Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 54
54 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Elínrós Líndal.
elínrós Líndal er eigandi og framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins eLLu þar sem lögð er áhersla á
„slow-fashion“ og frumkvöðlafræði.
Með frumkvöðlafræði í huga
Hjá ELLU er hannaður og framleiddur vandaður fatnaður á konur
auk fylgihluta eins og ilmvatna
og skartgripa. Elínrós Líndal er
eigandi og listrænn stjórnandi
fyrirtækisins og yfirhönnuður
er Katarín María Káradóttir
sem vann áður hjá Christian
Dior og John Galliano. Verslunin
ELLA er starfrækt í miðborg
Reykjavíkur auk netverslunar,
ellabyel.com. Þá eru vörur
ELLU einnig seldar í fríhöfninni
á Keflavíkurflugvelli. „ELLA
er fyrsta íslenska fyrir tækið
sem skilgreinir sig í „slowfash
ion“ en hér á landi vinna þó
allmörg fyrirtæki eftir þessari
hugmynda fræði; jafnvel án þess
að forsvarsmenn þeirra átti sig á
því,“ segir Elínrós. „Hugmynda
fræði „slowfashion“ byggist á
að gera vandaðan fatnað sem
stenst tímans tönn og snýr
þessi hugmyndafræði að öllum
þáttum framleiðslukeðjunn
ar hjá ELLU. „Slowfashion“
snýst einnig um að framleiða
á eigin efnahagssvæði og gefa
öllum starfsgreinum ráðrúm
til að skapa eitthvað sérstakt.“
Elínrós segist þrýsta á framleið
endur með því að spyrja um
aðbúnað starfsfólks í verk smiðj
unum og sýnir áhuga á hand
verkinu í stað þess að leggja
áherslu á mikið magn og minni
gæði.
frumkvöðlafræði
Elínrós hefur í huga ýmis atriði
í fraumkvöðlafræði þegar kem
ur að fyrirtækinu en hún nam
þau fræði í MBAnámi sínu.
„Ég skilgreini mig sem frum
kvöðul í nýsköpun þar sem ég
er með nýja hugmyndafræði;
nýtt fyrirtæki að skapa nýja
sögu ef svo mætti að orði kom
ast. Nader Dareshori, einn helsti
fjölmiðlamógúllinn í Boston,
kom til landsins á vegum MIT
ráðstefnunnar á dögunum og af
honum lærði ég mikilvægi þess
að læra eitthvað nýtt á hverj
um degi. Af Daniel Isenberg,
prófess or í frumkvöðlafræðum
við Babsonháskóla, hef ég m.a.
lært mikilvægi þess að verða
ekki of ástríðufull hvað varðar
viðskipta hugmyndina og hef
því komið mér upp ráðgjafa
nefnd sem gefur mér tækifæri
til að breyta og bæta reglulega
viðskiptahugmyndir að baki
ELLU.“
Elínrós leggur áherslu á mann auðinn í fyrirtækinu.
„Þeim málum reyni ég að
sinna eins vel og unnt er. Frum
kvöðla fyrir tækið CEO HUXUN
er þar með í ráðum en það
býður fyrirtækjum aðstoð í
mannauðsstjórnun. Fyrir lítið
fyrirtæki sem er að fóta sig,
eins og ELLA, er mikilvægt að
hafa aðgang að mannauðsstjóra
hluta mánaðarins. Ég sem
stjórnandi er til dæmis mæld
mánaðarlega og þannig get ég
nýtt mér harðar staðreyndir til
að stýra mannskapnum í átt
að markmiðum okkar og gert
það sem mér finnst mikilvægast í
nýsköpun: Hlustað, lært og breytt
í fyrirtækinu. Til að geta nýtt sér
þá auðlind sem mann auður er
þarf viðskiptaáætlun sem felur í
sér skýr markmið sem fyrirtækið
ætlar að ná hverju sinni.“
Unnið er með Navision og leggur Elínrós áherslu á að
aðgangur að öllum upplýsing
um sé mikilvægur. „Það er
sam félaginu öllu til góðs ef við
reyn um að búa til ný vel rekin
fyrirtæki hér á landi og við hjá
ELLU erum staðráðin í að gera
betur á hverjum degi. Það er
kjarni viðskiptamódels ELLU
og samræmist einmitt þeirri
hugmyndafræði sem við vinn
um eftir.“
„Slowfashion“
snýst einnig um að
framleiða á eigin
efnahagssvæði og
gefa öllum starfs
greinum ráðrúm til
að skapa eitthvað
sérstakt.“
TexTi: Svava jónSdóTTir
sprotar og frumkvöðlar