Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 43
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 43
Það skiptir ekki mestu að vera snjallari en allir aðrir. Málið er að finna sér sína syllu og halda sig þar,“ segir Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri
Betware. Betware hefur allt frá stofnun lagt
áherslu á að þróa leikjalausnir fyrir leikjafyr
irtæki (t.d. ríkislotterí) sem gerir þeim kleift
að auka tekjur sínar með sölu leikja í gegnum
net og farsíma.
Betware býður viðskiptavinum sínum
upp á alhliðalausn fyrir leiki á netinu.
Bet ware býður upp á lottó, skafmiða,
kas ínó, póker, bingó og afþreyingarleiki.
Lausn fyrirtækisins gerir viðskiptavinum
jafnframt kleift að bæta ofan á lausnina
leikjum frá þriðja aðila.
Viðskiptavinirnir eru einkum ríkisrekin
lottó víða um heim og fyrirtækið er nú
komið með starfsstöðvar beggja vegna Atl
ants hafsins, í Danmörku, Póllandi, Spáni og
Kanada. Starfsmenn eru rúmlega hundrað
en frumkvöðullinn hefur engin áform um
að setjast í helgan stein.
Betware stendur ekki fyrir veðmálum,
heldur þjónustar rekstraraðila sem bjóða
upp á leiki á netinu. Stefán segist stundum
spila sjálfur til að „fá innsýn í hvernig
spilarinn hugsar“, eins og hann orðar það.
Áður hafði Stefán, sem er lærður tölvu
verkfræðingur, komið fyrirtækinu Marg
miðlun á fót. Hann seldi það og ákvað að
nota þá fjármuni til að byggja upp nýtt
fyrirtæki – Betware. Fjármagnið var því
eigið fé og einnig segist hann hafa leitað á
náðir fjárfesta og sinnar nánustu fjölskyldu
og vina sem höfðu jafnframt tekið þátt í
upp byggingu á Margmiðlun á sínum tíma.
300 milljónir í þróun
„Oft er um að ræða litlar fjárhæðir þegar
lagt er af stað. Þolinmæði skiptir mestu,“
segir Stefán. Hann sótti ekki um styrki og
segir að sjaldan sé hægt að fá fagfjárfesta til
að kosta vinnu frumkvöðla.
„Það eru aðeins stutt tímabil undanfarna
áratugi þar sem fjárfestar hafa verið til bún
ir að legga fé í nýjar hugmyndir. Núna eru
þeir tímar að slíkt fé er alls ekki á lausu,“
segir Stefán. Þróunarfé Betware er sótt í
reksturinn. Stefán segist geta lagt um 300
milljónir á ári í þróunarvinnu og hrósar
ríkinu fyrir að veita skattafslátt af hluta
þeirrar upphæðar.
„Mestu máli skiptir að vita hvað menn
vilja og forðast að elta tískubylgjur,“ segir
Stefán. Hann mælir einnig með að frum
kvöðlar nýti sér þá þjónustu sem þegar er í
boði fyrir fólk með hugmyndir að sprota
fyrirtækjum og styrkjakerfið hefur batnað
mikið síðustu ár. Enn er þó langt í land að
stuðningurinn sé nægjanlegur.
Lykilorðin við að koma upp sprotafyrir
tæki eru varkárni og þrautseigja. „Það
verður að taka áhættu en það má ekki
heldur eyða um efni fram,“ segir Stefán.
„Það á ekki að taka áhættu nema þörf sé á
en stundum verður að gera það.“
Hörð samkeppni á markaðnum
Aðstæður hafa líka almennt batnað við
að reka útflutningsfyrirtæki frá Íslandi eftir
bankahrunið og gengisfallið. Tekjurnar eru
meiri í krónum talið en á móti kemur að
það er líka kreppa hjá viðskiptavinunum
erlendis. Það eru blikur á lofti í efnahags
málum heimsins.
Hrunið létti líka á þrýstingi á vinnumark
aði. „Vinnumarkaðurinn var mjög þaninn
fyrir hrun. Fyrsta árið eftir hrun var fólk á
lausu í tölvugeiranun en ekki lengur,“ segir
Stefán.
Stefán segir að hörð samkeppni sé við gerð
hugbúnaðar fyrir leikjafyrirtæki. Þar eru um
tíu stór fyrirtæki sem bítast um markaðinn
og er ásókn í að kaupa upp keppinautana.
„Ég hef ekki verið að gera hosur mínar
grænar fyrir hugsanlegum kaupendum.
Fyrirtækið er í uppbyggingu en ef það
koma tækifæri til að selja þarf það ekki að
vera vitlaus hugmynd,“ segir Stefán.
varkár spilamaður
Stefán Hrafnkelsson býr að langri reynslu í að koma sprotum á legg, bæði
á Íslandi og í alþjóðlegri samkeppni. Árangurinn er undraverður og hug-
búnaðarfyrirtækið Betware veltir núna rúmum milljarði króna á ári eftir 15
ára rekstur. Þó er þetta enn sproti í vexti.
Betware
Það á ekki að taka áhættu nema þörf sé á, segir Stefán Hrafnkelsson hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Betware.