavina LS Retail á Íslandi eru Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ÁTVR, Nova,
Apple á Íslandi, Laugar, Íslandspóstur, IKEA, Debenhams, NTC og margir fleiri.
Söluaðilar og samstarfsfyrirtæki LS Retail á Íslandi eru:
Eitt best geymda
leyndarmál Íslands
Allar nánari upplýsingar er að finna
á vefsíðu okkar www.LSRetail.com