Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 17
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 17
Lán heimila og einstaklinga höfðu
í lok júlí 2011 verið færð niður um
143,9 milljarða króna hjá öllum fjár
málafyrirtækjum, Íbúðalánasjóði og
lífeyrissjóðum, samkvæmt upplýsing
um frá Samtökum fjármálafyrirtækja.
Rúmlega 7.500 einstaklingar og
heimili hafa fengið 18,7 milljarða
afskrifaða með svonefndri 110% leið
hjá fjármálafyrirtækjum, Íbúðalána
sjóði og lífeyrissjóðum. Það gerir að
jafnaði um 2,5 milljarða niðurfærslu á
hvert lán.
Við þetta bætist niðurfærsla vegna
sértækrar skuldaaðlögunar rúmlega
800 einstaklinga og heimila upp á 5,6
milljarða. Það gerir að jafnaði um 7,0
milljónir í niðurfærslu á hvert lán.
Loks hafa tugir þúsunda heimila og
einstaklinga fengið 120 milljarða
niðurfærslu vegna gengisbundinna
íbúðalána og bílalána.
Skiptingin er þannig að alls 11.800
einstaklingar og heimili hafa fengið 79
milljarða afskrifaða af gengisbundn
um lánum. Það gerir 6,7 milljónir í
niðurfærslu á hvert lán að jafnaði.
Þá hafa rúmlega 59 þúsund bíleig
endur fengið 41 milljarð afskrifaðan.
Það gerir um 700 þúsund krónur í
niðurfærslu á hvert bílalán að jafnaði.
Í stuttu máli
lán
einstaklinga
niður um 144
milljarða
Hvaða fyrirtæki seldu
bankarnir í sumar?
Eignarhald banka á fyrirtækjum er eitthvert mesta þrætueplið í viðskiptalífinu.
Nokkrar hreyfingar hafa verið í sumar.
Promens
Framtakssjóður Íslands keypti 40% hlutafjár í Promens
af Landsbankanum í sumar en bankinn (Horn – fjár-
fest ingarfélag bankans) tók Promens að fullu yfir fyrr
í sumar. Þess má geta að Landsbankinn á um 25% í
Framtakssjóðnum.
N1
Kröfuhafar tóku N1 yfir í lok júní og var meirihluta
skulda félagsins breytt í hlutafé. Næstum 30 milljarðar
voru afskrifaðir við yfirtökuna. Heildarkröfur í N1-
samstæðuna voru 53 milljarðar króna. Arion banki
á núna 39% hlut í N1 og Íslandsbanki um 32% hlut.
Aðrir kröfuhafar, eins og lífeyrissjóðir, eiga afganginn
eða um 29% hlut.
Sjóvá
Gengið var endanlega frá 52,4% hlut í Sjóvá í lok júlí
og byggðist það á samningum frá því í janúar. Það var
SF1, félag í umsjón Stefnis, sem keypti. Inni í SF1 eru
lífeyrissjóðir og nokkrir fjársterkir einstaklingar; m.a.
Steinunn Jónsdóttir. Eftir viðskiptin er eignarhlutur
eignasafns Seðlabanka Íslands í félaginu 20,6%, hlutur
SAT eignarhaldsfélags hf. 17,7% og hlutur Íslandsbanka
hf. 9,3%.
Hagar
Síðastliðið vor seldi Arion banki fyrirtækinu Búvöllum
34% í stærstu matvörukeðju landsins, Högum. Stefnir
safnaði hluthöfum saman. Stærstu eigendur Búvalla
eru Hagamelur ehf. (félag í eigu Hallbjörns Karlssonar,
Árna Haukssonar, Sigurbjörns Þorkelssonar og
Tryggingamiðstöðvarinnar), Gildi lífeyrissjóður, SÍA I
(fagfjárfestasjóður undir stjórn rekstrarfélagsins Stefnis,
en eigendur SÍA I eru margir af stærstu lífeyrissjóðum
landsins), fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5 og aðrir
eigendur, m.a. lífeyrissjóðir og Jón Diðrik Jónsson.
Húsasmiðjan til sölu
Framtakssjóðurinn hefur sett Húsasmiðjuna í sölu og
verður fróðlegt að fylgjast með sölunni á henni.
Ingvar Helgason til sölu
Miðengi ehf. (dótturfélag Íslandsbanka), SP fjár-
mögnun hf. og Lýsing hf. hafa falið fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka að annast formlegt ferli sem lýtur að
mögulegri sölu á 100% hlut þeirra í eignarhaldsfélaginu
BLIH ehf., móðurfélagi Ingvars Helgasonar ehf. (IH) og
Bifreiða og landbúnaðarvéla ehf. (B&L). Fjárhagslegri
endurskipulagningu félaganna lauk fyrr á þessu ári
þegar nýir hluthafar komu að þeim.
Toyota
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, og
Kristján Þorbergsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
sama fyrirtækis, hafa keypt 60% í fyrirtækinu af
Landsbankanum. Bankinn mun áfram eiga 40% en
ekki hafa afskipti af daglegum rekstri fyrirtækisins.
S. Helgason
Steiniðjan ehf. keypti í sumar S. Helgason, stærstu
steinsmiðju landsins, af SPB hf., áður Sparisjóðabanka
Íslands.
10-11
Þá seldi Arion banki matvörukeðjuna 10-11 í júní
til Árna Péturs Jónssonar, áður forstjóra Teymis og
Vodafone. Hann var þar áður framkvæmdastjóri
matvælasviðs Baugs.
Domino’s
Landsbankinn seldi Pizza-pizza ehf. (Domino’s) til
hóps fjárfesta undir forystu Birgis Þórs Bieltvedt sem
átti hagstæðasta tilboðið í opnu söluferli. Söluverð alls
hlutafjárins er 210 milljónir króna en að auki nema
vaxtaberandi skuldir 350 milljónum króna.
Björgun
Landsbankinn seldi fyrirtækið Björgun til nýs
einkahlutafélags í eigu Harðbaks ehf., Jarðefnaiðnaðar
ehf., Suðurverks hf. og Sveinbjörns Runólfssonar.
Markmið nýrra eigenda Björgunar er að halda áfram
óbreyttum rekstri félagsins.
Sólning
Landsbankinn tók yfir rekstur Sólningar dekkja-
verkstæðis í sumar.
Hekla
Loks má geta þess að Arion banki seldi snemma
árs þeim Friðberti Friðbertssyni og Franz Jezorski
bifreiðaumboðið Heklu.