Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 73

Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 73
bækur að óttast að handbókin verði fljótt úrelt í þeirri miklu endur- skoðun á stjórnun og starfshátt­ um sem stendur yfir í þjóðfél ag- inu og vafalítið er ekki lokið. Hættumerki Öll uppsetning bókarinnar er skýr og greinargóð sem auðveld ar uppslátt. Hver kafli hefst á sam- antekt sem ber heitið Hættu­ merki. Þar eru dregin saman nokkur atriði sem gætu verið hættuleg starfsemi félagsins. Ef stjórnarmaður verður þeirra var ætti hann að staldra við, meta áhrifin og bregðast við. Með því má hugsanlega koma í veg fyrir rangar ákvarðanir eða óheillaþróun félagsins. Hverjum kafla lýkur á samantekt nokk urra gagnrýninna spurn­ inga sem stjórnarmenn ættu að spyrja sig sjálfa og aðra meðlimi stjórnarinnar. Eins og Árni Páll Árnason, efna hags­ og viðskiptaráðherra, segir í inngangsorðum sínum að bókinni höfum við Íslending- ar verið óþyrmilega minntir á mikilvægi gagnrýninnar hugs­ unar, vandaðra vinnubragða og viðskiptahátta. Handbókin auðveldar stjórnarmönnum tvímælalaust að halda góðri yfirsýn og spyrja gagnrýninna spurninga með það fyrir augum að hámarka árangur fyrirtækis­ ins innan siðferðilegra marka. Handbók stjórnarmanna ætti að vera til í hverju einasta stjórnarherbergi. Hún er haf sjór upplýsinga fyrir nýja sem reynda stjórnarmenn og auðveldar þeim að standa undir auknum kröfum sem gerðar eru til þeirra. Handbók stjórnarmanna er skyldu- lesning fyrir alla sem sitja í stjórnum fyrirtækja. „Ef stjórnarmaður verður var við hættu­ merki ætti hann að staldra við, meta áhrifin og bregðast við.“ Vissir þú að um 1.900 fyrirtæki um allan heim í meira en 120 löndum nota hugbúnað frá íslenska fyrirtækinu LS Retail í alls 35.000 verslunum og á 77.000 afgreiðslukössum? Stærst á íslenskum markaði LS Retail er rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í þróun og sölu á lausnum fyrir verslunar- og veitingarekstur á alþjóðamarkaði. Meðal viðskiptavina LS Retail á Íslandi eru Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ÁTVR, Nova, Apple á Íslandi, Laugar, Íslandspóstur, IKEA, Debenhams, NTC og margir fleiri. Söluaðilar og samstarfsfyrirtæki LS Retail á Íslandi eru: Eitt best geymda leyndarmál Íslands Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu okkar www.LSRetail.com

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.