Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 26
26 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
kröfu um öfl ugan seðlabanka, sam-
eig inlegt banka eftirlit og miðstýringu
ríks fjármála. Fjölbreytileiki evruríkj-
anna auð veld ar ekki tilraunina með
sameiginlega mynt. Hvert ríkjanna 17
á evru svæðinu stýrir skattlagningu og
opin berum útgjöldum eftir eigin höfði
og töluverður munur er á stjórn arfari
þeirra. Í samanburði við ríkin í norðri
mælist, samkvæmt ýms um könnunum,
töluverð spilling í Grikklandi og á
Ítal íu, en almenningur hefur litla trú
á stjórnvöldum og ber takmarkaða
virð ingu fyrir réttarfarinu. Á Spáni
og í Portúgal er ástandið skárra en
hjá Grikkjum og Ítölum. Fyrir tíma
evrunnar voru lánskjör jaðarríkjanna
í suðri léleg og þar skorti fjármagn
til framkvæmda. Með evrunni fengu
þessi ríki erlend lán á svipuðum
kjör um og Þýskaland og erlendar
lána stofnanir skrúfuðu heldur betur
frá krananum. Veislan var hafin.
Að mínu viti er þó rangt að kenna
upptöku evrunnar um hátíðagleðina í
jaðarríkjunum. Lánveitendur áttu að
gæta hófs. Þeir gátu ekki vænst þess
að Þýskaland, Frakkland og önnur
öflug ríki í norðri væru ábyrg fyrir
lán um til Grikkja og annarra þjóða
við Miðjarðarhaf. Helstu lánastofn-
an ir heims fengu um þetta leyti
einn ig miklar mætur á reynslulausum
íslensk um fjármálamönnum og lán-
uð u þeim þvílíkar fúlgur á úrvalskjör-
um að íslenskir bankar, þegar yfir
lauk, lentu næstum efst á heimslistan
um yfir stærstu gjaldþrot sögunnar.
Og ekki er Ísland á evrusvæðinu. Við
Miðjarðarhaf er lélegt stjórnarfar
ekki nýjung. Það sem hafði breyst
var tíðarandinn hjá evrópskum (og
öðrum) fjármálamönnum: spilaæði
hafði svipt þá vitglórunni.
eftirspurn óreiðumanna eftir peningum er ávallt til staðar, en yfir leitt
gengur þeim illa að fá lán. Í nýlegri
grein sendir Gordon Brown Þjóðverj-
um kveðjuna (Christian Science
Monitor, 23. ágúst 2011) og notar
bæði gulrót og prik. Forsætisráðherr
ann fyrrverandi vekur athygli á pening
aaustri þýskra banka til Grikklands
og annarra ríkja við Miðjarðarhaf og
segir: „Ef slegið var upp veislu sáu
Þjóðverjar ávallt um drykkjarföngin.“
Brown krefst þess af Þjóðverjum að
þeir geri hreint eftir veisluhöldin með
niðurfellingu lána (prik). Hann segir
einnig að þýskir bankar standi tæpt
og geti farið yfir um ef þeir draga að
leysa lánavanda jaðarríkjanna (gulrót).
Hársnyrting er málið, og Þjóðverjar
borga, segir Brown.
En það sem mestu máli skiptir,
sögðu spámennirnir, er að
evrusvæðið er ekki skattríki
og ekki með sameiginlega og
bind andi stefnu í ríkis fjár málum.
Þeir töldu ekki koma til greina
að taka upp sam eiginlega
mynt á svæði þar sem hvert
ríki fer sínu fram við með ferð
opinberra fjármála.
evran: vantar afturáBak-
gírinn?
Tveir af virtustu kranahagfræðingum
Þjóðverja, Hans-Werner Sinn og
Ot mar Issing, hafa lagt til að Grikk-
ir hvíli sig á evrunni og taki aftur
upp drökmuna. Martin Feldstein á
Harvard og ýmsir aðrir eru sama
sinnis. En er hugmyndin raunhæf ?
Árið 2007 fól National Bureau of
Economic Research í Bandaríkjunum
kunnum hagfræðingi, Barry Eichen
green að nafni, það verkefni að kanna
hvað mundi gerast ef evrusvæðið lið
að ist í sundur (NBER Working Paper
Nr. 13393, 2007).
Eichengreen komst að þeirri
niður stöðu að afleiðingarnar yrðu svo
skelfilegar að ekkert þjóðríki mundi
gera slíka tilraun. Það er óðs manns
æði að reyna að bakka út af evrusvæð
inu. Til dæmis, ef gríska þingið á
neyðar tímum ræddi í alvöru um
endur upptöku drökmnunnar mundi
skella á svo æðisleg ur fjármagns flótti
að loka þyrfti lána stofunum, kauphöll-
um og sennilega einnig landamærum
ríkisins. Tölvu verðan tíma mundi
einnig taka að leysa ýmis mál tengd
myntbreytingunni, svo sem að gefa
út nýja mynt og breyta forritum og
sjálfsölum. Evruþjóðirnar tóku sér tvö
ár, 19992001, til að undirbúa mynt
breytinguna, en fóru sér að vísu rólega.
eichengreen telur einnig að lýð ræðisríki geti ekki skipulagt mynt breyt
ingu að næturþeli og komið aftan að
þjóðinni. Í greiningunni frá 2007 tók
Eichengreen ekki með í reikninginn
að lánakreppa, eins og nú ríkir, gæti
rústað fjármálakerfi Grikkja, sett af
stað fjármagnsflótta og neytt yfirvöld
til að loka fjármálastofnunum – þótt
ekki væru uppi bein áform um að
taka aftur upp drökmuna. Ef banka
kerfi landsins er þegar hrunið fylgir
því lítill viðbótarkostnaður að yfirgefa
evrusvæðið. Í nýlegri grein viðurkenn-
ir Eichengreen þennan möguleika
en grípur til kranahagfræðinnar og
segir að við slíkar aðstæður sé víst að
Þjóðverjar, Frakkar og aðrar evru-
þjóðir muni hlaupa undir bagga með
Grikkjum vegna ótta ráðamanna ES
við að skelfingin breiðist út til annarra
jaðarríkja, jafnvel til sjálfra kjarnaríkj-
anna (Australian Financial Review,
29. júlí 2011). Þjóðverjar geta einir
þjóða lagt niður evruna án þess að
fjármálakerfi landsins hrynji. Ef þeir
taka aftur upp markið mun gengi þess
hækka miðað við evruna og fjármagn
streyma til Frankfurt, ekki úr landi, en
hagkerfi hrynja annars staðar á evru-
svæðinu. Hátt gengi marksins og hrun
Nú, þegar hrun
blasir við á evru
svæð inu, halda
Angela Merkel
og Nicolas
Sarkozy fundi,
ákveða hvernig
bregðast skuli
við, og kynna
síðan ákvörð un
ina fyrir öðrum
þjóð ar leið tog um
og ESfor yst unni.